Erlent
248 249 250 251 252 253 254 255 256 … 334 ›
Samkomulag milli SAS og flugmanna í höfn en ekki undirritað Flugfélagið SAS og stéttarfélög flugmanna þess hafa komist að samkomulagi um að flugmenn taki upp störf á ný en þeir hafa verið í verkfalli tvær vikur. Félagið gaf þó í kvöld út tilkynningu þess efnis að ekki væri búið að undirrita neina samninga. Erlent 18.7.2022 23:53
Heimsbyggðin þurfi að velja: „Sameiginlegt átak eða sameiginlegt sjálfsmorð“ Hundruð skógarelda brenna víðs vegar um Evrópu í mikilli hitabylgju sem orðið hefur fjölda fólks að aldurtila og valdið gríðarlegu tjóni. Samgöngur lömuðust um stóran hluta Bretlandseyja í dag og Luton flugvelli var lokað. Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir heimsbyggðina á krossgötum. Erlent 18.7.2022 22:26
Tugendhat úr leik í baráttunni um leiðtogasætið Tom Tugendhat fékk fæst atkvæði í þriðju umferð leiðtogakjörs Íhaldsflokksins í Bretlandi. Rishi Sunak, fyrrverandi fjármálaráðherra, leiðir enn. Erlent 18.7.2022 19:25
Treysta sér ekki á leikinn vegna hitabylgjunnar Íslendingur sem staddur er í Lundúnum segir hitann í borginni hreinlega óbærilegan. Hann á miða á mikilvægan landsleik í kvöld en treystir sér ekki á hann. Erlent 18.7.2022 18:51
Gefa dýrunum frostpinna í hitabylgjunni Það eru ekki bara mennirnir sem þjást vegna hitabylgjunnar sem ríður núna yfir Evrópu. Dýrum er ekki síður heitt og þess vegna hafa starfsmenn evrópskra dýragarða tekið upp á því að gefa dýrunum frostpinna til kæla þau niður. Erlent 18.7.2022 17:05
Sagðist saklaus af hatursglæpum Maðurinn sem sakaður er um að myrða tíu manns í skotárás í Buffalo í New York fyrr á árinu, segist saklaus af ákærum um hatursglæpi. Payton Gendron er hvítur og er sakaður um að hafa ferðast til Buffalo til að myrða þeldökkt fólk. Erlent 18.7.2022 17:02
Bjóða kennurum fúlgur fjár til að fara til Úkraínu Yfirvöld í Rússlandi hafa boðið rússneskum kennurum fúlgur fjár fyrir að fara til Úkraínu og undirbúa kennslu úkraínskra barna á yfirráðasvæði Rússa. Rússar leggja mikið kapp á að tryggja yfirráð sín á þessum svæðum. Erlent 18.7.2022 15:17
Á sjöunda hundrað undir grun um landráð í Úkraínu Forseti Úkraínu segir rúmlega 650 mál gegn starfsmönnum saksóknara, Öryggisþjónustunnar og annarra stofnana vegna landráðs hafa verið skráð. Forsetinn rak ríkissaksóknara og yfirmann leyniþjónustunnar í gær vegna gruns um samstarf þeirra við rússneska innrásarliðið. Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins funda í dag um hertar refsiaðgerðir gegn Rússum. Erlent 18.7.2022 13:30
Heimsbyggðin standi frammi fyrir sameiginlegu sjálfsvígi Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst því yfir að hálf heimsbyggðin búi á hættusvæði hvað ofsahita varðar. Heimsbyggðin standi þannig frammi fyrir sameiginlegu sjálfsvígi vegna hamfarahlýnunar. Erlent 18.7.2022 13:16
Danskir framleiðendur semja við Viaplay og framleiðsla hefst að nýju Danskir kvikmyndaframleiðendur hafa gert tímabundið samkomulag við Viaplay sem gerir að verkum að framleiðsluverkefni tengd streymisveitunni sem fóru í stopp í júní munu fara í gang að nýju. Erlent 18.7.2022 12:03
Árásarmaður skotinn af vegfaranda Þrír voru skotnir til bana og tveir særðir eftir að maður vopnaður hálfsjálfvirkum riffli hóf skothríð í verslunarmiðstöð í Greenwood, úthverfi Indianapolis, í Indiana í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Árásarmaðurinn var skotinn til bana af vopnuðum 22 ára gömlum vegfaranda. Erlent 18.7.2022 11:11
Íbúum í Suður-Evrópu gert að yfirgefa heimili sín vegna skógarelda Frönsk stjórnvöld hafa fyrirskipað um sextán þúsund manns að yfirgefa heimili sín vegna hættu af skógareldum í suðvesturhluta landsins. Eldar ógna einnig svæðum á Spáni, Grikklandi og í Króatíu. Erlent 18.7.2022 07:59
Tveir látnir í Gana vegna Marburg veirunnar Yfirvöld í Afríkuríkinu Gana hafa staðfest að tveir hafi nú látist í landinu af völdum Marburg veirunnar svokölluðu, en hún er afar smitandi sjúkdómur í ætt við Ebólu. Erlent 18.7.2022 07:45
Fréttakonan sem mótmælti innrásinni handtekin Rússneska fréttakonan sem mótmælti innrás rússa í beinni útskendingu á rússneska ríkissjónvarpinu skömmu eftir innrásina hefur verið handtekin. Erlent 18.7.2022 07:39
