Bílar

Blikur á lofti hjá lúxusbílaframleiðendum vegna dísilbílaáherslu
Dísilvélar í 90% bíla Jaguar, 80% bíla Volvo, 75% bíla BMW, og 70% bíla Audi og Mercedes Benz.

Tesla slær við markaðsvirði General Motors
Er orðinn verðmætasti bílaframleiðandi Bandaríkjanna.

Fékk 15 ára dóm fyrir að sveigja viljandi í veg fyrir mótorhjól
Slasaði tvo mótorhjólamenn viljandi.

VW T-ROC án feluklæða
T-ROC er 31 cm styttri en 5-sæta Tiguan.

Velja milli 11 leiða fyrir Hyperloop háhraðagöng
Valdar verða þrjár leiðir í fyrstu en ferðast má á allt að 1.130 km hraða í Hyperloop göngum.

Volvo, Fiat, Nissan og PSA skrópa á bílasýninguna í Frankfurt
Þó svo þessi fyrirtæki taki ekki þátt verða 50 bílamerki á sýningunni.

Mercedes-AMG GT Sýning á Akureyri
Fjölda glæsilegra bíla frá Mercedes-Benz sýndir fyrir norðan.

Bílgreinasambandið gengur til liðs við Samtök iðnaðarins
Jón Trausti Ólafsson var endurkjörinn formaður Bílgreinasambandsins.

Hyundai býður vetnisknúna rafbíla
Skeljungur mun setja upp tvær stöðvar til viðbótar þeirri einu sem til er á næsta ári.

Vorsýning SsangYong hjá Benna
Rexton, Korando og Tivoli verði í öndvegi á sýningunni.

Ísland í fullkominni stöðu að innleiða umhverfisvænt samgöngukerfi
"Við erum í góðri stöðu hér á landi, borgin og stjórnvöld eru samstíga og setja sér háleit markmið".

Bílasala 29% meiri en í fyrra
BL ehf. er með mestu markaðshlutdeildina eða 28%.

Míkrójeppinn Ignis með sérstöðu
Erfitt að skapa bíl sem hefur mikla sérstöðu en það tekst með Ignis.

Hyundai Santa Fe fyrstur yfir Rossíshelluna á Suðurskautslandinu
Starfsmenn Arctic Trucks fóru fyrir leiðangri Hyundai á Suðurpólinn.

BMW X2 og X7 á leiðinni
Ætla aftur að ná meiri sölu bíla en hjá Mercedes Benz.

Selur franska ríkið eignarhlut sinn í Renault?
Franska ríkið á rétt undir 20% í Renault.

Starfsfólk Porsche fær 1,1 milljón í bónus
Hver og einn starfsmaður fær 9.111 evrur í bónusumslaginu, en upphæðin vitnar í frægasta bíl Porsche.

405 hestafla Fiat 500 Abarth
Dugar til að komast í hundraðið á 4,1 sekúndu og hámarkshraðinn er 288 km/klst.

Audi stöðvar framleiðslu á A4 og A5 vegna eldsvoða hjá íhlutframleiðanda
Á hverjum degi eru framleiddir þar 1.400 A4 og A5 bílar og verður því Audi af framleiðslu 5.600 bíla.

Forstjóri Volvo sér framtíðina í rafvæðingu bíla
Sér ekki mikla framtíð í dísilbílum og segir að Volvo eigi ekki að byggja sjálft upp rafhleðslunet, það eigi aðrir að gera.

Fjölskylduharmleikur veldur sölu Ferdinand Piech á 15% í Volkswagen Group
Blandaði fjölskyldumeðlim í dísilvélasvindlið og þá fékk fjölskyldan nóg.

Audi flýtir komu nýrra jeppa og jepplinga
Audi stefnir að því að eftir tvö ár verði úrval jeppa og jepplinga komin í 7 gerðir frá 4 nú.

Snýr Volgan aftur?
Síðasti fólksbíll Volga bar nafnið Siber og var systurbíll Chrysler Sebring.

Mikill vöxtur hjá AMG deild Benz í Bandaríkjunum
Seldu 33% meira í fyrra en árið áður og vöxturinn heldur áfram.

Volkswagen heimilt að endurselja dísilsvindlbílana vestanhafs
Breytingar á dísilsvindlbílunum í Evrópu minnka afl þeirra um 10%.

Nýr og breyttur Land Rover Discovery kynntur hjá BL
Discovery er nú með yfirbyggingu úr áli sem gerir hann 490 kg léttari.

Hyundai i30 hlaut hönnunarverðlaun iF
Verður frumsýndur á laugardaginn hjá BL.

Kínverjar kaupa 5% í Tesla
Tencent Holdings verður fyrir vikið einn stærsti hluthafinn í Tesla.

Ferrari 360 Spider Beckhams falur
Boðinn upp á morgun í Imperial War Museum í Duxford í Bretlandi.

Heljarstökk á risatorfærubíl
Fer bæði afturábak- og áfram heljarstökk.