Fréttir

Kaupa tilbúinn mat á meðan E.coli sýkingin er til rannsóknar
Leikskólinn Mánagarður í Vesturbæ Reykjavíkur er enn lokaður eftir að upp kom E.coli sýking á leikskólanum í síðustu viku. Leikskólastjóri segir það koma í ljós síðar í dag hvort hægt sé að opna í vikunni. Hún ætlar að kaupa tilbúinn mat á meðan málið er til rannsóknar.

Glóðvolg Maskínukönnun kynnt í hádegisfréttum Bylgjunnar
Í hádegisfrétum fjöllum við um glænýja fylgiskönnun sem Maskína gerði fyrir fréttastofuna en lokið var við gerð hennar nú rétt fyrir hádegið.

Bæjarstjóri austurrísks bæjar skotinn til bana
Óþekktur byssumaður er sagður hafa skotið tvo menn til bana, þar á meðal bæjarstjóra austurrísks smábæjar í morgun. Morðinginn gengur enn laus og reyna þungvopnaðir lögreglumenn nú að elta hann uppi.

Falla tímabundið frá ákæru fyrir tilraun til manndráps
Héraðssaksóknari féll í morgun tímabundið frá ákæru um tilraun til manndráps sem átti að vera tekin fyrir í stóra fíkniefnamálinu svokallaða. Ákæran er á hendur einum af hinum grunuðu sem var gefið að sök að taka mann kyrkingartaki í sjö mínútur. Meint tilraun til manndráps tengist málinu ekki að öðru leyti.

Rekja stuld á korti af Ísrael úr Seltjarnarneskirkju til átakanna
Óþekktur einstaklingur tók upphleypt kort af Ísrael ófrjálsri hendi úr anddyri Seltjarnarneskirkju í síðustu viku. Prestur þar tengir stuldinn við umfjöllun um Ísrael og átök þess við Palestínumenn.

Þrjú börn á gjörgæslu vegna E.coli sýkingar
Alls eru nú 42 börn undir eftirlit á Landspítalanum vegna E. Coli sýkingar sem kom upp á leikskólanum Mánagarði í síðustu viku. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum eru 11 af þeim inniliggjandi og þrjú þeirra á gjörgæslu alvarlega veik.

„Getum við verið sammála um að vera ósammála?“
„Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja með þetta. Ég allavega neita sök í þessu og hef ekki vitneskju um þessi fíkniefni,“ sagði Jón Ingi Sveinsson, grunaður höfuðpaur í umfangsmiku fíkniefnamáli, í upphafi aðalmeðferðar málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Grímur, Halla Hrund, Jens Garðar og Víðir mæta í Pallborðið
Framboðslistar stjórnmálaflokkanna eru komnir fram hjá fimm stjórnmálaflokkum í öllum kjördæmum fyrir komandi alþingiskosningar. Tólf framboð eru að safna meðmælum fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember. Fjölmargir þjóðkunnir einstaklingar hafa þegar stigið fram og taka sæti á listum flokkanna. Þá eru kosningamaskínur flokkanna komnar í fullan gang.

Þröng á þingi í umfangsmiklu fíkniefnamáli
Það er þröng á þingi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag þar sem aðalmeðferð í stóra fíkniefnamálinu svokallaða fer fram. Átján eru talin tengjast þaulskipulögðum innflutningi á fíkniefnum til landsins með skemmtiferðaskipum. Verjandi fylgir hverjum sakborningi, blaðamenn eru þónokkrir og vegna fjöldans er aðalmeðferðinni streymt í annan dómsal.

„Það var ekkert eftir nema dauðinn sem kom á ógnarhraða“
Anton Sveinn McKee segir dauða föður síns hafa gjörbreytt lífi sínu og sýn sinni á tilveruna. Anton, sem er gestur í nýjasta þætti podcasts Sölva Tryggvasonar, segist hafa þurft að kafa djúpt til að finna aftur vonarneistann, en hann er sannfærður um að það sé undir okkur sjálfum komið að finna fegurðina í tilverunnni, sama hvað bjátar á.

