Fréttir

Sárt að vera sakaður um að maka krókinn á ósiðlegan hátt
Fyrrverandi formaður knattspyrnudeildar FH segir fjölmiðla ranglega hafa sakað hann um að hafa makað krókinn á viðskiptum fyrirtækis hans við FH vegna byggingar knatthússins Skessunnar. Hann segir ásakanir um ólöglegt, eða í það minnsta ósiðlegt athæfi, svíða.

Bílstjórinn á Ásvöllum ákærður fyrir manndráp af gáleysi
Bílstjóri steypubíls, sem ók á dreng á Ásvöllum í Hafnarfirði með þeim afleiðingum að hann lést, hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Þetta staðfestir Hildur Sunna Pálmadóttir sviðsstjóri hjá ákærusviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Bein útsending: Útför Egils Þórs Jónssonar
Egill Þór Jónsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju í Reykjavík klukkan 13 í dag.

Telur stjórnsýsluúttekt litlu breyta fyrir íbúa og íhugar að flytja
Íbúi í Árskógum íhugar að flytja úr húsnæðinu vegna nálægðar við vöruskemmuna í Álfabakka.Hún telur stjórnsýsluúttekt á málinu ekki breyta neinu fyrir íbúa. Tæplega tvö þúsund manns krefjast þess að framkvæmdir við skemmuna verði stöðvaðar.

Ummælin um Grænland risastórt mál sem ætti að taka alvarlega
Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna, sagðist í gær ekki útiloka að beita hervaldi til að taka yfir Grænland. Prófessor í heimskautarétti við Háskólann á Akureyri og Háskólann á Grænlandi segir þetta risastórt mál sem yfirvöld ættu að taka alvarlega.

Efla vöktun við Ljósufjöll vegna jarðhræringa
Veðurstofan hyggst auka vöktunarstig við Ljósufjöll vegna skjálftavirkni á svæðinu undanfarnar vikur. Náttúruvársérfræðingur segir sérstakt að skjálftavirkni mælist svo lengi á jafnmiklu dýpi og raunin er nú.

Gagnrýna aðbúnað í hjólhýsabyggðinni á Höfðanum
Einn var fluttur á slysadeild í nótt eftir bruna sem kom upp í hjólhýsabyggðinni við Sævarhöfða.

Ibrahim hafi horfið sjónum bílstjórans í fáeinar sekúndur
Ökumaður vörubifreiðar sem ók á átta ára dreng á hjóli á Ásvöllum í Hafnarfirði í október 2023, með þeim afleiðingum að drengurinn lést, veitti umferð hjólandi vegfarenda ekki athygli áður en slysið varð. Þetta er niðurstaða rannsóknarnefndar samgönguslysa.

Kyrrsetja skuggaskipið vegna slæms ástands
Yfirvöld í Finnlandi hafa kyrrsett olíuflutningaskipið Eagle S, sem talið er hafa verið notað til að skemma sæstrengi í Eystrasalti. Samgöngustofa segir að skipið, sem talið er tilheyra svokölluðum skuggaflota Rússa og vera notað til að flytja olíu í trássi við viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi, sé ekki hæft til siglingar.

Íbúar hafi óttast að svona gæti farið
Einn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar eftir að eldur kom upp í hjólhýsabyggðinni sem myndast hefur á iðnaðarsvæði við Sævarhöfða í nótt. Íbúi á svæðinu segir aðbúnað skelfilegan, þeir hafi óttast að svona gæti farið.

Kettlingur í Reykjavík greindur með H5N5
Kettlingur sem barst tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði á Keldum til krufningar greindist með skætt afbrigði fuglainflúensu (H5N5). Um er að ræða sama afbrigði og greinst hefur í villtum fuglum hér á landi og á einu alifuglabúi.

Gerði ráð fyrir að verða formaður þingflokksins
Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, segist hafa gert ráð fyrir því að verða þingflokksformaður flokksins. Guðmundur Ari Sigurjónsson var kjörinn formaður þingflokksins í gær.

Ætlar að hitta kónginn í dag
Múte B. Egede, formaður landstjórnar Grænlands, mun hitta danska konunginn í dag þó fundurinn verði seinna en til stóð. Hætt var við fund þeirra á mánudaginn, á svipuðum tíma og fregnir bárust af því að Donald Trump yngri væri á leið til Grænlands eftir að faðir hans, verðandi forseti Bandaríkjanna, hafði talað um það að Bandaríkin ættu að eignast eyríkið.

Belgar varaðir við því að borða jólatrén
Matvælastofnun Belgíu hefur varað fólk við því að leggja sér jólatré til munns, eftir að borgaryfirvöld í borginni Ghent lagði til við fólk að prófa.

Skjálftar við Grjótárvatn og Bárðarbungu
Skjálfti 2,9 að stærð varð við Grjótárvatn, norður af Borgarnesi, klukkan 5:13 í nótt. Þá varð skjálfti 4,1 að stærð við Bárðarbungu upp úr hálf fjögur í nótt.

