Handbolti
281 282 283 284 285 286 287 288 289 … 293 ›
Gummersbach færist nær toppsætinu Íslendingaliðið Gummersbach sigraði Wetzlar, 34-27, í þýska handboltanum í kvöld og er komið með 38 stig í úrvalsdeildinni - jafnmörg og meistarar Kiel sem þó halda toppsætinu á markamun. Íslendingarnir í liði Gummersbach létu fara óvenju lítið fyrir sér í kvöld. Handbolti 10.3.2007 20:34
Besta tímabil Ragnars Handbolti Ragnar Óskarsson spilar vel þessa dagana í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta. Um helgina skoraði Ragnar 8 mörk úr 13 skotum í 27-24 sigri Ivry á Montpellier í toppbaráttuslag deildarinnar. Handbolti 5.3.2007 23:23
Átta marka sigur Magdeburg Þýska liðið Magdeburg var rétt í þessu að vinna FCK frá Kaupmannahöfn, 35-27, í Evrópukeppni félagsliða í handbolta. Staðan í hálfleik var 17-16 fyrir Madgeburg en Þjóðverjarnir sigldu fram úr á lokakafla leiksins og tryggðu sér gott veganesti fyrir síðari leik liðanna sem fram fer í Danmörku um næstu helgi. Handbolti 25.2.2007 15:26
Þjálfari Grosswallstadt: Alexender vann leikinn fyrir okkur Michael Roth, þjálfari Grosswallstadt, hélt ekki vatni yfir frammistöðu íslenska landsliðsmannsins Alexander Petersson eftir leik liðsins gegn TuS N-Lübbecke í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gærkvöldi. Alexander skoraði 16 mörk úr 18 skottilraunum í marka sigri Grosswallstadt, 33-30. Handbolti 25.2.2007 13:21
Ótrúleg frammistaða Ciudad í síðari hálfleik Ólafur Stefánsson skoraði fimm mörk, öll úr vítaköstum, þegar Ciudad Real bar sigurorð af Portland San Antonio, 26-21, í Meistaradeildinni í handbolta í dag. Það var stórkostleg spilamennska í síðari hálfleik sem tryggði Ciudad sigur í leiknum en liðið var fimm mörkum undir í hálfleik, 14-9. Þetta var fyrri leikur liðanna í 8-liða úrslitum keppninnar. Handbolti 24.2.2007 17:48
Flensburg burstaði Barcelona Flensburg er í mjög góðri stöðu eftir að hafa burstað Barcelona í fyrri viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta í gærkvöldi. Flensburg vann 10 marka sigur, 31-21, og er ljóst að spænska liðið þarf á algjörum toppleik að halda í síðari leiknum eftir viku ef það á ekki að falla úr keppni. Handbolti 24.2.2007 12:50
Ólafur og Sigfús létu að sér kveða á Spáni Ólafur Stefánsson skoraði fjögur mörk, þar af eitt úr vítakasti, þegar lið hans Ciudad Real burstaði Altea með 30 mörkum gegn 20 í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær. Sigfús Sigurðsson skoraði þrjú mörk fyrir Ademar Leon sem vann Logrono, 31-27. Handbolti 11.2.2007 19:18
Alexander með stórleik Alexander Petersson skoraði níu mörk og var langmarkahæsti leikmaður Grosswallstadt sem vann góðan útisigur á Róbert Sighvatssyni og lærisveinum hans í Wetzlar í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 27-24. Einar Hólmgeirsson lék ekki með Grosswallstadt vegna meiðsla. Tveir aðrir leikir fóru fram í deildinni í dag. Handbolti 11.2.2007 19:15
Íslendingarnir létu fara hægt um sig Logi Geirsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson skoruðu sitt markið hvor þegar lið þeirra Lemgo sigraði Düsseldorf örugglega í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 35-25. Snorri Steinn Guðjónsson komst ekki á blað hjá Minden í 30-25 tapi liðsins gegn Göppingen. Alls fóru fjórir leikir fram í Þýskalandi í dag. Handbolti 10.2.2007 17:30
Öruggur sigur hjá Gummersbach Íslendingaliðið Gummersbach komst upp að hlið Flensburg og Kiel á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir öruggan sigur á Wilhelmshavener í kvöld, 39-26. Liðin þrjú hafa öll hlotið 31 stig en Gummersbach hefur leikið einum leik fleiri, eða alls 19 talsins. Handbolti 9.2.2007 19:51
