
Enski boltinn

Segir það sárt að vera ekki velkominn hjá Liverpool
Michael Owen yfirgaf Liverpool sem elskaður sonur félagsins, einn allra besti framherji heims og handhafi Gullknattarins. Stuðningsmenn Liverpool hafa hins vegar aldrei sætt sig við það að hann valdi að spila fyrir Manchester United.

Metinn á rúmlega 17 milljarða fyrr á árinu en má nú fara á láni
Evan Ferguson, framherji Brighton & Hove Albion í ensku úrvalsdeildinni sem og írska landsliðsins, skaust hratt upp á stjörnuhimininn og jafn hratt niður.

Liverpool væri bara í þrettánda sæti án markanna hans Mo Salah
Framtíð Mohamed Salah er mikið til umræðu enda kappinn að renna út á samning í sumar. Ein leiðin til að átta sig á mikivæginu er að taka út öll mörkin sem hann hefur þátt í hjá Liverpool á þessari leiktíð.

Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn
Guglielmo Vicario, markvörður Tottenham, spilar ekki fótbolta á næstunni eftir að hafa lagst á skurðarborðið í gær.

Carragher segir Salah vera eigingjarnan
Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool og núverandi sjónvarpsmaður, er allt annað en sáttur með viðtalið sem Mohamed Salah gaf eftir leik helgarinnar.

Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið
Leikmenn Leicester City gerðu sér glaðan dag eftir tap gegn Chelsea í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu um helgina. Skelltu þeir sér til Kaupmannahafnar, eitthvað sem liðið hefur gert áður, en að þessu sinni er ólíklegt að það beri sama árangur og síðast.

Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu
West Ham United vann nokkuð óvæntan 2-0 útisigur á Newcastle United í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta.

Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar
Virgil van Dijk, Trent Alexander-Arnold og Mohamed Salah renna allir út á samning næsta sumar.

Potter orðaður við Leicester á nýjan leik
Samkvæmt veðbönkum í Englandi er Graham Potter talinn líklegastur til að vera næsti þjálfari enska úrvalsdeildarliðsins Leicester City. Refirnir reyndu að ráða Potter í sumar en hann afþakkaði pent.

Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim
Tónlistarmaðurinnn Ed Sheeran var vinsamlegast beðinn um að fara eftir að hafa ruðst inn í viðtal við Rúben Amorim, knattspyrnustjóra Manchester United, eftir leikinn gegn Ipswich Town í gær.

Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta
Liverpool er með átta stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir tólf umferðir. Það boðar gott fyrir lærisveina Arne Slot.

Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu
Roy Keane verður ekkert skapminni með aldrinum og það sannaðist enn á ný í kringum útsendingu Sky Sports frá leik Ipswich Town og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool
Mohamed Salah átti enn einn stórleikinn í gær þegar hann skoraði tvívegis í endurkomusigri Liverpool á útivelli á móti Southampton. Hann sagði eftir leikinn að Liverpool væri ekki einu sinni búið að bjóða honum nýjan samning.

„Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“
Mohamed Salah er að renna út á samningi í sumar en frábær frammistaða hans inn á vellinum er án efa ein aðalástæðan fyrir því að Liverpool er með átta stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.

„Við munum þurfa að þjást í langan tíma“
Ruben Amorim, stjóri Man. Utd, var vissulega raunsær á framhaldið í viðtali eftir 1-1 jafntefli Manchester United á móti Ipswich Town í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær.

Ósannfærandi byrjun hjá Amorim
Rúben Amorim stýrði Manchester United í fyrsta sinn í dag þegar liðið sótti nýliða Ipswich Town heim. Þrátt fyrir draumabyrjun tókst United ekki að sækja sigur í fyrsta leik Amorim.

Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City
Liverpool nýtti sér tap Manchester City í gær og jók forskot sitt á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með afar torsóttum 3-2 sigri gegn botnliði Southampton í dag.

Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri
Aston Villa hefur nú leikið sex leiki í röð, í öllum keppnum, án sigurs eftir að liðið gerði 2-2 jafntefli á heimavelli við Crystal Palace í ensku úrvalsdelidinni. Fimm leikjum var að ljúka.

Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli
Englandsmeistar Manchester City töpuðu sínum þriðja deildarleik í röð í dag þegar liðið steinlá á heimavelli gegn Tottenham 0-4.

Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal
Arsenal átti ekki í neinum vandræðum með spútniklið Nottingham Forest þegar liðin mættust á Emirates í dag en leiknum lauk með öruggum 3-0 sigri heimamanna.

Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum
Chelsea er í 3. sæti, stigi á eftir Manchester City og sex stigum frá toppliði Liverpool, eftir nokkuð þægilegan 2-1 sigur gegn Leicester á útivelli í dag.

Fjórtán ára á æfingum með Arsenal
Hinn 14 ára gamli Max Dowman þykir gríðarlega efnilegur fótboltamaður og hann er þegar farinn að mæta á æfingar hjá aðalliði Arsenal.

Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin
Knattspyrnustjórinn Ian Holloway, sem tók við Swindon Town á Englandi í október, telur að slæmt gengi liðsins gæti verið vegna þess að reimt sé á æfingavelli liðsins.

Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum
Rúben Amorim sagði alla réttu hlutina og sjálfstraustið hreinlega lak af hinum 39 ára gamla Portúgala þegar hann ræddi við fjölmiðla fyrir leik Manchester United og Ipswich Town í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu.

Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn
Englandsmeistarar Manchester City verða án lykilsmanns í hinni mikilvægu jólatörn ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Sömu sögu er að segja af Arsenal sem verður einnig án eins síns besta varnarmanns næstu mánuðina.

Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd
Pólski markahrókurinn Robert Lewandowski samþykkti árið 2012 að ganga til liðs við Manchester United en á endanum hafnaði þáverandi félag hans, Dortmund, tilboði United.

Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika
Enski tónlistarmaðurinn Ed Sheeran er ekki aðeins mikill stuðningsmaður í Ipswich Town heldur er hann einnig hluthafi í félaginu. Hann hefur líka hjálpað félaginu að sannfæra leikmenn um að koma til enska úrvalsdeildarfélagsins.

Guardiola samdi til ársins 2027
Pep Guardiola skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við Manchester City á dögunum en ekki undir eins árs samning eins og fyrst kom fram. City staðfesti nýja samninginn í kvöld.

Rannsókn á hegðun David Coote enn í fullum gangi
Enska úrvalsdeildin í fótbolta fer aftur af stað um næstu helgi en þar verður hvergi sjáanlegur einn þeirra dómara sem knattspyrnuáhugafólk sér vanalega á leikjum deildarinnar.

Tuchel „stelur“ Hilario frá Chelsea og tekur hann inn í teymið
Thomas Tuchel er búinn að finna sér markvarðarþjálfara fyrir enska landsliðið og sá hinn sami þekkir vel til enska boltans sem og til þýska þjálfarans.