Fréttir
292 293 294 295 296 297 298 299 300 … 334 ›
Farið yfir forgangsröðun vegna mögulegs goss Forsætisráðherra mun funda með almannavörnum um stöðuna í og við Grindavík síðar í dag. Hún segist vona að línur skýrist fyrir Grindvíkinga í næstu viku þegar von sé á að frumvarp um stuðning þeim til handa verður kynnt. Innlent 2.2.2024 12:15
Telja sig vera með skýra mynd af atburðum á Nýbýlavegi Yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að rannsókn á andláti sex ára drengs í Kópavogi miði vel. Lögreglan telji sig vera komna með skýra mynd af atburðum. Innlent 2.2.2024 11:59
Veðurstofufólk með augun límd á mælitækjum Dregið gæti til tíðinda á Reykjanesi á næstu dögum og starfsmenn Veðurstofunnar eru á sólarhringsvakt með augun límd á mælitækjum. Fyrirvarinn gæti orðið styttri en áður þar sem jarðskorpan er heit og minna brotgjörn. Innlent 2.2.2024 11:52
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um ástandið á Reykjanesskaganum en náttúruvársérfræðingur býst við enn einu gosinu á næstu dögum. Innlent 2.2.2024 11:36
Einn styður Ísrael og hinn Palestínu; báðum var sagt upp en aðeins annar endurráðinn Upp er komið áhugavert mál í Bandaríkjunum þar sem tveimur læknum var sagt upp eftir að þeir deildu færslum á samfélagsmiðlum, annar til stuðnings Ísrael og hinn til stuðnings Palestínu. Erlent 2.2.2024 10:52
Björgvin Páll eyðir óvissunni Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkmaður í handbolta, hefur tilkynnt að hann muni ekki gefa kost á sér í forsetakosningunum í sumar. Hann dreymir þó um að verða forseti, en ekki núna. Innlent 2.2.2024 10:23
Samfylkingin yfir þrjátíu prósenta múrinn Samfylkingin er enn í sókn í nýjum þjóðarpúlsi Gallup og bætir flokkurinn við sig 2,3 prósentum í fylgi. Hann mælist nú með tæplega 31 prósent fylgi. Innlent 2.2.2024 10:09
Saurmengað vatn á Seyðisfirði Íbúar á Seyðisfirði þurfa að sjóða neysluvatn tímabundið. Ástæðan er sú að upp kom bilun í gegnumlýsingu og leiddi sýnataka í ljós að saurkólí og e.coli-gerla mengun er í vatninu. Innlent 2.2.2024 09:53
Ný mislæg gatnamót í hrauninu fyrir framtíðar byggingarsvæði Gerð nýrra mislægra gatnamóta í hrauninu milli Straumsvíkur og Hvassahrauns fylgir breikkun Reykjanesbrautar, sem hófst fyrr í vetur. Gatnamótunum er ætlað að greiða leið að nýjum framtíðar byggingarsvæðum Hafnarfjarðar, að því er fram kom í fréttatilkynningu Vegagerðarinnar. Innlent 2.2.2024 09:11
Vafasamt að dómari meti hvenær barn gefi samþykki fyrir kynmökum Umboðsmaður barna hefur sent Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra bréf varðandi kynferðisbrot gegn börnum. Þar er því haldið fram að vafasamt sé að dómari leggi mat á það hvenær barn veiti samþykki fyrir kynmökum. Innlent 2.2.2024 09:10
Látnir eftir stærðarinnar gassprengingu Þrír hið minnsta eru látnir og nærri þrjú hundruð slasaðir eftir að stærðarinnar gassprenging varð í kenísku höfuðborginni Naíróbí í gærkvöldi. Erlent 2.2.2024 08:36
Dæmdur í 24 ára fangelsi fyrir að stela og leka gögnum til Wikileaks Forritari sem eitt sinn starfaði hjá CIA var í gær dæmdur í 40 ára fangelsi fyrir að stela og leka leynilegum gögnum til Wikileaks og fyrir vörslu barnaníðsefnis. Erlent 2.2.2024 08:23
Skjálftar við Djúpavatn í nótt Í nótt urðu tveir skjálftar við Djúpavatn á Reykjanesi, sá fyrri klukkan rétt rúmlega fjögur sem var 3,3 stig og sá seinni upp á 2,6 stig klukkan hálf fimm. Innlent 2.2.2024 07:52
Víðtækar verkfallsaðgerðir lama samgöngur Tugþúsundir félagsmanna þýska verkalýðsfélagsins Verdi lögðu niður störf í morgun og hafa aðgerðirnar haft mikil á almenningssamgöngur í landinu það sem af er degi. Þannig munu ferðir strætisvagna og sporvagna í landinu að stærstum hluta liggja niðri. Erlent 2.2.2024 07:36
Gagnrýndu viðmót Veðurstofunnar og sögðu sparkað í þá sem kvörtuðu Haraldur Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, segir ríkið verja töluverðum fjármunum til veðurmála en þeir fari nánast allir til Veðurstofu Íslands. Við þær aðstæður sé eðlilegt að gera ríkar kröfur til stofnunarinnar, um að hún sinni því sem hún á að sinna. Innlent 2.2.2024 07:24
Ekkert stórtjón í nótt en áfram leiðindaveður í kortunum Vatnsveðrið sem gekk yfir höfuðborgina í nótt virðist hafa sloppið til. Að sögn varðstjóra hjá Slökkviliðinu var ekkert útkall á dælubíla hjá þeim í nótt og því lítið um stórar stíflur eða mikinn leka í húsnæði. Innlent 2.2.2024 07:03
