Handbolti
285 286 287 288 289 290 291 292 293 … 293 ›
Flensburg vann Viggó Sigurðsson og lærisveinar hans í Flensburg unnu þægilegan útisigur á Skopje frá Makedóníu í X-riðli Meistaradeildarinnar í gær, 37-29. Yfirburðir Flensburg voru töluverðir í leiknum og hafði liðið meðal annars 21-10 forystu í hálfleik en það slakaði nokkuð á undir lokin þegar Viggó leyfði minni spámönnum sínum að spreyta sig. Handbolti 8.10.2006 20:20
Krefjandi verkefni hjá Fram í Slóveníu Þrjú íslensk lið verða í eldlínunni í Evrópukeppni karla í handbolta í dag. Tveir leikir fara fram hér á landi en Íslandsmeistarar Fram leika í Slóveníu gegn Celje í F-riðli Meistaradeildarinnar. Sá leikur verður í beinni útsendingu á Sýn og hefst útsending 15.10. Fréttablaðið náði tali af Guðmundi Guðmundssyni, þjálfara Fram, þegar hann var á ferðalagi með liðinu í gær. Handbolti 7.10.2006 21:19
Sigur hjá Lemgo Alexander Petterson skoraði fjögur mörk og Einar Hólmgeirsson tvö fyrir Grosswallstadt sem sótti ekki gull í greipar í heimsókn sinni til Lemgo í gær og tapaði 30-23. Logi Geirsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson léku með Lemgo en komust ekki á blað í leiknum. Tomas Mocsai var markahæstur heimamanna með níu mörk en Florian Kehrmann var með sjö. Sport 7.10.2006 21:20
Hlynur og Anton dæmdu Íslenska dómaraparið Hlynur Leifsson og Anton Pálsson dæmdu leik Barcelona og Hammarby í Meistaradeildinni sem fram fór í gær og samkvæmt spjallsíðu stuðningsmanna Barcelona. þóttu dómararnir standa sig vel. Þetta var langstærsta verkefni sem þeir Hlynur og Anton hafa fengið á alþjóðlegum vettvangi og svo virðist sem að þeir hafi nýtt það vel. Handbolti 7.10.2006 21:19
Sverre þarf að fara í aðgerð Varnartröllið Sverre Jakobsson hjá Gummersbach fer í aðgerð á ökkla á morgun til að ráða bót á meiðslum sem hafa hrjáð hann síðustu vikur. Sverre hefur ekki getað tekið þátt í síðustu leikjum Gummersbach vegna meiðslanna og kom meðal annars hingað til lands í gifsi þegar Gummersbach heimsótti Fram í Meistaradeildinni í síðustu viku. Sú hvíld gerði ekki sitt gagn og segir Sverrir að aðgerð sé óumflýjanleg. Sport 7.10.2006 21:19
Auðveldur sigur hjá Gummersbach Þýska handknattleiksliðið Gummersbach vann í kvöld auðveldan 36-25 sigur á norsku meisturunum Sandefjord í Meistaradeildinni, eftir að staðan hafði verið jöfn í hálfleik 15-15. Leikurinn fór fram í Leverkusen þar sem heimavöllur Gummersbach er ekki löglegur í Evrópukeppnum. Handbolti 5.10.2006 21:25
Auðvelt hjá Viggó og félögum Viggó Sigurðsson og félagar í Flensburg unnu öruggan 37-26 útisigur á Göppingen í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld, en bæði lið voru án lykilmanna vegna meiðsla. Þá skoraði Gylfi Gylfason tvö mörk fyrir lið sitt Wilhelmshavener sem tapaði 29-22 fyrir Hamburg á útivelli. Sport 4.10.2006 21:30
Nordhorn í annað sætið Lærisveinar Ola Lindgren í Nordhorn unnu góðan sigur á Magdeburg í leik kvöldsins í þýska handboltanum 29-25 á heimavelli sínum eftir að hafa verið yfir í hálfleik 16-13. Nordhorn skaust með sigrinum upp að hlið Gummersbach á toppi deildarinnar með 12 stig eftir 7 leiki, en Magdeburg er í 5. sæti með 10 stig eftir 7 leiki. Sport 3.10.2006 21:13
Jaliesky Garcia úr leik í 6 mánuði Íslenski landsliðsmaðurinn Jaliesky Garcia leikur ekki með íslenska landsliðinu á HM í Þýskalandi í byrjun næsta árs eftir að hann sleit krossbönd í hné á æfingu með liði sínu Göppingen á föstudag og verður hann frá keppni í að minnsta kosti hálft ár. Sport 2.10.2006 18:48
