Barcelona-menn í basli í Baskalandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. janúar 2017 22:17 Leikmenn Barcelona hópast í kringum dómarann í kvöld. Vísir/Getty
Barcelona tapaði 2-1 í fyrri leik sínum á móti Athletic Bilbao í sextán liða úrslitum spænska Konungsbikarsins í kvöld. Athletic Bilbao enduðu leikinn tveimur mönnum færri eftir að tveir leikmenn fengu sitt annað gula spjald með aðeins sex mínútna millibili undir lok leiksins. Bilbao liðið náði að halda út og landa sigri níu á móti ellefu. Real Madrid hvíldi sína bestu sóknarmenn í sigrinum á Sevilla í gær en það þeir Lionel Messi, Luis Suarez og Neymar voru allir með Barcelona-liðinu í kvöld. Athletic Bilbao komst í 2-0 á fyrstu 28 mínútum og þannig var staðan þar til að Lionel Messi minnkaði muninn í 2-1 á 52. mínútu með marki beint úr aukaspyrnu. Aritz Aduriz (25. mínúta) og Inaki Williams (28. mínúta) skoruðu mörkin með aðeins þriggja mínútna millibili en Aduriz lagði upp seinna markið. Raúl García fékk sitt annað gula spjald á 74. mínútu og Bilbao-menn voru því orðnir manni færri. Þeir urðu síðan níu á móti ellefu eftir að Ander Iturraspe fékk sitt annað gula spjald á 80. mínútu. Brasilíumaðurinn Neymar fiskaði þá báða útaf en hvorki hann né aðrir sóknarmenn Barcelona náðu að jafna leikinn á lokamínútunum. Seinni leikur liðanna fer fram á Nývangi í næstu viku.
Spænski boltinn Mest lesið Segir Messi hafa rifist við þjálfarann um taktíkina í úrslitaleiknum Fótbolti Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Fleiri fréttir Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingarkóngur HM sakaður um að svíkja að borga með barninu sínu Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Segir Messi hafa rifist við þjálfarann um taktíkina í úrslitaleiknum Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Búinn að bíða eftir svona leik“ Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Hearts sá ekki til sólar í Austurríki Aston Villa reynir að fá Garnacho Dönsku meistararnir steinlágu fyrir þeim pólsku Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Leggur flautuna á hilluna eftir tuttugu ára dómaraferil Stoltur af argentíska liðinu Flækingur fótboltans enn á flakki á milli félaga Gleði Spánverja mældist á jarðskjálftamælum Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Sjá meira