Fréttir

Yazan mjög verkjaður og faðir hans brákaður
Kristbjörg Arna Elínudóttir Þorvaldsdóttir aðstoðarkona Yazans hitti hann og fjölskyldu hans í gær. Hún er ein þeirra sem mótmælir fyrir utan fund ríkisstjórnarinnar á Hverfisgötu. Hún segir Yazan þreyttan eftir að hafa setið í hjólastól í sjö tíma í gær og faðir hans brákaðan eftir aðgerðir lögreglu.

Verður kanslaraefni Kristilegra demókrata
Kristilegir demókratar í Þýskalandi hafa ákveðið að Friedrich Merz, formaður CDU, verði kanslaraefni flokkanna í þingkosningum sem fram fram í Þýskalandi á næsta ári. Líklegt þykir að hann muni þar keppast um kanslaraembættið við núverandi kanslara, Olaf Scholz.

„Við viljum þetta ekki“
Mótmælendur á Hverfisgötu segja kröfu sína einfalda. Að Yazan og fjölskylda hans fái að vera á Íslandi. Það verði rof á þjónustu með brottflutningi til Spánar sem geti stytt ævi hans. Mótmælt hefur verið fyrir utan ríkisstjórnarinnar frá því klukkan átta í morgun.

Notuðu sönginn til að mótmæla vegna Yazan
Nokkur hundruð manns eru saman komin við Hverfisgötu í miðbæ Reykjavík fyrir utan skrifstofur forsætisráðuneytisins þar sem ríkisstjórnin situr á reglubundnum þriðjudagsfundi sínum.

„Ég er nauðgari eins og hinir mennirnir hér inni“
Dominique Pelicot, sem byrlaði eiginkonu sinni Gisele ólyfjan og fékk tugi manna til að nauðga henni yfir tíu ára tímabil, bar vitni í réttarhöldunum gegn honum og hinum mönnunum í dag. Þar viðurkenndi hann að hafa nauðgað konu sinni og ítrekaði að hann og hinir fimmtíu mennirnir sem hefðu verið ákærðir í salnum væru nauðgarar.

Leitin að Illes bar ekki árangur í nótt
Leitin að Illes Benedek Incze sem hófst í gærkvöldi á svæðinu í kringum Vík í Mýrdal hefur enn engan árangur borið.

Hundruð mótmæla brottvísun Yazan
Um tvö hundrað manns mótmæla fyrirhuguðum brottflutningi Yazan Tamini, ellefu ára langveiks drengs frá Palestínu, við Hverfisgötu. Ríkisstjórnin fundar þar núna í morgunsárið á sínum reglulega þriðjudagsfundi og er mál Yazans eitt þeirra sem er á dagskrá fundarins. Búið er að loka Hverfisgötunni við Lækjargötu vegna mótmælanna.

Blóðug barátta um yfirráð yfir Sinaloa-samtökunum
Andrés Manuel López Obrador, forseti Mexíkó, biðlaði á dögunum til leiðtoga Sinaloa-samtakanna, sem berjast nú um yfirráð yfir glæpasamtökunum alræmdu, og bað þá um að sýna ábyrgð. Umfangsmikil ofbeldisalda hefur leikið Culiacan, höfuðborg Sinaloa-héraðsins, grátt á undanförnum dögum.

Lífvarðaþjónustan segist meðvituð um tíst Musk um Biden og Harris
Talsmenn Lífvarðaþjónustu Bandaríkjanna (e. Secret Service) segjast meðvitaðir um færslu sem frumkvöðullinn og athafnamaðurinn Elon Musk birti á X, þar sem hann vakti athygli á því að enginn væri að reyna að ráða Joe Biden og Kamölu Harris af dögum.

Næsta lægð nálgast úr suðvestri
Veðurstofan gerir ráð fyrir vestlægri átt í dag, fimm til þrettán metrum á sekúndu, og er spáð björtu og fremur hlýju veðri á Norðaustur- og Austurlandi, en að verði skýjað og sums staðar smávæta í öðrum landshlutum.

Flóð í Evrópu og Mjanmar og gróðureldar í Portúgal
Tala látinna í flóðunum í austanverðri Evrópu heldur áfram að hækka en í gær bættust fjögur dauðsföll á listann í Póllandi, þrjú í Tékklandi og eitt í Rúmeníu. Fjölda fólks er einnig saknað en staðfest tala látinna er nú komin upp í sextán manns.

Ákærur gefnar út og Sean Combs handtekinn í New York
Tónlistar- og athafnamaðurinn Sean Combs, betur þekktur sem Diddy eða Puff Daddy, var handtekinn á Manhattan í New York í gærkvöldi eftir að ákærur voru gefnar út á hendur honum.

Sigríður áfram ríkislögreglustjóri
Staða ríkislögreglustjóra verður ekki auglýst, samkvæmt svörum dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn Morgunblaðsins en í gær voru sex mánuðir þar til skipunartími Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur rennur út.

Viðurkennir að hafa ekki haft heimild til að stíga inn
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra kveðst ekki hafa haft lagaheimild til þess að stíga inn í mál Yazans Tamimi, ellefu ára langveiks drengs frá Palestínu, sem til stóð að vísa úr landi í morgun. Frá því var horfið þegar Guðrún fyrirskipaði að brottvísun hans yrði frestað, að ósk Guðmundar Inga Guðbrandssonar félagsmálaráðherra.