Guðjón Valur skaut Fram í kaf Þýska liðið Gummersbach valtaði yfir Fram í leik liðanna í Meistaradeild Evrópu í Laugardalshöll í dag, en eftir að þýska liðið hafði aðeins eins marks forystu í hálfleik 14-13, var allt annað uppi á teningnum í þeim síðari þar sem Gummersbach tryggði sér öruggan sigur 38-26. Handbolti 1.10.2006 18:25
Gummersbach með nauma forystu í hálfleik Þýska stórliðið Gummersbach hefur nauma 14-13 forystu gegn Fram þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðanna í Meistaradeild Evrópu, en leikið er í Laugardalshöll. Framarar hafa sannarlega staðið í þýska liðinu og Björgvin Gústavsson hefur varið mjög vel í markinu. Guðjón Valur Sigurðsson er að leika mjög vel með Gummersbach og hefur skorað 6 mörk. Handbolti 1.10.2006 17:37
Fram - Gummersbach í beinni á Sýn Leikur Fram og þýska liðsins Gummersbach í meistaradeildinni í handbolta sem fram fer í Laugardalshöllinni klukkan 17 verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn og Eurosport 2 í dag. Þarna mætast landsliðsþjálfararnir Alfreð Gíslason og Guðmundur Guðmundsson og íslenskir áhorfendur fá að sjá stjórstjörnuna Guðjón Val Sigurðsson í essinu sínu með félagsliði hér heima í fyrsta skipti í nokkur ár. Handbolti 1.10.2006 15:37
Stórtap hjá Degi og félögum Tíu leikir fóru fram í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í handbolta í dag. Dagur Sigurðsson og félagar í Bregenz steinlágu á heimavelli fyrir franska liðinu Montpellier 29-17 og Evrópumeistarar Ciudad Real unnu góðan útisigur á Szeged 25-20 án Ólafs Stefánssonar sem er meiddur. Þá vann stórlið Celje auðveldan sigur á Sandefjord í riðli Framara, en Fram tekur á móti Gummersbach í Laugardalshöllinni á morgun. Handbolti 30.9.2006 21:51
Naumt tap hjá Haukum Karlalið Hauka tapaði naumlega fyrir ítalska liðinu Conversano í EHF-keppninni í handbolta í dag 32-31 og á liðið því ágæta möguleika fyrir síðari leikinn sem fram fer á Ásvöllum næsta sunnudag. Sport 30.9.2006 20:24
Magdeburg lagði Göppingen Þrír leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Magdeburg lagði Göppingen á heimavelli sínum 36-29 þar sem Stefan Kretzschmar skoraði 7 mörk, en Jaliesky Garcia lék ekki með Göppingen. Melsungen lagði Lubbecke 36-33 þar sem Þórir Ólafsson skoraði 3 mörk og loks töpuðu Gylfi Gylfason og félagar í Wilhelmshavener 31-30 fyrir Nordhorn. Sport 30.9.2006 20:07
Góður sigur hjá Flensburg Viggó Sigurðsson og lærisveinar hans í þýska liðinu Flensburg unnu í kvöld mikilvægan 35-28 sigur á króatísku meisturunum RK Zagreb á heimavelli sínum í kvöld í leik sem sýndur var beint á Eurosport 2 á Digital Ísland. Joachim Boldsen skoraði 8 mörk fyrir Flensburg og Lars Christiansen skoraði 7 mörk. Handbolti 28.9.2006 21:33
Viggó og félagar í beinni á Eurosport Viggó Sigurðsson og lærisveinar hans í þýska handknattleiksliðinu Flensburg etja nú kappi við Króatíumeistara RK Zagreb í meistaradeildinni og er leikurinn sýndur beint á Eurosport 2 sem er að finna Fjölvarpi Digital Ísland. Handbolti 28.9.2006 20:22
Ademar Leon lagði Barcelona Óvænt úrslit urðu í spænsku úrvalsdeildinni á laugardagskvöld þegar Ademar Leon gerði sér lítið fyrir og lagði meistara Barcelona 31-27. Sigfús Sigurðsson átti góðan leik í vörn heimamanna en náði þó ekki að skora í leiknum. Ólafur Stefánsson skoraði eitt mark fyrir Ciudad Real sem vann Valladolid 30-29 í hörkuspennandi leik. Sport 24.9.2006 19:25
