Handbolti
261 262 263 264 265 266 267 268 269 … 293 ›
Alex var erfiður en það þarf fleiri en einn mann til þess að klára okkur Björgvin Páll Gústavsson átti stórleik á lokakaflanum þegar Kadetten vann 24-21 sigur á Alexander Petersson og félögum Flensburg í seinni leik liðanna í undanúrslitum EHF-bikarsins í gær. Alexander náði að skora fimm sinnum hjá Björgvini en íslenski landsliðsmarkvörðurinn fékk aðeins þrjú mörk á síg á síðustu tuttugu mínútum leiksins. Handbolti 2.5.2010 21:34
Gunnar Steinn kominn í úrslitaleikinn um sænska titilinn Gunnar Steinn Jónsson átti góðan leik þegar Drott tryggði sér sæti í úrslitaleiknum um sænska meistaratitilinn á móti Sävehof eftir 34-27 útisigur á Ystad í oddaleik í undanúrslitunum. Drott vann seinni hálfleikinn með 9 marka mun. Handbolti 2.5.2010 13:39
Gunnar Steinn: Við erum með betra lið en Ystad Gunnar Steinn Jónsson og félagar í Drott eru komnir í oddaleik í undanúrslitum sænska handboltans og geta tryggt sér sæti í úrslitaleiknum á móti Sävehof vinni þeir Ystad í dag. Gunnar Steinn og félagar verða í beinni útsendingu á SVT 2 sem næst á Digital Ísland. Handbolti 1.5.2010 21:41
Róbert og félagar annað árið í röð í úrslitaleik í Evrópukeppni Róbert Gunnarsson og félagar í VfL Gummersbach tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitaleiknum í Evrópukeppni bikarhafa með því að vinna 31-28 sigur á Portland San Antonio á Spáni. Handbolti 1.5.2010 18:55
Björgvin Páll besti maður vallarins þegar Kadetten fór í úrslit Björgvin Páll Gústavsson og félagar í Kadetten Schaffhausen tryggðu sér sæti í úrslitaleik EHF-bikarsins með 24-22 sigri á SG Flensburg-Handewitt í seinni undanúrslitaleik liðanna í Sviss í dag. Flensburg vann fyrri leikinn 31-30 á heimavelli. Handbolti 1.5.2010 17:30
Sigurður Ari og félagar í Elverum náðu bronsinu Sigurður Ari Stefánsson og félagar í Elverum urðu í 3. sæti í úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir 27-26 sigur á Øyestad í bronsleiknum í dag. Elverum tapaði 24-25 fyrir Runar í undanúrslitaleiknum í gær en úrslitahelgin fór öll fram í Drammen. Handbolti 1.5.2010 11:05
Gunnar Steinn með stórleik er Drott tryggði sér oddaleik Gunnar Steinn Jónsson átti stórleik er Drott náði að tryggja sér oddaleik gegn Ystad í undanúrslitum sænsku úrslitakeppninnar í handbolta. Handbolti 30.4.2010 07:40
Arnór markahæstur í tapleik FCK tapaði í gær mikilvægum leik í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Handbolti 29.4.2010 09:46
Gunnar Steinn og félagar töpuðu aftur Úrslitakeppnin í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta er nú í fullum gangi en Drott tapaði í gær fyrir Ystad í þriðja leik liðanna í undanúrslitum. Handbolti 28.4.2010 11:30
Sigurður Ari með níu í stórsigri Elverum Elverum tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum í úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í handbolta með stórsigri á BSK/NIF, 44-21. Handbolti 25.4.2010 22:19
Gummersbach vann fyrri undanúrslitaleikinn Róbert Gunnarsson skoraði tvö mörk fyrir Gummersbach sem vann fjögurra marka sigur, 30-26, á San Antonio frá Spáni í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Evrópukeppni bikarhafa. Handbolti 25.4.2010 15:21
Óvæntur sigur Nordsjælland á deildarmeisturunum Gísli Kristjánsson og félagar í Nordsjælland unnu afar óvæntan útisigur á deildarmeisturum Bjerrinbro-Silkeborg í úrslitakeppninni í Danmörku í gær. Handbolti 25.4.2010 12:45
Flensburg lagði Kadetten Schaffhausen Fyrri viðureign Flensburg og Kadetten Schaffhausen frá Sviss í undanúrslitum EHF-bikarkeppninnar fór fram á heimavelli fyrrnefnda liðsins í Þýskalandi í dag. Flensburg vann þar nauman sigur, 31-30. Handbolti 24.4.2010 20:13
Óvænt tap Elverum Elverum tapaði óvænt fyrsta leik sínum í úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í kvöld. Handbolti 23.4.2010 18:53
Aðalsteinn Eyjólfsson tekur við liði Eisenach Aðalsteinn Eyjólfsson verður næsti þjálfari þýska 2. deildarliðsins ThSV Eisenach en þetta var tilkynnt á heimasíðu félagsins í dag. Aðalsteinn þjálfaði síðast 3. deildarliðið SVH Kassel en tekur nú við liði Eisenach sem var einu sinni í þýsku bundesligunni og þjálfað um tíma af Rúnari Sigtryggssyni. Handbolti 20.4.2010 17:04
