Chelsea vann 1-2 endurkomusigur á Arsenal á Emirates í dag. Mörk Chelsea komu á fjögurra mínútna kafla undir lok leiksins.
Þetta var annar leikur Arsenal undir stjórn Mikels Arteta. Liðið hefur aðeins fengið eitt stig út úr þeim.
Arsenal hefur tapað fjórum heimaleikjum í röð sem hefur ekki gerst í 60 ár.
Arsenal var mun sterkari í fyrri hálfleik og leiddi að honum loknum, 1-0. Pierre-Emerick Aubameyang skoraði eftir hornspyrnu á 13. mínútu.
Chelsea sótti í sig veðrið í seinni hálfleik. Á 83. mínútu jafnaði Jorginho með skoti af stuttu færi eftir að Bernd Leno, markvörður Arsenal, greip í tómt.
Jorginho var heppinn að vera inni á vellinum því skömmu áður en hann skoraði átti hann að fá sitt annað gula spjald og þar með rautt eftir brot á Matteo Guendouzi.
Þegar þrjár mínútur voru eftir skoraði Tammy Abraham sigurmark Chelsea eftir vel útfærða skyndisókn.
Chelsea er í 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar en Arsenal í því tólfta.
