Enski boltinn

Guardiola fjarverandi í næstu leikjum Manchester City
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, verður fjarverandi í næstu tveimur leikjum liðsins eftir að hafa gengist undir aðgerð vegna bakvandamála sem hafa verið að hrjá hann undanfarið.

Gagnrýnir stjórnendur Manchester United: „Ferlið hefur verið hræðilegt“
Gary Neville, goðsögn í sögu Manchester United, segir að meðhöndlun félagsins á málum Mason Greenwood sem og þá innanbúðar rannsókn sem það stóð fyrir hafa verið hræðilega og sýni skýr merki um að þar hafi vantað skýra forystu.

Biðjast afsökunar á taktlausum ummælum lýsenda sinna á leik í enska boltanum
Sky Sports hefur beðist afsökunar á ummælum lýsenda sinna á leik Everton og Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni um nýliðna helgi.

Áhugi á Greenwood: Félög setja sig í samband við Manchester United
Nokkur félög hafa nú þegar sett sig í samband við Manchester United og spurst fyrir um sóknarmanninn Mason Greenwood eftir yfirlýsingu félagsins í gær þess efnis að leikmaðurinn myndi ekki snúa aftur í lið félagsins.

Telur Greenwood ekki hafa brotið af sér
Richard Arnold, framkvæmdastjóri Manchester United, trúir ekki að enski framherjinn Mason Greenwood hafi framið þá glæpi sem hann var ákærður fyrir.

„Stjórnuðum leiknum algjörlega“
Declan Rice, miðjumaður Arsenal, var sáttur með sigur sinna manna á Crystal Palace í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Þrátt fyrir að leiknum hafi lokið með 1-0 sigri Arsenal þá vildi Rice meina að hans menn hafi verið öll völd á vellinum.

Skytturnar þurftu vítaspyrnu til að sækja stigin þrjú gegn Palace
Arsenal, silfurlið ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð, vann nauman 1-0 útisigur á Crystal Palace í kvöld. Markið kom úr vítaspyrnu í síðari hálfleik.

Kinnbeinsbrotinn eftir átök helgarinnar
Enski framherjinn Dominic Calvert-Lewin kinnbeinsbrotnaði í 4-0 tapi Everton gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag. Reikna má með að hann missi af næstu leikjum liðsins en Everton er sem stendur með 0 stig að loknum tveimur umferðum.

Belgíska undrabarnið Doku á að fylla skarð Mahrez
Belgíski landsliðsmaðurinn Jérémy Doku er á leið til Englands- og Evrópumeistara Manchester City frá franska liðinu Rennes. Frá þessu greinir ítalski „skúbbarinn“ Fabrizio Romano.

Jákvæðar fréttir berast af Arnóri
Íslenski landsliðsmaðurinn í fótbolta, Arnór Sigurðsson leikmaður Blackburn Rovers, er að komast á fullt skrið á nýjan leik eftir að hafa verið að glíma við þrálát meiðsli í nára.

Segir að frammistaða 115 milljóna punda mannsins hafi verið martröð líkust
Frammistaða Moisés Caicedo í fyrsta leik sínum fyrir Chelsea var martröð líkust. Þetta segir Jamie Carragher, sparkspekingur á Sky Sports.

Yfirlýsing Greenwood: „Ég gerði ekki þá hluti sem ég var sakaður um“
Mason Greenwood mun yfirgefa herbúðir enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United. Þetta staðfestir félagið í yfirlýsingu í dag og nú hefur Greenwood sjálfur gefið út yfirlýsingu.

Greenwood yfirgefur United
Mason Greenwood er á förum frá Manchester United. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Toney rýfur þögnina í opinskáu viðtali: Situr af sér átta mánaða bann
Ivan Toney, leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Brentford hefur í fyrsta sinn tjáð sig um veðmálafíkn sína og brot sín á veðmálareglum sem sáu til þess að hann var dæmdur í langt bann frá knattspyrnuiðkun.

Leikmaður Aston Villa til rannsóknar hjá lögreglu
Leon Bailey, sóknarmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Aston Villa er til rannsóknar hjá lögreglu í kjölfar 4-0 sigurs Aston Villa á Everton í gær en stuðningsmaður sakar hann um líkamsárás.