Jónatan Þór búinn að semja við Kristiansund Akureyringurinn Jónatan Þór Magnússon hefur skrifað undir þriggja ára samning við norska C-deildarliðið Kristiansund. Handbolti 19.4.2010 15:15
Björgvin og Alexander mætast í Evrópukeppninni Í morgun var dregið í undanúrslit í EHF-keppninni og Evrópukeppni bikarhafa í handbolta. Íslendingalið voru í báðum pottum. Handbolti 6.4.2010 09:36
Góð úrslit fyrir íslensku stelpurnar - vantar bara eitt stig í viðbót Frakkar unnu öruggan 29-22 sigur á Austurríki í undankeppni Evrópumóts kvenna í handbolta í kvöld sem voru mjög góð úrslit fyrir íslenska kvennalandsliðið. Frakkar hafa tryggt sér sæti á EM en Ísland hefur fjögurra stiga forskot á Austurríki í baráttunni um annað sætið. Handbolti 4.4.2010 23:12
Lemgo þriðja Íslendingaliðið í undanúrslitum EHF-bikarsins Lemgo varð í kvöld þriðja Íslendingaliðið til þess að tryggja sér sæti í undanúrslitum EHF-bikarsins í handbolta en áður höfðu lið Björgvins Páls Gústavssonar og Alexanders Petersson komist áfram í keppninni í gær. Vignir Svavarsson lék með Lemgo en Logi Geirsson spilaði ekki. Handbolti 4.4.2010 19:56
Björgvin og Alexander komnir með liðum sínum í undanúrslit Landsliðsmennirnir Björgvin Páll Gústavsson og Alexander Petersson komust í gær í undanúrslit EHF-bikarsins í handbolta með liðum sínum Kadetten og Flensburg. Handbolti 4.4.2010 14:39
Róbert með stórleik í Evrópukeppninni Gummersbach er í góðri stöðu í Evrópukeppni bikarhafa eftir frábæran fimm marka sigur, 27-32, á útivelli gegn danska liðinu Team Tvis Holstebro. Handbolti 28.3.2010 15:55
RN Löwen vann á Spáni Rhein-Neckar Löwen vann í dag útisigur gegn Valladolid frá Spáni í Meistaradeild Evrópu. Þetta var fyrri leikur liðanna í 16 liða úrslitum keppninnar. Handbolti 27.3.2010 19:46
Guðmundur íþróttastjóri hjá AG - Arnór og Snorri með AG Núna rétt í þessu hófst blaðamannafundur í Bröndby þar sem tilkynnt er að Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands, í handknattleik hafi verið ráðinn íþróttastjóri hjá danska ofurliðinu AG Köbenhavn. Handbolti 26.3.2010 09:05
Framkonur töpuðu seinni leiknum með sex mörkum og eru úr leik Fram er úr leik í Áskorendakeppni Evrópu eftir sex marka tap á móti Metalurg, 15-21, í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum sem fram fór í Skopje í Makedóníu. Fram vann fyrri leikinn með þremur mörkum á sama stað í gær en náði ekki að tryggja sér sæti í undanúrslitunum. Handbolti 14.3.2010 18:16
Lino Cervar horfði á Framstelpurnar vinna Metalurg í gær Lino Cervar, landsliðsþjálfari karlaliðs Króatíu, var á meðal áhorfenda þegar Framkonur unnu 29-26 sigur á Metalurg í gær í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Áskorendakeppni Evrópu. Báðir leikir liðanna fara fram í Skopje í Makedóníu. Handbolti 14.3.2010 16:38
Framkonur unnu fyrri leikinn í Makedóníu með þremur mörkum Bikarmeistarar Fram eru í ágætum málum eftir fyrri leik sinn á móti Metalurg frá Makedóníu í Áskoraendakeppni Evrópu. Framkonur unnu 29-26 sigur í leik liðanna í Makedóníu í dag þar sem Íris Björk Símonardóttir átti stórleik í markinu og varði 24 skot. Handbolti 13.3.2010 19:07
Alfreð til Noregs Handknattleiksþjálfarinn Alfreð Örn Finnsson tekur við norska handknattleiksliðinu Volda næsta sumar. Handbolti 10.3.2010 13:43
Ekkert athugavert við dómgæsluna í Framleiknum í Slóvakíu Kæra Framara vegna fram slóvensku dómurunum Darko Repensiek og Janko Pozenznik vegna dómgæslu þeirra í viðureignum Fram og Tatran Presov í 2. umferð EHF-keppninnar í handknattleik karla í október hefur verið tekin fyrir og þótti ekkert athugavert við frammistöðu dómara leiksins. Handbolti 8.3.2010 17:11
EHF-bikarinn: Búið að draga í 8-liða úrslit Það voru fjögur Íslendingalið í pottinum þegar var dregið í 8-liða úrslit EHF-bikarsins í handbolta í morgun. Á einhvern ótrúlegan hátt náðu Íslendingaliðin hins vegar að sleppa við að mæta hvort öðru. Handbolti 23.2.2010 11:02
Haukarnir stóðu sig miklu betur í seinni leiknum - töpuðu með einu Haukar eru úr leik í EHF-bikarnum í handbolta eftir 23-24 tap á móti Naturhouse La Rioja í seinni leik liðanna í sextán liða úrslitum keppninnar. Naturhouse La Rioja vann fyrri leikinn 34-24 og þar með samanlagt 58-47. Handbolti 21.2.2010 20:35