Brustu í grát þegar hin fjögurra ára Liza var borin til grafar Yfir hundrað syrgjendur komu saman í dag við jarðarför hinnar fjögurra ára Lizu sem lést í flugskeytaárás Rússa á úkraínsku borgina Vinnytsia á fimmtudag. Erlent 17.7.2022 23:42
Fjöldi mistaka í aðgerðum lögreglu Lögreglan í Uvalde gerði fjölda mistaka þegar unnið var að því að stöðva skotárás inni í Robb-grunnskólanum í maí. Alls létu 21 manns lífið í árásinni. Erlent 17.7.2022 23:17
Hundur hljóp á veginn og felldi keppendur í Tour de France Hundur hljóp í veg fyrir keppendur Tour de France hjólreiðakeppninnar í vikunni og tafði fjölda keppenda. Tveir féllu af hjólum sínum vegna hundsins. Erlent 17.7.2022 21:49
Fjórir látnir eftir þyrluslys í Nýju-Mexíkó Fjórir létu lífið í þyrluslysi nærri bænum Las Vegas í Nýju-Mexíkó í gær. Í þyrlunni voru viðbragðsaðilar sem höfðu unnið að því að slökkva eld í Arizona-ríki. Erlent 17.7.2022 21:15
„Fólk er að búast við því versta“ Sérfræðingar vara við mannfalli í sögulegri hitabylgju sem gengur yfir Bretland á morgun og gróðureldar í Evrópu valda áfram gríðarlegri eyðileggingu. Íslendingur í Lundúnum segir borgarbúa uggandi. Þeir búi sig undir það versta. Erlent 17.7.2022 20:01
Ríkissaksóknara Úkraínu og yfirmanni SBU sagt upp Ríkissaksóknara Úkraínu, Iryna Venediktova, og yfirmanni leyniþjónustu Úkraínu, Ivan Bakanov, hefur verið sagt upp af Volódímír Selenskí Úkraínuforseta. Erlent 17.7.2022 19:39
Bjóða upp á bjór í skiptum fyrir sólblómaolíu Bar í Munchen í Þýskalandi hefur upp á síðkastið boðið gestum að koma með sólblómaolíu og fá í staðinn bjór. Búið er að setja takmarkanir á kaup landsmanna á olíunni vegna innrás Rússa í Úkraínu. Erlent 17.7.2022 18:26
Áfengisneysla að öllu leyti skaðleg heilsu ungs fólks Ríki heims þurfa að grípa til sértækra ráðstafana til þess að draga úr áfengisneyslu ungs fólks. Niðurstöður stærstu rannsóknar sem gerð hefur verið á áhrifum áfengisneyslu benda til þess að þær séu að öllu leyti skaðlegar ungu fólki, en geti í hófi dregið úr sjúkdómum eldra fólks. Erlent 17.7.2022 14:31
Hitinn gæti farið yfir 40 gráður í fyrsta sinn: „Þetta er eitthvað sem menn verða bara að búa sig undir“ Appelsínugul viðvörun hefur tekið gildi víðs vegar í Bretlandi vegna ofsahita og á morgun eða þriðjudag gæti farið yfir 40 gráður í fyrsta sinn. Veðurfræðingur segir þetta óvanalegt og ljóst að mikilli hættu stafi af. Búast megi við tíðari hitabylgjum á komandi árum og Norðurlandabúar gætu jafnvel þurft að undirbúa sig sérstaklega. Erlent 17.7.2022 14:02
Átta létust í flugslysi: „Auðvitað lifðu þau þetta ekki af“ Allir átta meðlimir áhafnar úkraínskrar Antonov An-12 fraktflugvélar sem hrapaði í Grikklandi í gær létust. Erlent 17.7.2022 09:40
Þúsundir flýja heimili sín vegna gróðurelda Þúsundir manna þurftu að flýja heimili sín undan gróðureldum sem geisuðu víða um Vestur-Evrópu í gær og hafa eyðilagt gríðarlegt landflæmi. Gróðureldarnir hafa kviknað eftir hitabylgju sem ríður nú yfir Evrópu. Erlent 17.7.2022 09:18
Aflýstum flugferðum fjölgar daglega á meðan SAS reynir að semja við flugmenn Samningaviðræður milli skandínavíska flugfélagsins SAS og flugmanna félagsins halda áfram í dag. Samningsaðilar hafa fundað síðan á laugardagsmorgun til að reyna að leysa verkfallsástand sem hófst 4. júlí þegar í kringum 900 starfsmenn félagsins fóru í verkfall. Erlent 17.7.2022 07:54
Hefur beðið í röð eftir eldsneyti í tíu daga Pratheem, íbúi í borginni Colombo í Srí Lanka, hefur beðið í röð í tíu daga eftir því að geta keypt eldsneyti. Miklar takmarkanir hafa verið settar á eldsneytiskaup í landinu. Erlent 16.7.2022 23:21
Fraktflutningavél með átta farþega hrapaði í Grikklandi Fraktflutningavél á leiðinni frá Serbíu til Jórdaníu hrapaði í Grikklandi fyrr í kvöld. Átta manns voru um borð í vélinni þegar hún brotlenti. Erlent 16.7.2022 22:56
Sex látin eftir stórt umferðarslys í Montana Alls létu sex manns lífið í 21 ökutækja bílslysi í Montana-ríki í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Lögreglan í Montana er enn að rannsaka málið. Erlent 16.7.2022 20:37
„Þetta er allt að springa á sama tíma“ Ekkert lát er á gríðarlegum gróðureldum í hitabylgju á meginlandi Evrópu. Þúsundir hafa flúið heimili sín og mörg hundruð eru látin vegna hitans. Íslendingur í Portúgal lýsir skelfilegum aðstæðum þar sem eldarnir loga. Erlent 16.7.2022 20:31