Vannærð og veik af áfengisneyslu eftir vetursetu í Evrópu
Anna Björg Jónsdóttir, öldrunarlæknir á Landspítalanum, segir áfengissýki ört stækkandi vandamál hjá öldruðum. Það hafi víðtæk áhrif á fólk og aðstandendur. Sumir hafi glímt við þetta alla ævi en aðrir leiðist út í aukna neyslu áfengis á eldri árum. Anna Björg fór yfir þetta í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Áhöfn smábáts sem strandaði hífð upp í þyrlu
Tveir menn sem voru um borð í smábát sem strandaði í utanverðum Súgandafirði í morgun voru hífðir upp í þyrlu Landhelgisgæslunnar og fluttir til Suðureyrar í morgun. Báturinn situr enn fastur á strandstaðnum.

Jafnaðarmenn í Litháen unnu sigur
Jafnaðarmannaflokkurinn í Litháen, sem hefur verið í stjórnarandstöðu síðustu ár, hlaut flest atkvæði í þingkosningunum sem fram fóru þar í landi í gær. Kristilegir demókratar, með formanninn Gabrielius Landsbergis í broddi fylkingar, hefur viðurkennt ósigur.

Vara eindregið við mengun frá gashelluborðum
Mengun frá gashellum er sögð draga 40 þúsund Evrópubúa til dauða á hverju ári, eða tvisvar sinnum fleiri en þá sem deyja í umferðarslysum.

Japanska ríkisstjórnin missti meirihluta sinn
Samsteypustjórn Shigeru Ishiba, forsætisráðherra Japans, missti meirihluta sinn í þingkosningum sem fóru fram um helgina. Úrslitin eru sögð skapa óvissu í japönskum stjórnmálum þrátt fyrir að ólíklegt sé talið að stjórnarskipti verði.

Vill hvorki gera meira né minna úr árásunum en ástæða er til
Ayatollah Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Íran, sagði í gær að það bæri hvorki að gera meira né minna úr árásum Ísrael á föstudag en ástæða væri til. Orð hans þykja benda til þess að alvarleg stigmögnun sé ekki yfirvofandi eins og stendur.

Þrír fluttir á sjúkrahús eftir þriggja bíla árekstur við álverið
Þrír hafa verið fluttir á bráðamóttöku Landspítalans eftir að þriggja bíla árekstur varð á Reykjanesbraut við álverið í Straumsvík í Hafnarfirði um klukkan 7:20 í morgun.

Orðljótir stuðningsmenn Trump létu gamminn geisa í New York
Púertó Ríkó er „fljótandi ruslaeyja“, gyðingar nískir og Palestínumenn grjótkastarar. Þá er Kamala Harris and-Kristur og vændiskona. Þetta er meðal þess sem kom fram á kosningafundi Donald Trump í Madison Square Garden í gærkvöldi.

Lægð nálgast úr suðvestri
Lægð nálgast nú úr suðvestri og gengur því í sunnan átta til fimmtán metra á sekúndu í dag með rigningu eða slyddu, en þurrt að kalla austanlands fram eftir degi.

Einn fluttur á bráðamóttöku eftir slagsmál
Einn var fluttur á bráðamóttöku til aðhlynningar eftir slagsmál í póstnúmerinu 111 í gærkvöldi eða nótt. Þá var tilkynnt um umferðaróhapp í 109 en engin slys urðu á fólki.

Í blóma lífsins þegar hann lést í Fnjóská
Fimmtíu strákar um tvítugt mættu í hamborgaraveislu í Giljahverfinu á Akureyri laugardaginn 15. júní í sumar. Stemmningin var ekki eins og ætla mætti í tvítugsafmæli á laugardegi sökum fjarveru afmælisbarnsins sem lést í hörmulegu slysi tveimur vikum fyrr. Vinamargs gleðigjafa var sárt saknað og er enn.

