Erlent
331 332 333 334 ›
Afganskir karlmenn mega ekki lengur láta skerða skegg sitt Talíbanar í Helmand héraði í Afganistan hafa gefið út skipanir þess efnis að rakarar í héraðinu megi héðan í frá ekki skerða skegg karlmanna. Talíbanar segja slíka iðju vera á skjön við íslömsk lög og að þeim sem brjóta þau lög verði refsað. Erlent 27.9.2021 07:07
Sósíaldemókratar merja sigur í kosningunum en margt veltur á stjórnarmyndunarviðræðum Sósíaldemókratar hafa unnið nauman sigur í sambandsþingkosningunum í Þýskalandi, ef marka má fyrstu niðurstöður. Samkvæmt þeim hefur Sósíaldemókrataflokkurinn tryggt sér 25,7 prósent atkvæða en kristilegu íhaldsflokkarnir 24,1 prósent. Erlent 27.9.2021 06:47
Alvarlega særður eftir hnífsstungu í Osló Karlmaður er alvarlega særður eftir að ráðist var á hann með eggvopni í miðborg Oslóar nú rétt fyrir klukkan þrjú að staðartíma. Erlent 26.9.2021 02:38
Búið að birta Andrési stefnu með lögmætum hætti Lögmenn Andrésar Bretaprins í Bandaríkjunum hafa gengist við því að honum hafi nú verið birt stefna með réttum hætti, í máli sem Virginia Giuffre hefur höfðað gegn honum. Giuffre sakar hertogann af Jórvík um kynferðisbrot og aðild að mansali. Erlent 25.9.2021 18:37
Flugvellinum á La Palma lokað vegna ösku Flugvellinum á La Palma hefur verið lokað vegna eldgossins á eyjunni. Mikil læti hafa verið í eldgosinu sem hófst á sunnudaginn og þykk öskuský leiddu til þess að flugvellinum var lokað. Erlent 25.9.2021 16:56
Talibanar hengdu upp lík mannræningja til sýnis Yfirvöld talibana í borginni Herat í vestanverðu Afganistan drápu fjóra meinta mannræningja og hengdu lík þeirra upp öðrum til varnaðar í opinberu rými. Fórnarlömb mannránsins eru sögð hafa sloppið ómeidd. Erlent 25.9.2021 14:47
Metfjöldi rostunga skráður á rússneska heimskautinu Rússneskir vísindamenn hafa skýrt frá metfjölda skráðra Atlantshafs-rostunga á Frans Jósefslandi, eyjaklasa austur af Svalbarða. Jafnframt segjast þeir hafa fundið stærstu einstöku rostunganýlendu í sögu heimskautsrannsókna á einni af eyjum rússneska eyjaklasans. Erlent 25.9.2021 09:20
Wire-stjarnan lést úr ofskammti af eiturlyfjum Réttarmeinafræðingur í New York hefur úrskurðað að Michael K. Williams, leikarinn sem var helst þekktur fyrir hlutverk sitt í þáttaröðinni The Wire, hafi látist af því að hafa tekið óvart of stóran skammt af blöndu eiturlyfja og lyfja. Erlent 25.9.2021 08:47
Sósíaldemókratar missa dampinn og óljóst hver taki við keflinu af Merkel Óvíst er hver muni taka við keflinu af Angelu Merkel Þýskalandskanslara að loknum þingkosningum í Þýskalandi, sem fara fram á sunnudag. Nýjustu kosningaspár sýna að aðeins hársbreidd er á milli fylgis stærstu flokkanna. Erlent 24.9.2021 23:46
Fjármálastjóri Huawei fær að fara aftur heim til Kína Fjármálastjóri kínverska tæknirisans Huawei mun fá að snúa aftur til Kína eftir þrjú ár á bak við lás og slá í Kanada. Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti þetta í dag en gegn lausninni mun fjármálastjórinn þurfa að viðurkenna brotin sem hann er sakaður um. Erlent 24.9.2021 20:18
