
Íslenska ánægjuvogin

BYKO með ánægðustu viðskiptavinina áttunda árið í röð
Áttunda árið í röð hlýtur BYKO hæstu einkunnina í flokki byggingavöruverslana í Íslensku ánægjuvoginni en niðurstöður hennar voru kynntar á Grand Hótel í morgun. BYKO hefur sigrað flokkinn frá því mælingar hófust 2018.

Indó sigurvegari Ánægjuvogarinnar
Indó er sigurvegari Ánægjuvogarinnar árið 2024. Í morgun voru niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kynntar í tuttugasta og sjötta skiptið.

Íslenska ánægjuvogin kynnt á Grand Hóteli
Í dag verða niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar birtar.

Dropp stal efsta sætinu af bensíninu hjá Costco
Póstþjónustufyrirtækið Dropp er sigurvegari Íslensku ánægjuvogarinnar 2023. Fyrirtækið fékk hæstu einkunnina frá neytendum eða 83,9. Íslandsbanki hlaut lægstu einkunn ársins 53,9.

Bein útsending: Ánægjuvogin afhent
Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar verða birtar í dag. Þetta er í tuttugasta og fimmta skipti sem ánægja íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti. Að þessu sinni verða birtar niðurstöður fyrir fjórtán atvinnugreinar og hafa þær sjaldan verið fleiri.

Markaðshlutdeild Varðar tvöfaldast á tíu árum og Sjóvá jók hlutdeild sína
Markaðshlutdeild Varðar hefur vaxið hratt á síðustu árum á sama tíma og TM og VÍS hafa verið að gefa eftir. Forstjóri tryggingafélagsins segir enn tækifæri til vaxtar, einkum á fyrirtækjamarkaði, en ætla má að markaðsvirði Varðar hafi fjórfaldast frá kaupum Arion banka fyrir hartnær sex árum síðan.

Öskubuskusaga Sjóvá: Stemning og stress þegar niðurstöður kynntar
Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá, segir að sú vegferð sem fyrirtækið fór í til að ná 1.sæti í Ánægjuvoginni sé sannkölluð Öskubuskusaga.

„Neytendur eru hvergi jafn ánægðir og þegar þeir kaupa bensín hjá Costco“
Það hefur mikið vatn runnið til sjávar frá því að Ánægjuvogin var fyrst mæld og afhent á Íslandi fyrir 24 árum síðan. Mun meira er gert úr mælingunum þar sem áður var aðeins mælt fyrir ánægju viðskiptavina á tveimur til fjórum mörkuðum. Í dag er mælt á fjórtán mörkuðum og því mun fleiri fyrirtæki undir.

BYKO með ánægðustu viðskiptavinina sjötta árið í röð
Íslenska ánægjuvogin kynnti fyrir helgi niðurstöður mælinga á ánægju viðskiptavina fjörutíu íslenskra fyrirtækja í fjórtán atvinnugreinum á árinu 2022. Í flokki byggingavöruverslana hlaut BYKO hæstu einkunnina sjötta árið í röð og hefur því sigrað óslitið í þeim flokki frá upphafi mælinga í honum.

Sjö fyrirtæki hlutu viðurkenningu Ánægjuvogarinnar
Sjö fyrirtæki hlutu í morgun viðurkenningu Íslensku ánægjuvogarinnar 2022 en alls voru 40 fyrirtæki mæld í fjórtán atvinnugreinum. Þetta er í 24. árið sem ánægja íslenskra fyrirtækja er mæld með Ánægjuvoginni.

Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kynntar
Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar verða kynntar á Grand Hótel klukkan 8:30 í dag.

Blómaskeið er framundan í fjarskiptum með frekari snjallvæðingu
Með frekari snjallvæðingu telur Margrét Tryggvadóttir, forstjóri Nova, að blómaskeið sé framundan í fjarskiptum. „Tækifærin eru svo sannarlega til staðar hjá okkur með sterka innviði og með þeim miklu breytingum sem hafa verið undanfarið á fjarskiptamarkaðnum. Nova er sterkt innviðafyrirtæki og það er spennandi og skemmtilegt ár fram undan,“ segir hún.

Íslenska ánægjuvogin: Sjö fyrirtæki marktækt hæst á sínum markaði
Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2021 voru kynntar í morgun og mátti sjá mikinn mun á ánægju viðskiptavina þeirra 37 fyrirtækja í samtals þrettán atvinnugreinum sem voru mæld. Costco eldsneyti var með marktækt hæstu einkunn allra fyrirtækja sem mæld voru í Ánægjuvoginni þetta árið.

Bein útsending: Afhending Íslensku ánægjuvogarinnar
Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar verða birtar í dag. Þetta er í tuttugasta og þriðja skipti sem ánægja íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti. Að þessu sinni verða birtar niðurstöður fyrir tólf atvinnugreinar og hafa þær sjaldan verið fleiri.

Mest ánægja með eldsneytissölu Costco en minnst með þjónustu Póstsins
Pósturinn mældist með lægstu einkunn allra fyrirtækja sem tóku þátt í Íslensku ánægjuvoginni í fyrra, eða 56,6 stig af 100. Eldsneytissala Costco var aftur á móti hæst með 85,8 stig og er það í fjórða árið í röð sem viðskiptavinir eldsneytissölunnar mælast þeir ánægðustu á Íslandi með marktækum hætti.

Bein útsending: Úrslit Íslensku ánægjuvogarinnar
Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar árið 2020 verða kynntar í dag og viðurkenningar veittar þeim fyrirtækjum sem mælast efst á sínum markaði. Viðburðurinn hefst klukkan 8:30 og verður sýnt frá athöfninni í beinni útsendingu hér á Vísi.

Kynna niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar á föstudag
Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar verða birtar á föstudag, 29. janúar og hefst kynning þeirra og afhending viðurkenninga klukkan 8:30 á Grand Hótel. Sýnt verður frá athöfninni í beinni útsendingu hér á Vísi en vegna samkomutakmarkana verður einungis einum aðila frá þeim fyrirtækjum sem eru efst á sínum markaði boðið að mæta.

Næstum því níu af hverjum tíu ánægð með þjálfarann sinn
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands birti mjög jákvæðar niðurstöður um íþróttaiðkun unglinga upp úr spurningalista fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk.

Eldsneytissala Costco hæst allra í Íslensku ánægjuvoginni
Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2018 voru kynntar í dag í tuttugasta skiptið.

Costco hæst og lægst í Íslensku ánægjuvoginni
Var með hæstu einkunn þegar kom að eldsneytismarkaði en þá lægstu þegar kom að smásölumarkaði.

Liv maður ársins hjá Frjálsri verslun
Liv Bergþórsdóttir, forstjóri Nova, er maður ársins í atvinnulífinu á Íslandi árið 2016, að mati dómnefndar Frjálsrar verslunar.

Íslenska ánægjuvogin: ÁTVR og Nova hlutu hæstu einkunnirnar
Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar voru kynntar í sautjánda sinn í dag.