Snorri orðaður við GOG og Celje Lasko Leikstjórnandi íslenska landsliðsins í handbolta, Snorri Steinn Guðjónsson, er nú orðaður við danska hanboltaliðið GOG Gudme og slóvenska stórliðið Celje Pivorna Lasko. Handbolti 9.2.2007 12:19
Alfreð Gíslason: Vinnum með góðri vörn Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari á von á mjög jöfnum og spennandi leik gegn Dönum í kvöld er liðin mætast í Hamborg í átta liða úrslitum á HM. Íslenska landsliðið tók létta æfingu í Colour Line höllinni í gærkvöldi eftir fjögurra tíma akstur frá Halle. Alfreð Gíslason var rólegur að sjá og hann gerir ráð fyrir jöfnum leik í kvöld. Handbolti 29.1.2007 21:29
Alfreð: Þurfum að spila frábæran leik Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari segir að íslenska liðinu dugi ekkert minna en frábær leikur ætli það að koma sér í undanúrslitin á HM í Þýskalandi. Leikmenn liðsins taka í sama streng. Handbolti 29.1.2007 21:30
Þjálfari Dana: Þetta verður eins og í hryllingsmynd Ulrik Wilbek, landsliðsþjálfari Dana, líkir leiknum við Íslendinga á HM í Hamborg á morgun við orrustu sem komi til með að vera eins og hin besta hryllingsmynd að horfa á. Danski þjálfarinn varar við of mikilli bjartsýni. Handbolti 29.1.2007 20:02
Boldsen: Skipuleggjendur eru heiladauðir Joachim Boldsen, leikmaður danska handboltalandsliðsins, vandar skipuleggjendum Heimsmeistaramótsins í Þýskalandi ekki kveðjurnar og segir "heiladauða" einstaklinga vera ábyrga fyrir klúðrinu sem hefur átt sér stað í miðsölunni fyrir leikinn gegn Íslendingum á morgun. Handbolti 29.1.2007 19:50
Sverre og Róbert með bestu nýtinguna Sverre Jakobsson og Róbert Gunnarsson eru með langbestu skotnýtinguna af leikmönnum íslenska landsliðsins á HM. Róbert hefur skorað úr 13 af 14 skotum sínum í keppninni til þess og er með 93% skotnýtingu en Sverre hefur gert enn betur og er með 100%. Þess ber þó að geta að hann hefur aðeins skotið tvisvar á markið. Handbolti 29.1.2007 13:59
Byrjunarlið Íslands er eitt það besta í heimi Peter Henriksen, annar markmanna danska landsliðsins í handbolta, segir að liðinu bíði erfitt verkefni gegn Íslandi í 8-liða úrslitum HM í Þýskalandi. Hann telur byrjunarlið Íslands vera eitt það allra besta í heimi en lykillinn að sigri sé að stöðva Ólaf Stefánsson. Handbolti 29.1.2007 13:57
Boldsen undir smásjá spænskra stórliða Joachim Boldsen, leikstjórnandi danska handboltalandsliðsins, er undir smásjá spænskra stórliða eftir að hafa spilað eins og engill á HM í Þýskalandi. Boldsen hefur verið á mála hjá Flensburg undanfarin ár en hefur þegar ákveðið að ganga til liðs við AaB í heimalandi sínu á næsta tímabili. Það ku hins vegar vera gamall draumur leikmannsins að reyna fyrir sér á Spáni. Handbolti 29.1.2007 13:55
Þjálfari Frakka er ekki bjartsýnn Claude Onesta, þjálfari franska landsliðsins í handbolta, er ekki bjartsýnn fyrir viðureign sinna manna gegn Króötum í 8-liða úrslitum Heimsmeistarakeppninnar á morgun. Onesta segir Króata með sigurstranglegasta liðið í Þýskalandi þar sem þeir séu eina taplausa liðið til þessa. Þjálfari Króata segir öll lið eiga jafna möguleika á sigri. Handbolti 29.1.2007 17:15
Danir eru mun sigurstranglegri en Íslendingar Erik Veje Rasmussen, þjálfari Aarhus í Danmörku og helsti HM-sérfræðingur blaðsins Berlinske Tidende í heimalandi sínu, telur að Danir séu mun sigurstranglegri en Íslendingar í viðureign liðanna í 8-liða úrslitum HM í Þýskalandi. Rasmussen telur að Danir séu einnig með sterkara lið en Rússar og Pólverjar, en það verða væntanlegir mótherjar í undanúrslitum. Handbolti 29.1.2007 13:50