Hamrarnir lögðu Chelsea í stórskemmtilegum leik
West Ham United gerði sér lítið fyrir og vann nágranna sína í Chelsea 3-1 í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Chelsea er því aðeins með eitt stig að loknum tveimur umferðum og ljóst að uppbyggingin þar á bæ mun taka lengri tíma en margur hélt.

Enska úrvalsdeildin vart farin af stað en dómgæslan á strax undir högg að sækja
Fimm leikir í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar fóru fram í gær, laugardag, og segja má að dómgæslan sé í brennidepli eftir þá.

„Við erum enn þar“
Pep Guardiola var virkilega ánægður er hann ræddi við fjölmiðla í kjölfar 1-0 sigurs Manchester City á Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni á laugardagskvöld.

„Verðum að horfa í eigin barm og nýta færin“
Erik ten Hag, þjálfari Manchester United, var eðlilega ósáttur með 2-0 tap sinna manna gegn Tottenham Hotspur í ensku úrvalsdeildinni fyrr í dag, laugardag. Gestirnir spiluðu ekki sinn besta leik en sköpuðu sér þó töluvert fleiri færi en í 1. umferð deildarinnar gegn Úlfunum.

Sannkallaður Hollywood-endir hjá Hollywood-liðinu í Englandi
Wrexham í ensku D-deildinni í knattspyrnu heldur áfram að vekja athygli en liðið skaust upp á sjónarsviðið þegar Ryan Reynolds og Rob McElhenney festu kaup á liðinu. Í dag gerði liðið 5-5 jafntefli við Swindon Town eftir að vera tveimur mörkum undir þegar venjulegum leiktíma var lokið.

Álvarez hetja Man City
Englandsmeistarar Manchester City unnu 1-0 sigur á Newcastle United í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Tottenham gekk frá Man United í síðari hálfleik
Tottenham Hotspur vann 2-0 sigur á Manchester United í 2. umferð ensku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu. Leikurinn var einkar opinn en gestirnir frá Manchester gátu ómögulega komið boltanum í netið og nokkuð ljóst er að liðinu sárvantar framherja.

Eftirsóttur af Man City en sætir rannsókn vegna mögulegra brota á veðmálareglum
Lucas Paquetá, miðjumaður brasilíska landsliðsins í knattspyrnu og West Ham United í ensku úrvalsdeildinni, sætir nú rannsókn vegna mögulegra brota á veðmálareglum enska og Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA.

Zaniolo mættur til Villa á láni
Nicolò Zaniolo er genginn í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Aston Villa á láni frá Galatasaray í Tyrklandi út tímabilið sem er nýhafið.

Man United fær brasilíska landsliðskonu frá Barcelona
Hin 25 ára gamla Geyse Ferreira er gengin í raðir Manchester United frá Barcelona. Hún er framherji sem hefur spilað í Brasilíu, Portúgal og Spáni til þessa á ferli sinum.

Varamaðurinn Wood hetja Forest
Nottingham Forest er komið á blað í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á nýliðum Sheffield United í kvöld.

„Völdu Chelsea af því að þeir finna að eitthvað sérstakt er að fara að gerast“
Chelsea átti góða viku á leikmannamarkaðnum og kom um leið höggi á Liverpool sem sat eftir tómhent eftir að tveir öflugir leikmenn völdu frekar Chelsea.

Endurkoma Greenwood undirbúin: Baráttusamtök gegn heimilisofbeldi sögð „fjandsamleg“
Stjórnendur innan raða Manchester United hafa í gær og í dag haldið hitafundi með starfsfólki félagsins en mikil óánægja er sögð ríkja eftir að fréttir bárust af því að líklega myndi Mason Greenwood fá brautargengi í karlaliði félagsins á nýjan leik.

Endo orðinn leikmaður Liverpool
Japanski miðjumaðurinn Wataru Endo er orðinn leikmaður Liverpool. Frá þessu greinir enska úrvalsdeildarfélagið í tilkynningu á vefsíðu sinni.

Hótar því að hætta að halda með Manchester United
Enska sjónvarpsstjarnan Rachel Riley ætlar að hætta að styðja Manchester United ef félagið leyfir Mason Greenwood að spila aftur með liðinu.