Hætta staðreyndavöktun á Facebook og Instagram
Ákvörðun stjórnenda Meta um að hætta staðreyndavöktun á Facebook og Instagram hefur vakið hörð viðbrögð. Mark Zuckerberg, stofnandi Meta, segir um að ræða forgangsröðun í þágu tjáningarfrelsisins.

Yfirleitt þurrt og bjart veður sunnan- og vestantil
Lægð yfir Skandinavíu og hæðarhryggur á Grænlandssundi beina nú norðlægri átt til landsins, yfirleitt fimm til fimmtán metrum á sekúndu í dag. Hvassast verður austantil.

Fluttur á slysadeild til aðhlynningar eftir bruna á Sævarhöfða
Einn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar eftir að eldur kom upp í hjólhýsabyggðinni sem myndast hefur á iðnaðarsvæði við Sævarhöfða í nótt.

Eldar loga í LA og neyðarástandi lýst yfir
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Los Angeles, næst stærstu borg Bandaríkjanna vegna skógar- og kjarrelda sem á skömmum tíma í gær fóru verulega úr böndunum.

Tundurduflið dregið út á Eyjafjörð og eytt í birtingu
Sprengjan sem togarinn Björg EA kom með til hafnar við afhafnasvæði Útgerðarfélags Akureyrar í gær reyndist tundurdufl en ekki djúpsjávarsprengja, eins og fyrst var talið.

Sjálfstæðismenn orðnir eins og vinstrimenn
„Þetta er dálítið eins og með vinstrimennina sem gátu aldrei komið sér saman um nokkurn hlut,“ segir Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður og samfélagsrýnir um þá stöðu sem komin er upp innan Sjálfstæðisflokksins.

Krefjast upptöku á aragrúa gullmuna í fíkniefnamáli tvíbura
Tvíburabræður á þrítugsaldri, ásamt einum manni á þrítugsaldri til viðbótar, hafa verið ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Þeir eru grunaðir um að hafa geymt mikið magn af MDMA, sem var ætlað til söludreifingar, í skrifstofuhúsnæði í Bæjarlind í Kópavogi. Héraðssaksóknari höfðar málið, en hann krefst upptöku á ýmsum gullmunum.

Framtíð Grænlands ráðist í Grænlandi
Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, segir framtíð Grænlands vera í höndum Grænlands. Öll umræða um framtíð Grænlendinga eigi að hefjast og enda í Nuuk.

Götulokanir á Akureyri vegna tilfærslu sprengjunnar
Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur ráðist í götulokanir við Hjalteyrargötu og Fiskitanga á Akureyri vegna tilfærslu sprengju sem togarinn Björg EA kom með til hafnar við athafnasvæði Útgerðarfélags Akureyrar í dag.

Hafi þurft að þola ómannúðlega meðferð sem dró hann til dauða
Ekkja manns sem fékk ígræddan plastbarka árið 2011 og lést þrjátíu mánuðum síðar hefur stefnt íslenska ríkinu. Hann hafi mátt þola ómannúðlega meðferð, meðal annars af hálfu starfsmanna Landspítalans, sem síðar dró hann til dauða.

Útilokar ekki að beita hervaldi til að ná Grænlandi
Donald Trump, fyrrverandi og verðandi Bandaríkjaforseti, fór mikinn á blaðamannafundi í Flórída í dag. Þar sagðist hann ekki geta lofað því að beita ekki hervaldi og efnahagsþvingunum til að ná stjórn á Grænlandi og Panama-skurðinum. Einnig sagðist Trump vera tilbúinn að beita efnahagsþvingunum til að gera Kanada að ríki innan Bandaríkjanna.

Stefnir ríkinu vegna plastbarkamálsins
Ekkja manns sem fékk ígræddan plastbarka og lést þrjátíu mánuðum síðar hefur stefnt íslenska ríkinu. Starsmenn Landspítala hafi átt þátt í dauða mannsins. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

„Hann kom víða við og snerti marga“
Minningarsjóður hefur verið stofnaður fyrir eiginkonu og börn Egils Þórs Jónssonar, fyrrverandi borgarfulltrúa, sem lést í desember eftir áralanga baráttu við krabbamein. Vinkona Egils segir fjarveru frá börnunum hafa tekið mest á Egil meðan á veikindum hans stóð.

Fimm sækjast eftir embætti Landlæknis
Fimm sóttu um stöðu embættis Landlæknis sem auglýst var laust til umsóknar um miðjan desember síðastliðinn. Alma Möller fyrrverandi Landlæknir mun skipa í embættið til fimm ára í senn að undangegnu mati sérstakrar nefndar.

Ummæli um vanþakklæti Afríkubúa valda reiði
Ráðamenn í Senegal og Tjad hafa fordæmt ummæli Emmanuels Macron, forseta Frakklands, um að ríki Sahelsvæðisins svokallaða hafi „gleymt að þakka fyrir“ hernaðaraðstoðina gegn víga- og uppreisnarhópum undanfarin ár. Frönskum hermönnum hefur verið gert að hypja sér frá báðum ríkjunum, auk annarra ríkja á undanförnum mánuðum.