Handbolti
290 291 292 293 ›
Magdeburg stöðvaði Gummersbach Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Magdeburg stöðvuðu í gærkvöld sigurgöngu Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni, þegar liðið vann sigur 38-28. Sigfús Sigurðsson skoraði fjögur mörk fyrir Magdeburg, en Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sjö fyrir Gummersbach og Róbert Gunnarsson var með tvö. Þetta var fysta tap Guðjóns og félaga á leiktíðinni. Sport 18.12.2005 11:52
Ciudad tapaði fyrir Barcelona Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real töpuðu fyrir Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær 26-24, en Ólafur skoraði eitt mark í leiknum. Barcelona skaust í annað sæti deildarinnar með sigrinum og hefur tveggja stiga forystu á Ciudad sem er í því þriðja. Portland San Antonio er sem fyrr í efsta sætinu. Sport 15.12.2005 14:01
Tíu mörk Einars dugðu skammt Tveir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Grosswallstadt tapaði fyrir Göppingen 33-28, þar sem Einar Hólmgeirsson fór á kostum og skoraði tíu mörk fyrir Grosswallstadt, en Alexander Petersson skoraði fjögur mörk. Jaliesky Garcia var með fjögur mörk fyrir Göppingen. Kiel skaust á toppinn með því að bursta Nordhorn 42-31. Sport 14.12.2005 21:31
Tap hjá Magdeburg Magdeburg tapaði í gær fyrir Flensburg á heimavelli sínum 37-32 í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Sigfús Sigurðsson skoraði fjögur mörk fyrir Magdeburg og Arnór Atlason tvö, en Magdeburg hefur ekki tekist að halda í við efstu liðin í deildinni undanfarið. Þá vann Lemgo auðveldan sigur á Delitzsch 34-24, en Ásgeir Örn Hallgrímsson komst ekki á blað hjá Lemgo í gær. Sport 14.12.2005 12:46
Ciudad Real mætir Celje Lasko Í dag var dregið í 8-liða úrslit Evrópukeppnanna í handbolta. Í Meistaradeildinni mæta Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real sterku liði Celje Lasko frá Slóveníu. Guðjón Valur Sigurðsson og félagar í Gummersbach mæta Bidasoa frá Spáni í EHF keppninni og Lemgo, lið Ásgeirs Hallgrímssonar og Loga Geirssonar, mætir rússneska liðinu Dynamo Astachan. Sport 13.12.2005 12:56
KA úr leik í Evrópu KA er úr leik í Áskorendakeppni Evrópu í handbolta karla en norðanmenn töpuðu með 10 marka mun gegn Steaua Bucharest, 31-21 í Rúmeníu í morgun. Þetta var í síðari leikur liðanna í 16-liða úrslitum en þeim fyrri lauk með sigri KA á Akureyri. Sport 11.12.2005 13:26
Fórum illa með dauðafærin Magdeburg er úr leik í Meistaradeildinni í handbolta. Alfreð Gíslason, þjálfari Magdeburg, segir að slæm nýting á færum hafi fellt hans menn í gær. Sport 10.12.2005 20:21
Magdeburg og Århus úr leik 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta lauk í dag þar sem Íslendingaliðin Magdeburg og Århus féllu úr keppni. Sturla Ásgeirsson var hins vegar markahæstur danska liðsins Århus GF sem féll úr keppni með tapi fyrir ungverska liðinu Veszprém, 28-31. Sturla gerði 7 mörk í dag. Sport 10.12.2005 17:44
Magdeburg lá fyrir Barcelona Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Magdeburg biðu lægri hlut fyrir spænska stórliðinu Barcelona á heimavelli í Meistaradeild Evrópu í handbolta í dag. Lokatölur urðu 26-24 fyrir spænska liðið, sem er með pálmann í höndunum fyrir síðari leikinn. Sigfús Sigurðsson og Arnór Atlason skoruðu báðir þrjú mörk fyrir Magdeburg. Sport 4.12.2005 17:54
Einar skoraði 10 fyrir Grosswallstadt Þrír leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gærkvöldi. Einar Hólmgeirsson fór á kostum í liði Grosswallstadt og skoraði 10 mörk í sigri liðsins á Wetzlar 30-25, en Róbert Sighvatsson skoraði eitt mark fyrir Wetzlar. Þá var Snorri Steinn Guðjónsson ekki síðri hjá Minden þegar hann skoraði 9 mörk í tapi fyrir Wilhelmshaven 29-25, en Gylfi Gylfason skoraði 5 mörk fyrir Wilhelmshaven. Sport 4.12.2005 15:09
Auðvelt hjá Lemgo Íslendingaliðið Lemgo í Þýskalandi átti ekki í teljandi vandræðum með andstæðinga sína Cakovac frá Króatíu í EHF-keppninni í dag og sigraði 41-25. Logi Geirsson skoraði 7 mörk í leiknum og Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði 6, en gera má ráð fyrir að eftirleikurinn verði Lemgo auðveldur með svo gott forskot í síðari leikinn. Sport 3.12.2005 17:53
