Fréttir

Rutte tekur við af Stoltenberg
Hinn norski Jens Stoltenberg mun láta af embætti framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, NATO, í dag eftir tíu ár í embætti. Mark Rutte, fyrrverandi forsætisráðherra Hollands, tekur við stöðunni.

Fluttur á sjúkrahús eftir hópslagsmál
Einn var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans til aðhlynningar eftir að tilkynnt var um hópslagsmál í hverfi 105 í Reykjavík.

Bein útsending: Assange lætur í sér heyra
Julian Assange ávarpar laga- og mannréttindanefnd Evrópuráðsins klukkan hálf sjö að íslenskum tíma. Þetta er í fyrsta sinn sem hann kemur opinberlega fram síðan hann var fangelsaður fyrir fimm árum.

Umdeild sameining sánuklefa: „Mér finnst allir vera óánægðir með þetta“
Vesturbæingar eru margir ósáttir með sameiningu sánuklefa karla og kvenna í Vesturbæjarlauginni. Einhverjar segja að verið sé að fæla fastagesti í burtu. Aðrir telja breytinguna til bóta í ljósi þess að innrauð sána komi í stað gömlu karlasánunnar.

Ísraelsher ræðst inn í Líbanon
Ísraelsher hefur sent hermenn inn í Líbanon og lokað þar af ýmis svæði. Herinn segir áhlaupin beinast gegn hernaðarmannvirkjum Hezbollah í nokkrum þorpum nærri landamærunum.

Flugfreyjan frestaði íbúðakaupum og fórnaði sparnaðinum í flugnám
Hún var orðin flugfreyja, sá svo að hún gæti allt eins orðið flugmaður og fórnaði húsnæðissparnaðinum í flugnám. Núna stýrir hún stærstu þotum íslenska flugflotans.

Bjóða upp á sértíma í líkamsrækt fyrir trans og kynsegin fólk
Hópur trans fólks, kynsegin, og fólks sem er að máta kynvitund sína stundar vikulega líkamsrækt saman á æfingastöð sem býður upp á búningsklefa fyrir öll kyn. Tilgangurinn með hóptímunum er að búa til öruggt rými fyrir hópana til að hreyfa sig og styrkja sig líkamlega.

Ólafur Ragnar um Davíð Oddsson: „Hugsar og hegðar sér eins og fasisti“
„Atburðarásin [hefur] verið ótrúleg - og óþörf ef Davíð Oddsson og ríkisstjórnin hefðu viljað taka skynsamlega á málum. Heiftin og löngunin til að sýna valdið hefur knúið hann áfram og svo ógnar hann öllum öðrum í sínu liði.“

Flogið yfir Goðabungu eftir stóra skjálftann
Jarðskjálfti að stærð 3,7 reið yfir í Mýrdalsjökli snemma í morgun. Skjálftinn átti upptök sín um 6,4 kílómetra norðaustur af Goðabungu og er sá stærsti sem mælst hefur í jöklinum á þessu ári.

Fundi frestað til morgundags: „Það kostar að vera með fólk í vinnu“
Fundi samninganefndar Eflingar og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu hefur verið frestað fram til morgundags. Formaður Eflingar segir að ef mönnunarmódelið verði lagað þá muni félagið ekki láta önnur atriði koma í veg fyrir samninga.

Ræðismaður segir mikinn baráttuanda í Úkraínumönnum
Ræðismaður Íslands í Úkraínu segir að Úkraínumenn muni berjast gegn innrás Rússa þar til landið hljóti fullt frelsi á ný. Stuðningur Íslands við landið væri mjög mikilvægur.

Gríðarlega umfangsmikið matskerfi á leið inn í skólakerfið
Það er neyðarástand í skólakerfinu vegna þess að hætt var að nota samræmd próf sem viðmiðun fyrir fimmtán árum. Þetta er mat Viðskiptaráðs sem vill taka upp samræmd próf á ný. Menntamálaráðherra segir að nýtt matskerfi verði tekið upp næsta skólaár. Kennarasambandið styður nýja kerfið heilshugar.

„Töluverður og alvarlegur“ misbrestur við vinnslu mála
Brotið var ítrekað gegn málsmeðferðarreglum barnaverndarlaga hjá barnaverndarþjónustu Borgarbyggðar, leiðbeiningar til starfsfólks skorti, verkferlar voru óskýrir og samskipti við aðila mála voru ekki í samræmi við lög og reglugerðir.

Heimila íshellaferðir á ný
Íshellaferðir í Vatnajökulsþjóðgarði verða leyfðar á ný frá og með morgundeginum að uppfylltum nýjum öryggiskröfum. Hlé var gert á slíkum ferðum eftir að bandarískur ferðamaður lést þegar ísveggur hrundi á hann í slíkri ferð í sumar.

Bylting í skólakerfinu og flugfreyja sem eyddi húsnæðissparnaðinum í flugnám
Menntamálaráðherra boðar nýtt og gríðarumfangsmikið matskerfi, sem taka á upp í grunnskólum á næsta skólaári. Kennarasambandið styður nýja kerfið heilshugar. Viðskiptaráð segir einfalt að gera breytingar á kerfinu, það þurfi að taka upp samræmd próf á ný.