Slökkviliðsmenn á La Palma hörfa vegna aukins krafts í gosinu Slökkviliðsmenn á Kanaríeyjunni La Palma, þar sem eldgos hófst á sunnudag, hafa þurft að hörfa vegna aukins krafts í eldfjallinu. Mennirnir höfðu verið að sinna verkum til að fyrirbyggja eignartjón í hverfinu Todoque. Erlent 24.9.2021 19:55
Norðmenn aflétta nær öllum takmörkunum á morgun Nær öllum takmörkunum vegna faraldurs kórónuveirunnar verður aflétt í Noregi á morgun klukkan 16 að staðartíma. Erlent 24.9.2021 13:59
Fimm létust í óveðri á hæsta fjalli Evrópu Fimm manns eru látnir eftir að hafa lent í miklu óveðri þegar verið var að klífa fjallið Elbrus í Kákasusfjöllum. Fjallið er 5.642 metra hátt, í Rússlandi og hæsta fjall Evrópu. Erlent 24.9.2021 13:13
Alræmdur glæpon skotinn til bana í réttarsal Tveir menn sem voru dulbúnir sem lögfræðingar skutu alræmda glæpaforingja til bana í réttarsal í Delí á Indlandi í morgun. Lögregla telur að annað glæpagengi hafi skipulagt morðið. Erlent 24.9.2021 12:45
Forseti Brasilíu segir Johnson hafa falast eftir „neyðarsamningi“ um ákveðna matvöru Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, segir forsætisráðherra Bretlands hafa biðlað til hans um „neyðarsamkomulag“ vegna skorts á ákveðinni matvöru. Stjórnvöld í Bretlandi eru sögð hafa neitað því að ummælin eigi við rök að styðjast. Erlent 24.9.2021 12:38
Stefna nánum bandamönnum Trump vegna árásarinnar á þinghúsið Þingnefnd sem rannsakar árás stuðningsmanna Donald Trump á bandaríska þinghúsið í janúar hefur stefnt fjórum ráðgjöfum og embættismönnum hans til að bera vitni og afhenda gögn. Á meðal þeirra sem er stefnt er Mark Meadows, fyrrverandi skrifstofustjóri Hvíta hússins. Erlent 24.9.2021 11:50
Unnusti Petito ákærður fyrir greiðslukortasvindl Yfirvöld í Wyoming í Bandaríkjunum hafa gefið út ákæru á hendur unnusta Gabrielle Petito, ungrar konu sem fannst myrt þar eftir að hún hvarf á ferðalagi með honum, fyrir að svíkja út fé með greiðslukorti. Erlent 24.9.2021 10:52
Lögreglumaðurinn áfrýjar dómi vegna dauða Georges Floyd Derek Chauvin, lögreglumaðurinn sem var dæmdur í meira en 22 ára fangelsi fyrir að valda dauða George Floyd í Minneapolis í Bandaríkjunum í fyrra hefur áfrýjað dómnum. Chauvin kraup ofan á hálsi Floyd þar til hann lét lífið. Erlent 24.9.2021 10:16
Umdeild endurskoðun í Arizona staðfestir sigur Biden Sex mánaða löng og afar umdeild endurskoðun einkafyrirtækis á úrslitum bandarísku forsetakosninganna í Arizona sem repúblikanar létu fara fram sýndi að opinber úrslit voru rétt. Stofnað var til könnunarinnar vegna samsæriskenninga um að stórfelld svik hefðu kostað Donald Trump sigurinn í Arizona og fleiri ríkjum. Erlent 24.9.2021 09:00
Aftökur og aflimanir hefjast á ný Fangelsismálaráðherra Afganistan, Nooruddin Turabi, segir að aftökur og aflimanir verði teknar upp á nýtt, nú þegar talíbanar eru aftur við stjórn í landinu. Þær verði þó mögulega ekki framkvæmdar fyrir opnum tjöldum. Erlent 24.9.2021 08:49