Litið til hæðarmunar og eiginkonan fyrrverandi sýknuð
Kona hefur verið sýknuð af ákæru um ofbeldi gagnvart fyrrverandi eiginmanni sínum. Litið var til hæðarmunar þeirra tveggja við aðalmeðferð og ekki talið hafið yfir allan vafa að hún hafi valdið þeim áverkum sem á honum voru.

Leita að Illes Benedek Incze í leiðindaveðri í Vík
Maðurinn sem leitað er að í Vík og nágrenni heitir Illes Benedek Incze og er búsettur í bænum. Síðast sást til Illes klukkan þrjú síðastliðna nótt en lögreglan á Suðurlandi leggur mikla áherslu á leitina vegna leiðindaveðurs sem er á svæðinu.

Leita manns við Vík í Mýrdal
Björgunarsveitir eru að hefja leit að manni við Vík í Mýrdal. Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar í samtali við fréttastofu.

Samstarfið við Braathen bjó til Loftleiðaævintýrið
Samstarf Loftleiðamanna við flugfélag norska skipakóngsins Ludvigs Braathen var í raun byrjunin á Loftleiðaævintýrinu, að mati barna Alfreðs Elíassonar, stofnanda Loftleiða. Þetta kom fram í þættinum Flugþjóðin.

„Við berum ekki þeirra sorg“
Þegar þjóðarsálin upplifir hvert áfallið á fætur öðru á það til að gerast að sumir dofni og sýni sinnuleysi en aðrir upplifa rosalega sterkar tilfinningar.

Bjóst ekki við því að þurfa á svartri vinnu að halda í ellinni
„Þetta er helvíti skítt,“ segir Þröstur Guðlaugsson 69 ára ellilífeyrisþegi um fjárhagsstöðu sína. Hann missti vinnuna í Covid, fór á ellilífeyri og þarf nú að lifa mánuðinn af á um það bil 140 þúsund krónum. Hann hefur því prófað að leita sér að svartri vinnu.

Hefur verið með kindur í Reykjavík í 67 ár
Þrjár konur eru fjallkóngar í smölun og réttum í Grímsnes- og Grafningshreppi enda segir ein af konunum að það smalist miklu betur þegar konur stýra leitum og réttum. Fjárbóndi í Reykjavík, sem hefur verið með kindur í höfuðborginni frá 1957 sótti sitt fé í Grafningsrétt í morgun.

Furða sig á harkalegum aðgerðum yfirvalda
Faðir langveiks drengs frá Palestínu sem var vísað af landi brott í gærkvöldi segir fjölskylduna skelfingu lostna eftir harkalegar aðgerðir lögreglu. Sonur hans hafi ásamt móður verið handtekinn á sjúkrabeði. Þá hafi hann meiðst þegar menn með lambúshettur brutust inn til hans í nótt og handtóku.

Harmleikur á Krýsuvíkurvegi og harkalegar aðgerðir lögreglu
Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald grunaður um að hafa banað tíu ára gamalli dóttur sinni um kvöldmatarleytið í gær. Rætt verður við Grím Grímsson, yfirlögregluþjón hjá miðlægri rannsóknardeild, í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Vilja ná tali af manni sem ekki hefur spurst til síðan í ágúst
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Said Khakim, en hún þarf nauðsynlega að ná tali af honum.

Landspítalinn telur heimildir lögreglu ekki hafnar yfir allan vafa
Landspítalinn telur aðgerðir lögreglu á spítalanum varpa ljósi á mikilvægi þess að skýra hvaða heimildir stjórnvöld hafi til að fara inn á sjúkrastofnanir og sækja þangað veika einstaklinga til brottflutnings úr landi.

Faðirinn hafi beint lögreglu að stúlkunni
Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri sem er grunaður um að hafa orðið tíu ára dóttur sinni að bana hefur verið samvinnufús að mati Gríms Grímssonar, yfirlögregluþjóns hjá miðlægri rannsóknardeildar lögreglu.

Ákvörðunin um brottflutning Yazan stendur
Dómsmálaráðherra segir að ákvörðun um brottvísun Yazans Tamimi og fjölskyldu hans standi, þrátt fyrir að henni hafi verið frestað að beiðni félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Herforingi kallar eftir innrás í Líbanon
Yoav Gallant, varnarmálaráðherra Ísrael, segir tímann á þrotum þegar kemur að því að koma í veg fyrir átök milli Ísrael og Hezbollah í sunnanverðu Líbanon. Ori Gordin, yfirmaður herafla Ísrael í norðri, hefur kallað eftir því að fá grænt ljós á innrás í Líbanon.

Faðirinn handtekinn meðan leitað var að tíu ára stúlkunni
Íslenskur karlmaður á miðjum fimmtugsaldri sem er grunaður um að hafa orðið tíu ára dóttur sinni að bana var óljós um bæði atvik og staðsetningu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna útaf málinu. Þegar lögregla kom á vettvang handtók hún manninn og leitaði stúlkunnar sem fannst skammt frá.

Þriðja manndrápsmálið á árinu þar sem barn lætur lífið
Íslenskur maður var handtekinn í Krýsuvík í gærkvöldi, grunaður um að hafa orðið dóttur sinni að bana. Um er að ræða sjötta manndrápsmálið hér á landi í ár, og það þriðja þar sem barn lætur lífið.