JL húsið verður búsetuúrræði fyrir flóttafólk
Vinnumálastofnun og forsvarsmenn HB121 ehf., nýs eiganda JL hússins, hafa náð samkomulagi um að stór hluti húsnæðisins verði nýttur til að hýsa gistirými fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.

Eyvindur settur landsréttardómari
Dómsmálaráðherra hefur sett Eyvind G. Gunnarsson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, í embætti dómara við Landsrétt frá og með 1. október 2024 til og með 28. febrúar 2029.

Nýtt björgunarskip komið til landsins
Björg, nýtt björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, var hífð frá borði Brúarfoss, skipi Eimskipafélagsins í Sundahöfn í um hádegi í dag. Björg mun leysa af hólmi skip með sama nafni á Rifi á Snæfellsnesi, sem er orðið 38 ára gamalt.

Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun
Herforingi í flugher Bandaríkjanna segir rússneska flugmenn hafa hagað sér mjög ófagmannlega þegar bandarískir flugmenn flugu að fjórum rússneskum herflugvélum nærri Alasaka. Flugvélarnar fjórar sáust á ratsjám þann 23. september og voru flugmenn sendir til móts við þær.

Nýkjörinn formaðurinn hættur og varamenn fá atkvæðisrétt
Halldór Auðar Svansson, sem kjörinn var formaður framkvæmdastjórnar Pírata á aðalfundi flokksins þann 7. september, hefur stigið til hliðar sem formaður. Framkvæmdastjórn flokksins hefur sett sér vinnureglu sem veitir varamönnum í stjórninni jafnan atkvæðisrétt og aðalmenn.

Færri ferðamenn þýðir lægri dagpeningar ríkisstarfsmanna
Dagpeningar til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins lækka frá því sem var í vor. Ástæðan er árstíðarsveifla í kostnaði gistingar hér á landi.

„Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu
Neyðarástand ríkir víða í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum eftir að fellibylurinn Helena olli þar „fordæmalausum“ hörmungum. Úrhellið sem fylgdi Helenu olli þar stórum skyndiflóðum og aurskriðum og eru minnst 37 dánir en búist er við að talan muni hækka enn frekar.

Ökumaður bakkaði á barn á Ísafirði
Lögreglan á Vestfjörðum óskar eftir vitnum að atviki þar sem maður bakkaði bíl á barn. Jafnframt vill lögreglan ná tali af manninum sem var að keyra silfurlituðum fólksbíl.

Lilja í uppáhaldi eftir að hún húðskammaði Arnar
Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri og nýr meðlimur Viðreisnar, og Arnar Þór Jónsson, stofnandi Lýðræðisflokksins, nefndu báðir Lilju Alfreðsdóttur þegar þeir voru spurðir út í hver væri þeirra uppáhaldsþingmaður í Pallborðinu á Vísi í dag.

Vita ekki hvernig Rússar skilgreina gildi sín
Utanríkisráðuneytið segir íslensk stjórnvöld ekki hafa neina leið til þess að greina hvernig rússnesk stjórnvöld kjósa að skilgreina siðferðisleg og andleg gildi þjóðar sinnar. Ísland er á lista ríkja sem Rússar telja að hafi viðhorf sem stangist á við gildi sín.

Tveir teknir með þýfi á leið í Norrænu
Þrír sitja nú í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á innbrotum í verslanir Elko í byrjun síðustu viku. Tveir þeirra voru handteknir þegar þeir voru á leið í Norrænu með hluta þýfisins. Þremur hefur þegar verið sleppt úr haldi.

Fundur sem ræður úrslitum hafinn
Fundur samninganefnda Eflingar og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, SFV, hófst laust eftir klukkan 13. Nái aðilar ekki saman á fundinum mun Efling hefja verkfallsaðgerðir á hjúkrunarheimilum.

Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar
Naim Kassem, næstráðandi í Hezbollah samtökunum, hét því í ávarpi í morgun að berjast áfram gegn Ísrael. Þá sagði hann samtökin tilbúin til langvarandi átaka, þrátt fyrir að margir af æðstu leiðtogum Hezbollah hafi verið felldir af Ísraelum.

Neituðu að hafa smyglað tuttugu milljónum sígaretta
Tveir sakborninga í máli sem varðar tollalagabrot upp á 741 milljón króna og innflutning á um einni milljón pakka af sígarettum neita sök. Einn sakborninga var erlendis þegar málið var þingfest í morgun og tekur afstöðu til sakarefnis síðar.

Hámhorfa Netflix og hanga í síma en gleyma börnunum
Móðir þriggja barna átta ára og yngri segir foreldra verða að fræða sig um uppeldi barna og skólastarf. Hafi þeir tíma til að hámhorfa hverja Netflix-seríuna á fætur annarri þá sé sannarlega tími til að sinna börnunum. Skólastjóri minnir á að hegðunarvandamál barna sé á ábyrgð foreldra þó dæmi séu um að reynt sé að koma þeim á þungar herðar kennara.