Rekstraraðilum verður bannað að halda eftir þjórfé Stjórnvöld á Bretlandseyjum hyggjast banna atvinnurekendum að halda eftir eða taka hluta þess þjórfé sem viðskiptavinir skilja eftir fyrir þjóna og annað starfsfólk í þjónustustörfum. Erlent 24.9.2021 07:45
Fyrrverandi forseti Katalóníu handtekinn á Ítalíu Carles Puigdemont, fyrrverandi forseti Katalóníu í útlegð, hefur verið handtekinn á Ítalíu. Stjórnvöld á Spáni hafa sakað hann um uppreisn með því að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðskilnað árið 2017, sem dómstólar dæmdu ólöglega. Erlent 24.9.2021 06:58
Einn látinn og tólf særðir í skotárás í Bandaríkjunum Minnst einn er látinn og tólf særðir eftir skotárás í matvöruverslun í Tennessee í Bandaríkjunum. Árásarmaðurinn hóf skothríð í Kroger-verslun í Collierville, sem er úthverfi Memphis. Þegar lögregluþjóna bar að garði komu þeir að árásarmanninum látnum. Erlent 23.9.2021 21:21
Skera upp herör gegn öflugum gróðurhúsalofttegundum í kælibúnaði Umhverfisstofnun Bandaríkjanna tilkynnti um verulega hertar reglur um framleiðslu svonefndra vetnisflúorkolefna, öflugra gróðurhúsalofttegunda sem eru notaðar í ískápum og loftkælitækjum. Erlent 23.9.2021 15:41
Segir af sér vegna „ómannúðlegrar“ brottvísunar Biden-stjórnarinnar á Haítum Sérstakur sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar vegna ástandsins á Haítí sagði af sér í dag til að mótmæla umdeildum brottvísunum Haíta sem sóttust eftir hæli í Bandaríkjunum. Hundruðum Haíta hefur verið flogið til heimalandsins þrátt fyrir ófremdarástand sem ríkir þar. Erlent 23.9.2021 14:11
Dregur saman á milli stóru flokkanna rétt fyrir kosningarnar í Þýskalandi Aðeins fjórum prósentustigum munar nú á fylgi jafnaðarmanna og Kristilega demókrataflokks Angelu Merkel, fráfarandi kanslara, þremur dögum fyrir sambandsþingkosningar í Þýskalandi. Dregið hefur saman með flokkunum á lokametrum kosningabaráttunnar. Erlent 23.9.2021 11:39
Facebook þarf að afhenda gögn um þjóðarmorð á róhingjum Alríkisdómari í Bandaríkjunum skipaði samfélagsmiðlarisanum Facebook að gera opinber gögn um reikninga sem tengdust þjóðarmorði á róhingjum í Búrma en var lokað. Skammaði hann Facebook fyrir að afhenda ekki alþjóðlegum rannsakendum gögnin. Erlent 23.9.2021 10:34
Nokkrar tilgátur en enginn handtekinn eftir morðtilræði í Úkraínu Enginn hefur enn verið handtekinn eftir að óþekktir menn létu byssukúlum rigna yfir bíl eins nánasta ráðgjafa forseta Úkraínu í gær. Tilgátur eru um að óánægðir óligarkar eða jafnvel rússnesk stjórnvöld hafi fyrirskipað tilræðið. Erlent 23.9.2021 09:21
Stjórnarmyndunarviðræður í fullum gangi í Noregi Þrír flokkra af vinstri væng og miðju norskra stjórnmála koma saman til síns fyrsta fundar til að ræða mögulega stjórnarmyndun í dag. Framtíð olíuiðnaðarins, skattamál og samskiptin við Evrópusambandið eru talin helstu ágreiningsmál flokkanna. Erlent 23.9.2021 08:44
Loftmengun enn hættulegri en talið var Loftmengun er enn hættulegri en áður var talið. Þetta segir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) sem hefur nú lækkað heilsuverndarmörk nokkurra helstu mengunarvalda. Erlent 23.9.2021 08:05