Fréttir

Hringi viðvörunarbjöllum þegar of auðvelt sé að taka lán
Eftirlit með neytendalánum er á herðum of margra og hafa stjórnvöld því ekki hugmynd um umfang markaðarins. Þetta segir formaður Neytendasamtakanna sem hvetur fólk til að gjalda varhug við slíkum lánum. Aðgengi að þeim sé mun betra en í ríkjunum í kringum okkur og starfsemin auglýst grimmt.

Íslensku þjóðinni ofbjóði ástandið
Ísland mun greiða framlög til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna fyrr en áætlað var og segir utanríkisráðherra öruggt að alvarleg brot á alþjóðalögum hafi verið framin í Gaza. Ekki sé hægt að skera úr um hvort um þjóðarmorð sé að ræða nema fyrir alþjóðadómstólum.

Óvænt gagnsókn Úkraínumanna og lánamál í ólestri
Eftirlit með neytendalánum er á herðum of margra og hafa stjórnvöld því ekki hugmynd um umfang markaðarins. Þetta segir formaður Neytendasamtakanna sem hvetur fólk til að gjalda varhug við slíkum lánum. Aðgengi að þeim sé mun betra en í ríkjunum í kringum okkur og starfsemin auglýst grimmt. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Trump ósáttur að flaggað verði í hálfa við innsetninguna
Donald Trump, nýkjörin forseti Bandaríkjanna, kvartaði yfir því á föstudaginn að enn þá verði flaggað í hálfa stöng við Hvíta húsið til heiðurs Jimmy Carter, fyrrverandi forseta, daginn sem innsetningarathöfn Trumps í embætti fer fram 20. janúar.

Alvarlegt að horfa framhjá birtuleysi við þéttingu byggðar
Íbúi í Hlíðarendahverfi í Reykjavík hefur áhyggjur af því að fyrirhugað fimm hæða hús í hverfinu verði til þess að aðrar íbúðir verði í skugga allan ársins hring. Umhverfissálfræðingur segir birtuleysi hafa gríðarleg áhrif á fólk.

Skyndileg árás Úkraínu hafi komið Rússum í opna skjöldu
Úkraínski herinn hóf í dag skyndilega gagnsókn enn lengra inn í Kúrskhérað í Rússlandi sem kom rússneskum yfirvöldum í opna skjöldu samkvæmt talsmönnum stjórnvalda í Úkraínu og rússneskum stríðsbloggurum.

1166 ára gömul systkini frá Kjóastöðum og öll á lífi
Elstu núlifandi systkini landsins eru systkinin sextán frá Kjóastöðum í Biskupstungum í Bláskógabyggð en þau eru samtals 1166 ára gömul. Elsta systkinið er 83 ára og það yngsta 58 ára.

Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur við Sprengisand
Tveir voru fluttir með sjúkrabíl á slysadeild eftir tveggja bíla árekstur við gatnamót Bústaðarvegar og Reykjanesbrautar í Reykjavík.

„Var lifandi og skemmtilegur en ömurlegt hvernig fór“
Jónas Björn Sigurgeirsson, bókaútgefandi og eiginmaður Rósu Guðbjartsdóttur þingmanns Sjálfstæðisflokksins, segir Edward Pettifer sem lést í hryðjuverkaárásinni í New Orleans á nýársdag hafa verið einstaklega skemmtilegan mann með frábært skopskyn.

Vill efla vöktun og innviði vegna kerfisins sem er að vakna
Sveitarstjóri í Borgarbyggð segir nauðsynlegt að efla þar vöktun og tryggja innviði í ljósi jarðhræringa í Ljósufjallakerfi síðustu daga. Borgarbyggð sé víðfemt og fjölfarið sveitarfélag, þar sem fjarskiptasambandi sé til að mynda víða ábótavant. Nýjar þrívíddarmyndir veita innsýn í dýpt og dreifingu jarðskjálfta á svæðinu síðasta árið.

Skapa eigi skattalegar ívilnanir fyrir fólk og verktakafyrirtæki
Prófessor í hagfræði leggur til fyrir nýja ríkisstjórn að veita fólki sem vill hafa vaðið fyrir neðan sig og vertakafyrirtækjum í byggingargeiranum skattalegar ívilnanir til að ná enn frekari tökum á verðbólgunni og vöxtum.

Jarðhræringar í Borgarbyggð og elsti systkinahópur landsins
Sveitarstjóri í Borgarbyggð segir nauðsynlegt að efla þar vöktun og tryggja innviði í ljósi jarðhræringa í Ljósufallakerfi síðustu daga. Borgarbyggð sé víðfemt og fjölfarið sveitarfélag, þar sem fjarskiptasambandi sé til að mynda víða ábótavant. Nýjar þrívíddarmyndir veita innsýn í dýpt og dreifingu jarðskjálfta á svæðinu síðasta árið.

Aðstoðar Ingu eftir viðkomu í Sjálfstæðisflokknum, Viðreisn og JP Morgan
Sigurjón Arnórsson og Hreiðar Ingi Eðvarðsson verða aðstoðarmenn Ingu Sæland sem tók nýverið við sem félags- og húsnæðismálaráðherra. Inga leitaði ekki langt eftir aðstoð en báðir hafa starfað náið með henni í Flokki fólksins um nokkurt skeið.

Glitský prýddu himin höfuðborgarbúa í morgunsárið
Stærðarinnar glitský blöstu við borgarbúum á himni er þeir nudduðu stýrurnar úr augunum í morgunsárið. Ljósmyndari Vísis lét ekki spyrja sig tvisvar heldur nældi sér í nokkrar frábærar myndir af þessari fögru sjón.

