Veiði

Sumarið gaf 25.009 silunga

Á netaveiðitímanum í Veiðivötnum veiddust 4.715 fiskar í net og 647 fiskar á stöng, en hvort tveggja er heldur minni afli en í fyrra.

Veiði

Hrygnir nú í hundraða vís

Jóhannes hefur skilning á þessu en minnir á að urriði sem er kominn yfir 60 sentimetra og um 2,5-3 kíló innihaldi að jafnaði meira kvikasilfur en æskilegt sé með tilliti til manneldis. Fjöldi urriða í Þingvallavatni er óræð tala en hver fiskur sem fær frelsið aftur skiptir máli. Veiðimenn verða jafnframt að hafa vakandi auga með hvort veiddir fiskar eru merktir, því hver og einn slíkur skilar mikilvægum upplýsingum.

Veiði

Allt samkvæmt áætlun í Ásgarðslandi

Oddviti Grímsness- og Grafningshrepps segir ekki rétt að snurða hafa hlaupið á þráðinn varðandi sölu á Ásgarðslandinu. Lax-á muni hafa eignast veiðiréttinn í Soginu í síðasta lagi um áramót.

Veiði

Snurða á söluþráðinn í Grímsnesinu

Ásgarðsland í Grímsnesi ásamt veiðiréttindum og veiðihúsi við Sogið er enn í eigu Grímsness- og Grafninghrepps sex mánuðum eftir að sveitarstjórnin ákvað að taka hæsta tilboði í eignina

Veiði

Höfum misst stjórn á refastofninum

"Það er misjafnt hvað menn segja með gæsaveiðina í ár. Sumir bera sig vel en aðrir ekki. Í heildina held ég samt að gæsaveiðin hafi verið nokkuð góð en þetta kuldaskot sem gerði í byrjun september hafði þó töluverð áhrif," segir Elvar Árni Lund, formaður Skotveiðifélags Íslands (Skotvís).

Veiði

Heildarstangveiði 39% minni en í fyrra

Stangveiðin á nýliðnu sumri var í heild um 39% minni en á árinu 2011 og um 16% undir langtímameðaltali. Þetta kemur fram á vef Veiðimálastofnunar. Skýringa á þeirri miklu lægð sem kom fram í laxveiðinni má að stærstum hluta rekja til lélegs vaxtar í sjó sem aftur bendir til lélegra fæðuskilyrða og aukinna affalla.

Veiði

Stórlaxar á sveimi í Þverá

Þessi góða veiði samanstóð af einum ellefu punda hæng, tíu punda hrygnu auk minni laxa á bilinu fjögur til sjö pund. Ekki amarlegur haustdagur það.

Veiði

"Afspyrnu slakt"

Þorsteinn Þorsteinsson frá Skálpastöðum segir ljóst af þeim veiðitölum sem komnar séu í hús að laxveiðisumarið sé "afspyrnu slakt."

Veiði