8-liða úrslitin kláruðust í gær Nokkrir Íslendingar voru í eldlínunni í þýska bikarnum í gærkvöldi, en þá varð ljóst hvaða lið komast áfram í fjórðungsúrslit keppninnar. Gummersbach átti í litlum vandræðum með Solingen og vann 41-22, þar sem Guðjón Valur skoraði 6 mörk og Róbert Gunnarsson skoraði 4 mörk. Sport 1.12.2005 09:35
Sigur hjá Ólafi og félögum Ólafur Stefánsson skoraði þrjú mörk fyrir lið sitt Ciudad Real á Spáni í gær þegar liðið burstaði Aragon 38-25 í úrvalsdeildinni þar í landi. Real er í 2-3 sæti deildarinnar ásamt Barcelona, en meistarar Portland San Antonio eru í efsta sætinu. Sport 1.12.2005 09:32
Lemgo féll úr bikarnum Lemgo, lið Loga Geirssonar og Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar, féll úr keppni í þýska bikarnum í gær þegar liðið lá fyrir Kiel 40-36 í ljónagryfjunni í Kiel. Íslendingarnir komust ekki á blað í leiknum. Sport 29.11.2005 22:37
Burstuðu Belga 34-22 Íslenska kvennalandsliðið var ekki í teljandi vandræðum með það belgíska með 12 marka mun í undankeppni HM á Ítalíu, eftir að staðan hafði verið 17-11 fyrir Ísland í hálfleik. Jóna Margrét Ragnarsdóttir skoraði 6 mörk fyrir Ísland og Hanna G. Stefánsdóttir skoraði 5 mörk. Sport 23.11.2005 18:14
Petersson með stórleik Fimm leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær. Alexander Petersson fór á kostum í liði Grosswallstadt og skoraði 12 mörk þegar liðið lagði Minden 29-27 á útivelli. Einar Hólmgeirsson bætti við tveimur mörkum fyrir Grosswallstadt, en Snorri Steinn Guðjónsson var líka frábær í liði Minden og skoraði 9 mörk. Sport 21.11.2005 14:18
Ólafur hafði betur í Íslendingaslagnum Ciudad Real, lið Ólafs Stefánssonar í spænska handboltanum, hafði betur gegn Torrevieja 35-27 í dag, en hornamaðurinn Einar Örn Jónsson leikur með Torrevieja. Ólafur skoraði fimm mörk í leiknum, þar af eitt úr vítakasti, en Einar Örn skoraði sex fyrir lið sitt, þar af þrjú úr vítum. Ciudad Real er í þriðja sæti deildarinnar, einu stigi frá toppnum, en Torrevieja er í ellefta sæti. Sport 19.11.2005 21:28
Gummersbach sigraði Pfullingen Þrír leikir fóru fram í þýska handboltanum í dag. Guðjón Valur Sigurðsson og félagar í Gummersbach unnu góðan sigur á Pfullingen 30-25, þar sem Guðjón Valur skoraði 7 mörk og Róbert Gunnarsson bætti við 6 mörkum. Sport 19.11.2005 20:50
Guðjón Valur skoraði 12 í sigurleik Landsliðsmaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson heldur uppteknum hætti með liði sínu Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik, en Guðjón skoraði 12 mörk í sigri liðsins á Willemshaven í gærkvöld 28-21. Sport 17.11.2005 10:16
Sigur hjá Ólafi og félögum Ciudad Real, lið Ólafs Stefánssonar í spænsku úrvalsdeildinni, sigraði Arrate 24-20 í gærkvöld og því heldur liðið toppsæti deildarinnar ásamt Barcelona. Ólafur lét lítið fyrir sér fara í leiknum og náði ekki að skora. Börsungar sigruðu Bidasoa með níu mörkum 38-29 og Barcelona og Ciudad eru því efst og jöfn með 16 stig eftir 9 leiki. Sport 16.11.2005 17:21
Úr leik þrátt fyrir sigur "Ég er stoltur af strákunum og nú kom baráttan sem býr í þessu liði bærlega í ljós," sagði Óskar Bjarni Óskarson þjálfari Vals við Fréttablaðið eftir 24-22 sigur Valsmanna á Skövde í Laugardalshöllinni í gær en Svíarnir unnu samtals með fimm mörkum. Mikil stemmning var í Höllinni en bæði Valsmenn og Svíar fjölmenntu á pallana og skemmtu sér konunglega. Sport 13.11.2005 20:36
Alfreð tekur við 2007 Velimir Kljaic hefur framlengt samning sinn við þýska úrvalsdeildarfélagið Gummersbach til ársins 2007 en hann hefur verið að standa sig vel með liðið í vetur. Með liðinu leika íslensku landsliðsmennirnir Guðjón Valur Sigurðsson og Róbert Gunnarsson. Sport 11.11.2005 22:44
Snorri skoraði tíu mörk Landsliðsmaðurinn Snorri Steinn Guðjónsson skoraði tíu mörk, þar af sjö úr vítum, fyrir félag sitt, Minden, er það lagði Concordia Delitzsch, 38-26, í þýsku úrvalsdeildinni í gær. Minden er í fjórtánda sæti deildarinnar eftir leikinn. Sport 7.11.2005 10:06
Lærisveinar Alfreðs áfram Þýska liðið Magdeburg tryggði sér í dag sæti í 16-liða úrslitum meistaradeildarinnar í handknattleik, þegar liðið lagði Chehovski Moskvu 37-28 á heimavelli sínum. Sigfús Sigurðsson skoraði 5 mörk fyrir Magdeburg, en Arnór Atlason skoraði ekki að þessu sinni. Sport 5.11.2005 19:03