Bandaríkjamaður sem hljóp eins og fætur toguðu frá Tvíburaturnunum í New York þann örlagaríka dag 11. september var einnig staddur í Bataclan-tónleikastaðnum þegar hryðjuverkamenn hófu þar skothríð. Hann slapp naumlega á lífi með skotsár á fæti.
Maðurinn ræddi við Daily Telegraph undir nafni Matthew. Hann var á tónleikum Eagles of Death Metal, einn á ferð en kona hans hafði ekki komist með vegna þess að ekki fannst pössun fyrir börn þeirra, þegar þrír hryðjuverkamenn létu til skarar skríða. Hann segist hafa hlaupið í átt að útgönguleið um leið og hann heyrði skothvelli.
Sjá einnig: Hæsta viðbúnaðarstigi lýst yfir í Brussel
Hann var skotinn í fótinn og lá á gólfinu en mjakaði sér áleiðis að útgönguleið í hvert skipti sem hryðjuverkamennirnir hlóðu vopn sín. Þannig tókst honum loks að komast út.
Um leið og hann komst út féll hann í jörðina en blaðamaður franska blaðsins Le Monde, Daniel Psenny aðstoðaði hann og kom honum inn í íbúð sína. Við það fékk Daniel skot í sig.
Sjá einnig: „Myndi ég gera stórmál úr því ef ISIS lýsti yfir stríði við Ísland og Ísland myndi ráðast á okkur?“
Inn í íbúðinni gerðu þeir að sárum sínum en óttuðust að þeim myndi blæða út. Þremur tíma seinna hafði lögregla þó lokað af svæðið og komust þeir undir læknishendur.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Matthew lendir í hryðjuverkaárás. Hann var staddur við inngang Tvíburaturnanna þegar fyrri flugvélin skall á turninum. Hann segist hafa hlaupið eins hratt og hann gat til þess að komast eins langt í burtu og hægt var.
Í samtali við Telegraph sögðust Matthew og Daniel ætla að hittast yfir rauðvínsglasi, jafnvel heillri flösku, um leið og þeir væru búnir að jafna sig af sárum sínum.