Líkamsleifar manns úr Sverris sögu frá 1197 fundnar
Í Sverris sögu, einni af konungasögunum, frá 1197 segir að manni hafi verið fleygt niður brunn við Sverrisborg kastala utan við Niðarós, sem er í dag Þrándheimur. Núna, meira en 800 árum síðar telja vísindamenn að þeir hafi fundið líkamsleifar umrædds manns.

Þingmanni vikið úr Verkamannaflokknum eftir líkamsárás
Mike Amesbury, þingmanni Verkamannaflokksins í Bretlandi, hefur verið vikið úr flokknum eftir að myndskeið af honum að berja mann með þeim afleiðingum að hann féll í götuna hafa farið í dreifingu á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum.

„Ef ég væri kóngur myndi ég heita Valtýr sautjándi“
„Ef ég væri kóngur myndi ég heita Valtýr sautjándi,“ segir Valtýr Þór Hreiðarsson rekstrarhagfræðingur í samtali við Vísi en hann hefur skipað sautjánda sæti á lista Viðreisnar í Norðausturkjördæmi fyrir síðustu þrjár alþingiskosningar og eru alþingiskosningarnar þann 30. nóvember engin undantekning frá því.

Gömul sár opnuð á ný og stofnar stuðningshóp
„Dóttir mín var þá tveggja að verða þriggja ára og fékk allan pakkann og vorum við rúmlega mánuð á spítalanum áður en hún fékk að fara heim, en var alls ekki fullfrísk og er ekki fimm árum seinna. Okkur langar svo að geta gefið af okkur til aðstandenda og veitt stuðning svo við ákváðum að stofna vettvang þar sem aðstandendur geti leitað stuðnings og fengið upplýsingar.“

Aukin netöryggisógn, götulokanir og vopnuð lögregla á Íslandi næstu daga
Aukin netöryggisógn beinist að Íslandi í tengslum við Norðurlandaráðsþing sem hefst á morgun. Viðbúnaðarstig lögreglu verður hækkað og verður mikill öryggisviðbúnaður og götulokanir á afmörkuðum svæðum. Úkraínuforseti verður meðal gesta sem kallar á aukinn viðbúnað.

Reykvíkingur ársins leiðir listann ásamt Ragnari
Marta Wieczorek, grunnskólakennari og Reykvíkingur ársins 2024, mun skipa annað sæti á lista Flokks fólksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. Björn Þorláksson blaðamaður og rithöfundur skipar þriðja sæti listans fyrir þingkosningarnar 30. nóvember næstkomandi. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, leiðir listann.

Sjá mikil batamerki eftir háþrýstimeðferð
Konur sem voru orðnar vondaufar um að ná nokkrum bata eftir erfið veikindi segja að meðferð í háþrýstiklefa hafi gefið þeim nýja von. Þær geti nú í fyrsta skipti í langan tíma sinnt fjölskyldu sinni og tekið þátt í lífinu. Þó meðferðin sé ekkert kraftaverk sé ótrúlegt að finna breytingarnar eftir hana.

Treystir Bjarna betur en öðrum forystumönnum
„Varðandi forystu Sjálfstæðisflokksins, ég treysti Bjarna Benediktssyni miklu betur en forystumönnum hinna flokkanna. Jú jú ég veit alveg að ég bauð mig fram á landsfundi og sé ekkert eftir því en það breytir engu um það að ef ég á að velja hér einstakling til þess að leiða ríkisstjórn þá vel ég Bjarna án nokkurs vafa.“

Undirbúningur fyrir Norðurlandaráðsþing og úrslitaleikur í Bestu deildinni
Undirbúningur fyrir Norðurlandaráðsþing er í fullum gangi og verða til að mynda víðtækar götulokanir í miðborg Reykjavíkur frá morgundeginum og fram á miðvikudag. Úkraínuforseti verður meðal gesta sem kallar á aukinn viðbúnað.