Keyptu risa túnfisk á 1,3 milljónir dala fyrir sushi-gerð
Risavaxinn túnfiskur seldist til hæst bjóðanda á uppboði í Japan fyrir 207 milljón jen sem jafngildir um 183 milljónum íslenskra króna. Fiskurinn vó 276 kíló.

Efnahagsáform nýrrar stjórnar, gjaldtaka í ferðaþjónustu og tekist á um strandveiðar
Margt verður til umfjöllunar í Sprengisandi á Bylgjunni í dag og meðal annars snert á áformum nýrrar ríkisstjórnar í efnahagsmálum, gjaldtöku á ferðaþjónustuna og strandveiðum. Hefst þátturinn klukkan 10.

Vindstrengir ná mögulega stormstyrk í kvöld
Í dag gengur í norðan 8 til 15 metra á sekúndu og búast má við hvassari vindi í vindstrengjum á Suðausturlandi og Austfjörðum undir kvöld. Ná strengirnir jafnvel stormstyrk á þessum slóðum þegar líða fer á kvöldið.

Austurríkiskanslari segir af sér eftir árangurslausar viðræður
Karl Nehammer, kanslari Austurríkis, hefur ákveðið að segja af sér embætti. Hann tók ákvörðun um það eftir að ljóst varð að stjórnarmyndunarviðræður flokks hans, Þjóðarflokksins, og Sósíaldemókrata myndu ekki bera árangur.

Í fangelsi fyrir að sofa hjá ári yngri stúlku
Ungur maður frá Bretlandi hefur verið fangelsaður í Dúbaí, fyrir að eiga samræði við 17 ára stúlku. Bresk stjórnvöld eru með málið á sínu borði.

Gott sparnaðarráð fyrir ríkisstjórnina að leggja niður ÁTVR
Netverslun með áfengi hefur tekið stakkaskiptum með sérstöku „sýningarrými“ sem opnað var um helgina. Þingmaður Miðflokksins segir gott sparnaðarráð til ríkisstjórnarinnar vera að leggja niður ÁTVR. Enginn grundvöllur sé fyrir einkasölu ríkisins á áfengi.

Höfnuðu skopmynd sem sýndi eigandann í vondu ljósi
Verðlaunaskopmyndateiknari hefur sagt stöðu sinni hjá bandaríska fjölmiðlinum Washington Post lausri, eftir að mynd sem sýndi eiganda blaðsins krjúpa fyrir verðandi forseta Bandaríkjanna, ásamt fleiri auðjöfrum, var hafnað af ritstjórn blaðsins.

Styttist í lokun flugvallar sem tengist flugsögu Íslendinga
Flugvöllurinn í Narsarsuaq, sem lengi þjónaði sem helsta tenging milli Grænlands og Íslands, heyrir brátt sögunni til. Íslendingur sem starfar við flugvöllinn býst við að þorpið við völlinn muni að mestu leggjast í eyði.

Lentu með veikan farþega í Keflavík
Lenda þurfti flugvél bandaríska flugfélagsins American Airlines, sem var á leið frá London til Charlotte í Bandaríkjunum, á Keflavíkurflugvelli í dag. Ástæðan voru veikindi farþega um borð.

12 milljarða vinnsluhús byggt fyrir lax í Þorlákshöfn
Eitt glæsilegasta fiskvinnsluhús, sem mun kosta á milli 10 og 12 milljarða króna verður byggt í Þorlákshöfn í tengslum við landeldi First Whater á laxi. Um 115 starfsmenn munu vinna í húsinu þegar það verður komið í notkun haustið 2026.

„Þetta er bara forkastanlegt“
Oddviti í Rangárþingi líkir stöðu heilbrigðismála á Suðurlandi við tifandi tímasprengju, sem bregðast þurfi við af hörku. Fundur með forsvarsmönnum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands eftir helgi verði að skila haldbærum lausnum. Íbúar á Suðurlandi sem fréttastofa ræddi við segja stöðuna forkastanlega.

Fyrrverandi starfsmaður sakar Nicki Minaj um líkamsárás
Maður að nafni Brandon Garrett hyggst höfða mál á hendur rapparanum og söngkonunni Nicki Minaj vegna meintrar líkamsárásar liðið vor. Lögmaður stórstjörnunnar segir ásakanirnar úr lausu lofti gripnar.

Mikilvægt að andlát Hjalta yrði einhverjum til gagns
Fyrstu styrkirnir úr minningarsjóði Hjalta Þórs Ísleifssonar voru veittir í dag. Móðir Hjalta segir það hafa verið sér mikilvægt að andlát hans yrði einhverjum til gagns. Fallegt hafi verið að heyra vini og kollega minnast Hjalta við afhendinguna.

Jimmy Carter kvaddur
Sex daga útför Jimmy Carter, 39. forseta Bandaríkjanna, er hafin. Carter lést 29. desember síðastliðinn, 100 ára að aldri.

„Tifandi tímasprengja“ á Suðurlandi og stökkbreyting áfengissölu
Oddviti í Rangárþingi líkir stöðu heilbrigðismála á Suðurlandi við tifandi tímasprengju, sem bregðast þurfi við af hörku. Fundur með forsvarsmönnum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands eftir helgi verði að skila haldbærum lausnum. Íbúar á Suðurlandi sem fréttastofa ræddi við segja stöðuna forkastanlega.

Sviptur á staðnum fyrir ofsaakstur á 30-götu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af ökumanni í Garðabæ sem ók langt yfir hámarkshraða. Hann mældist á 78 kílómetra hraða á klukkustund, á götu þar sem leyfilegur hámarkshraði er 30 kílómetrar.