Þrjár stúlkur látnar eftir kynfæramisþyrmingu í Sierra Leone Lögregluyfirvöld í Síerra Leóne rannsaka nú dauðsföll þriggja stúlkna sem létust eftir að þær voru látna gangast undir umskurð, sem felur í sér að ytri kynfæri kvenna eru fjarlægð að öllu leyti eða að hluta til. Erlent 2.2.2024 06:56
Segja aðgerðum í Khan Younis að ljúka og beina sjónum að Rafah Ísraelsher er nú að ljúka aðgerðum sínum í Khan Younis, þar sem tekist hefur að uppræta Hamas, og mun næst beina sjónum sínum að Rafah. Erlent 2.2.2024 06:33
Dómstóll í Vín úrskurðar um flutning Fritzl Saksóknari í Austurríki hefur áfrýjað ákvörðun héraðsdómstóls í Krems í Austurríki um að flytja Josef Fritzl af réttargeðdeild í öryggisfangelsi í venjulegt fangelsi. Erlent 1.2.2024 23:22
Enginn öruggur staður eftir á Gasa „Aðstæður á Gaza eru eins og stendur hörmulegar. Líf allrar þjóðarinnar var snúið við og sett á hvolf þann 7. október,“ segir Nebal Farsakh, upplýsingafulltrúi palestínska Rauða hálfmánans á Gasa. Erlent 1.2.2024 23:19
Meint njósnadúfa frá Kína hreinsuð af sök Yfirvöld í Indlandi slepptu á þriðjudaginn dúfu eftir að hún hafði verið í haldi í átta mánuði vegna gruns um að hún væri í raun kínverskur njósnari. Eftir ítarlega rannsókn hefur komið í ljós að dúfan slapp frá eigendum sínum í Taívan. Erlent 1.2.2024 23:04
„Sumir myndu bara kalla þetta pjúra spillingu“ Bæjarfulltrúar Viðreisnar, Garðabæjarlistans og Framsóknar í Garðabæ gera alvarlegar athugasemdir við ráðningu Lúðvíks Arnar Steinarssonar lögmanns í starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs í Garðabæ. Þær segja ekki gætt að óhlutdrægni og segja Lúðvík flokksbundinn. Sá sem gegni stöðunni þurfi að vera hlutlaus. Innlent 1.2.2024 22:51
Vill losa herinn við úreltan hugsunarhátt Valerí Salúsjní, yfirmaður herafla Úkraínu, segir úkraínska herinn standa frammi fyrir miklum erfiðleikum. Þó sé hægt að komast í gegnum þá með því að endurhugsa hernaðaraðgerðir og losa herinn við úreltan hugsunarhátt og herinn þarf að sníða stakkinn eftir vexti, vegna samdráttar í hernaðaraðstoð. Erlent 1.2.2024 22:01
Gott að hreinsa vel frá niðurföllum í kvöld Seint í kvöld og nótt er spáð hlýju veðri og talsverðri rigningu, einkum á sunnanverðu landinu. Búast má við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikilvægt er að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns. Gefin hefur verið út gul viðvörun vegna veðursins. Veður 1.2.2024 21:30
Mikilvægt að undirbúa sig vel fyrir stóra skjálftann Búast má við jarðskjálftum að stærðinni um eða yfir sex á höfuðborgarsvæðinu. Fagstjóri náttúruvár segir mikilvægt að vera vel undirbúinn þegar að því kemur. Innlent 1.2.2024 20:01
Segja fyrirvara á næsta gosi við Grindavík geta orðið stuttan Jarðvísindamenn Veðurstofu og Háskóla Íslands segja að líkurnar á nýju eldgosi norðan Grindavíkur teljist núna verulegar og vara við að fyrirvarinn geti orðið stuttur. Þeir segja líklegt að á næstu tveimur vikum eða jafnvel dögum nái kvikumagnið í kvikuhólfinu undir Svartsengi svipuðu rúmmáli og var fyrir síðasta eldgos þann 14. janúar. Innlent 1.2.2024 19:53
Skoðunarferð með Sigmundi um nýtt og umdeilt húsnæði þingsins Smiðja, nýtt skrifstofuhúsnæði Alþingis hefur verið í umræðunni þessa vikuna eftir að þingmenn stigu fram og gagnrýndu aðstöðuna. Við skelltum okkur í túr um húsið í fylgd með miðflokksmanninum Sigmundi Davíð sem er líklega ósáttastur með framkvæmdina. Innlent 1.2.2024 19:40
Funda áfram á morgun en gefa ekkert upp Breiðfylking stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins og fulltrúar Samtaka atvinnulífsins komu til fundar hjá ríkissáttasemjara snemma í morgun eftir langan fund í gær. Fundi lauk um klukkan 17.30 í dag og verður haldið áfram klukkan níu á morgun. Það er þriðji fundardagur breiðfylkingarinnar og SA. Innlent 1.2.2024 19:38
Beitir landtökumenn refsiaðgerðum Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, gaf í dag út tilskipun og beitti fjóra ísraelska landtökumenn á Vesturbakkanum sem hafa ráðist á Palestínumenn refsiaðgerðum. Hægt er að breyta tilskipuninni gegn fleiri landtökumönnum í framtíðinni en refsiaðgerðirnar fela meðal annars í sér að fólkið getur ekki átt í viðskiptum við bandarísk fyrirtæki og getur ekki ferðast til Bandaríkjanna. Erlent 1.2.2024 19:00
Í leyfi frá löggæslustörfum: „Hef líka skyldur gagnvart sveitarfélaginu mínu“ Hjálmar Hallgrímsson, lögreglumaður og formaður bæjarráðs í Grindavík, er í leyfi frá löggæslustörfum og hefur verið það í á þriðju viku. Það staðfestir hann í samtali við fréttastofu. Innlent 1.2.2024 18:50