Guðjón Valur enn í hópi markahæstu manna Guðjón Valur er í 4.-5. sæti á lista markahæstu leikmanna HM í Þýskalandi þegar keppni í milliriðlum er lokið, en hann hefur skorað 47 mörk í sjö leikjum. Ef mörk úr vítaköstum eru dregin frá leikmönnum er Guðjón Valur hins vegar markahæstur allra, en hann hefur aðeins skorað eitt mark úr vítakasti. Tékkinn Filip Jicha er enn markahæstur með 55 mörk. Handbolti 29.1.2007 13:47
Íslendingar verða lítil hindrun Lars Rasmussen, leikmaður danska landsliðsins í handbolta, hefur trú á að liðið geti komist alla leið í úrslit Heimsmeistarakeppninnar í Þýskalandi. Rasmussen er sannfærður um að Íslendingar verði lítil hindrun fyrir Dani. Handbolti 29.1.2007 13:41
Íslenska liðið sagt óskamótherjinn Ulrik Wibek, þjálfari danska landsliðsins, segir Íslendinga mjög spennandi andstæðinga en ljóst varð í gær að liðin mætast í átta liða úrslitum heimsmeistarakeppninnar í handknattleik. Þá er haft eftir Lasse Boesen, einum leikmanna danska liðsins, í Jótlandspóstinum að Íslendingar hafi verið óskamótherjinn í átta liða úrslitum og hann viðurkennir að Danir eigi nú góða möguleika á að ná í undanúrslitin og jafnvel lengra. Handbolti 29.1.2007 11:51
Alfreð hættir með landsliðið í sumar Alfreð Gíslason segir í viðtali við vefmiðilinn Sport1.de að hann muni hætta með landsliðið í sumar vegna fjölskyldu-ástæðna. Alfreð er þjálfari þýska liðsins VfL Gummersbach og það er ekki mikið um frítíma hjá kappanum enda fara öll fríin með þýska liðinu í verkefni landsliðsins. Handbolti 29.1.2007 11:46
Íslendingar mæta Dönum Nú er orðið ljóst að það verða Danir sem mæta Íslendingum í 8-liða úrslitum HM í handbolta á þriðjudag. Danir lögðu Tékka af velli í Mannheim í kvöld þar sem lokatölur urðu 33-29. Þar sem Spánverjar töpuðu fyrir Króötum í dag fara Danir upp í annað sæti millriðils 2 og mæta þar með Íslendingum, sem höfnuðu í þriðja sæti milliriðils 1. Handbolti 28.1.2007 20:31
Danir með tveggja marka forystu í hálfleik Þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign Dana og Tékka á HM í handbolta er staðan 17-15, Dönum í vil. Tékkar komu Dönum í opna skjöldu með mikilli baráttu í upphafi leiks og náðu meðal annars 7-2 forystu. Danir hafa hins vegar náð að vinna sig aftur inn í leikinn og gott betur. Ef Danir sigra mæta þeir Íslendingum í 8-liða úrslitum. Handbolti 28.1.2007 19:55
Logi Geirsson: Þjóðverjar eru væluskjóður “Þetta var bara hrein snilld. Það er ekki hverjum sem er sem tekst að fá 12 þúsund manns upp á móti sér. Þessir Þjóðverjar eru svo miklar væluskjóður. Þetta var skemmtilegast tapleikur sem ég hef spilað á ævinni,” sagði Logi Geirsson eftir leikinn gegn Þýskalandi í dag. Ítarlega verður rætt við Loga í Fréttablaðinu á morgun um atvikið sem varð til þess að hann fékk alla áhorfendur í Halle-höllinni á móti sér. Handbolti 28.1.2007 18:35
Noregur burstaði Úkraínu og vann Forsetabikarinn Norðmenn unnu Forsetabikarinn svokallaða með því að gjörsigra Úkraínumenn í úrslitaleik í dag, 32-22. Um er að ræða keppni þeirra liða sem komust ekki áfram í milliriðla á HM í Þýskalandi. Norðmenn höfnuðu þar með í 13. sæti Heimsmeistarakeppninnar. Handbolti 28.1.2007 19:07
Rússar í 8-liða úrslit eftir ótrúlegan sigur á Ungverjum Ungvjerar voru fjórum sekúndum frá því að komast í 8-liða úrslit HM í handbolta en það var þegar svo mikið var eftir þegar Rússar náðu að skora sigurmarkið í leik liðanna nú í kvöld. Rússar sigruðu með einu marki, 26-25, og "stálu" sæti í 8-liða úrslitum af Ungverjunum. Handbolti 28.1.2007 18:49
Guðjón Valur: Við vorum að spara kraftana Guðjón Valur Sigurðsson, leikmaður íslenska liðsins, viðurkenndi í samtali við fjölmiðla eftir leikinn gegn Þýskalandi á HM í dag að leikmenn liðsins hefðu sparað krafta sína fyrir væntanlega viðureign í 8-liða úrslitum. Leikmenn þýska liðsins segja úrslitin hafa ráðist í fyrri hálfleik. Handbolti 28.1.2007 18:34