Meistaradeildin á Fjölvarpinu Eurosport hefur gert samning við Handknattleikssamband Evrópu um beinar útsendingar frá meistaradeildinni í handbolta og verða leikir þýsku liðanna allir í beinni útsendingu næstu þrjú árin. Þetta þýðir að þeim sem hafa aðgang að fjölvarpinu á Digital Ísland geta séð Íslensku leikmennina fara á kostum með liðum sínum í vetur. Handbolti 18.9.2006 17:04
Stórsigur hjá Gummersbach Sjö leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. Guðjón Valur Sigurðsson fór á kostum þegar Gummersbach burstaði Grosswallstadt 35-22 en þessi lið berjast í toppbaráttunni í deildinni. Þá töpuðu Viggó Sigurðsson og félagar í Flensburg mjög óvænt fyrir Kronau Östringen á útivelli 31-30. Sport 16.9.2006 20:11
Íslendingarnir stóðu sig vel Íslensku handboltamennirnir í þýska handboltanum voru í sviðsljósinu í dag þegar fimm leikir fóru fram. Sport 9.9.2006 19:14
Flensborg vann toppslaginn Viggó Sigurðsson og lærisveinar hans í Flensborg höfðu betur gegn Alfreði Gíslasyni og lærisveinum hans í Gummersbach í toppslag þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Lokatölur urðu 36-29. Sport 9.9.2006 14:56
Arnór byrjar vel Arnór Atlason var markahæstur með sjö mörk og þótti besti maður vallarins þegar lið hans FCK bar sigurorð af Lemvig í opnunarleik dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í gærkvöldi. Handbolti 9.9.2006 11:25
Ætlar að ljúka ferlinum með Ciudad Landsliðsmaðurinn Ólafur Stefánsson hefur gert munnlegt samkomulag við spænska stórliðið Ciudad Real um að framlengja samning sinn um tvö ár við félagið og ætlar því væntanlega að ljúka atvinnumannsferli sínum með liðinu. Ólafur er 33 ára gamall og er almennt álitinn sterkasta örvhenta skytta heimsins í dag. Sport 7.9.2006 16:26
Frábær sigur hjá Gummersbach Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Gummersbach eru enn taplausir í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik eftir frækinn útisigur á Kiel í kvöld 39-37, eftir að hafa verið undir 24-20 í hálfleik. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði átta mörk fyrir Gummersbach og Róbert Gunnarsson eitt, en þetta var fyrsta tap Kiel á heimavelli í nær þrjú ár. Sport 6.9.2006 22:10
Alfreð hafði sigur gegn sínum gömlu félögum Fjögur lið eru enn taplaus í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik þegar aðeins einum leik er ólokið í þriðju umferðinni. Átta leikir voru á dagskrá deildarkeppninnar í dag og þar voru Íslendingarnir áberandi eins og venjulega. Sport 2.9.2006 21:03
Sex leikir fóru fram í kvöld Sex leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld og þar voru Íslendingar í eldlínunni á nær öllum vígstöðvum eins og venjulega. Sport 30.8.2006 20:28
Landsliðið leikur sjö æfingaleiki fyrir HM Íslenska karlalandsliðið í handbolta leikur væntanlega sjö landsleiki í undirbúningi sínum fyrir lokakeppni heimsmeistaramótsins sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári, en mikil eftirvænting ríkir nú þar í landi fyrir mótinu og aðgöngumiðar renna út eins og heitar lummur. Sport 30.8.2006 18:16
Kiel lagði Hamburg Tveir leikir fóru fram í annari umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í gær. Meistarar Kiel unnu góðan sigur á Hamburg á útivelli 38-30, eftir að hafa verið undir 14-13 í hálfleik. Þá unnu nýliðar Eintracht Hildesheim góðan sigur á Kronau Östringen 35-27. Sport 30.8.2006 13:13
Sigur hjá Viggó og félögum Þýska úrvalsdeildin í handknattleik hófst í kvöld með einum leik. Viggó Sigurðsson og lærisveinar hans í Flensburg unnu nokkuð öruggan sigur á Wetzlar á útivelli 32-25, eftir að vera yfir 18-11 í hálfleik. Róbert Sighvatsson kom ekki við sögu hjá Wetzlar í leiknum. Sport 25.8.2006 20:46