Handbolti „
23 24 25 26 27 28 29 30 31 … 293 ›
„Munum gefa okkur góðan tíma til að finna eftirmann“ „Þetta er bara sameiginleg niðurstaða okkar. Við áttum spjall saman og eftir að hafa farið yfir þetta þá var þetta bara sameiginleg niðurstaða okkar,“ sagði Guðmundur B. Ólafsson, formaður handknattleikssambands Íslands, um þá ákvörðun að Guðmundur Þórður Guðmundsson myndi ekki halda áfram með íslenska karlalandsliðið í handbolta. Handbolti 21.2.2023 18:12
Snorri Steinn um stórleikinn að Hlíðarenda: „Allt meira og stærra“ Valur mætir franska liðinu PAUC í eiginlegum úrslitaleik um sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildar karla í handbolta. Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, segir sína menn orðna nokkuð sjóaða í leikjum sem þessum. Handbolti 21.2.2023 09:01
„Við gáfum ekki of mikið færi á okkur í lokin“ Ásgeir Örn Hallgrímsson, þjálfari Hauka, var sáttur með frammistöðu sinna manna er liðið vann Aftureldingu með tveimur mörkum 26-24 í 16. umferð Olís-deild karla í kvöld. Haukar voru undir bróðurpart leiksins en þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka gáfu þeir í og tryggðu sér stigin tvö. Handbolti 20.2.2023 22:31
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Afturelding - Haukar 24-26 | Gestirnir áfram með hreðjatak á Mosfellsbænum Einn leikur fór fram í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Haukar heimsóttu Mosfellsbæ en fara þarf 88 mánuði aftur í tímann til að finna síðasta tap Hauka þar í bæ. Haukarnir voru nálægt því að missa frá sér örugga forystu undir lok leiks í kvöld en allt kom fyrir ekki og gestirnir fóru heim með stigin tvö. Handbolti 20.2.2023 18:46
Stefnir í að Donni verði með gegn Val annað kvöld Donni, Kristján Örn Kristjánsson, verður að öllum líkindum með franska liðinu PAUC þegar það heimsækir Val í Evrópudeildinni í handbolta annað kvöld. Stutt er síðan Donni fékk leyfi frá störfum þar sem hann glímdi við kulnun. Handbolti 20.2.2023 18:30
Lagði skóna á hilluna í fyrra en snéri aftur með uppeldisfélaginu eftir 14 ára fjarveru Handboltakonan Hildur Þorgeirsdóttir dró skóna fram á ný þegar FH vann öruggan tíu marka sigur gegn Fjölni/Fylki í Grill 66 deild kvenna í gærkvöldi. Hildur lagði skóna á hilluna eftir seinasta tímabil og í gær var hún að leika með uppeldisfélagi sínu í fyrsta skipti síðan árið 2009. Handbolti 20.2.2023 07:00
Íslendinglið Ribe-Esbjerg tapaði í undanúrslitum | Díana Dögg frábær Ribe-Esbjerg mátti þola tap í undanúrslitum dönsku bikarkeppninnar í handbolta. Elvar Ásgeirsson, Ágúst Elí Björgvinsson og Arnar Birkir Hálfdánsson spila með liðinu. Þá átti Díana Dögg Magnúsdóttir frábæran leik í Þýskalandi. Handbolti 18.2.2023 21:00
Haukar slitu sig frá Selfyssingum með fimm marka sigri Haukar lögðu Selfoss 35-30 í Olís deild kvenna í handbolta í dag. Sigurinn þýðir að nú er sex stiga munur á liðunum sem sitja í 6. og 7. sæti deildarinnar sem inniheldur aðeins 8 lið. HK er sem fyrr á botni deildarinnar með aðeins tvö stig. Handbolti 18.2.2023 18:01
Ætlaði út en þjálfarinn stöðvaði hann: „Þú ert ekki að fara neitt“ Þorgils Jón Svölu Baldursson, leikmaður Íslandsmeistara Vals, var nálægt því að yfirgefa liðið áður en yfirstandandi tímabil hófst. Hann leitaði sér þá að liði í Danmörku nálægt kærustu sinni, Lovísu Thompson, sem var á leið til Ringkøbing Håndbold. Handbolti 18.2.2023 13:31
Umfjöllun: ÍR - Fram 23-34 | Fram fór þægilega áfram í undanúrslit Fram vann sannfærandi 23-34 sigur þegar liðið sótti ÍR heim í Skógarsel í átta liða úrslitum Powerade-bikars karla í handbolta í kvöld. Handbolti 15.2.2023 17:16
Dagur Sig og Ingunn Sigurpáls nýtt par Handboltagoðsögnin Dagur Sigurðsson er kominn á fast samkvæmt heimildum Vísis. Sú heppna heitir Ingunn Sigurpálsdóttir og er markaðsfulltrúi Bpro. Lífið 15.2.2023 14:00
Hafði áhyggjur af því að þjálfarinn myndi fá hjartaáfall og deyja á bekknum Guðjón Valur Sigurðsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta, fer ýtarlega yfir feril sinn á heimasíðu evrópska handknattleikssambandsins í grein sem birtist fyrr í dag. Þar minnist hann meðal annars tíma síns hjá Rhein-Neckar Löwen þegar Daninn Nikolaj Jakobsen stýrði liðinu. Handbolti 14.2.2023 23:31
Fyrirliði tyrkneska landsliðsins og fimm ára sonur hans létust í jarðskjálftanum Þær sorglegu fréttir hafa borist frá Tyrklandi að fyrirliði handboltalandsliðsins og fimm ára sonur hans hafi látist í jarðskjálftanum mikla þar í landi. Handbolti 14.2.2023 11:27
„Eru kannski tvö óþægilegustu lið keppninnar að mætast“ „Ég er nú búinn að vera í eitt og hálft ár hérna hjá Val og mér finnst allt einhvernveginn vera úrslitaleikir,“ sagði Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Vals, en liðið mætir Benidorm í mikilvægum leik í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Handbolti 14.2.2023 07:00
„Eins skrítið og það hljómar þá var ekki mikill ótti“ Aron Rafn Eðvarsson var mættur aftur í mark Hauka í Olís deild karla í handbolta eftir 11 mánaða fjarveru fjarveru vegna höfuðmeiðsla. Hann er ánægður með að vera kominn aftur á völlinn og er nú betur varinn en áður. Sem betur fer því hann fékk skot í höfuðið í leik Hauka og Stjörnunnar á fimmtudagskvöldið var. Handbolti 11.2.2023 08:01
Fram fór létt með HK Fram vann einstaklega þægilegan 13 marka sigur á HK í Olís deild kvenna í handbolta, lokatölur 39-26. Handbolti 10.2.2023 21:16
Ætlum að gera okkar besta til að koma okkur í Höllina Valur bar sigurorð af KA fyrir norðan, 32-36, í áhugaverðum leik í Olís deild karla. KA liðið hélt lengi vel í við gestina sem reyndust þó að lokum of stór biti. Handbolti 10.2.2023 20:16
Naum töp hjá Viktori Gísla og Gísla Þorgeiri Fimm leikir fóru fram í Meistaradeildar Evrópu í handbolta í kvöld. Gísli Þorgeir Kristjánsson átti stórleik í liði Magdeburg sem varð samt að sætta sig við tap. Þá töpuðu Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar í Nantes naumlega fyrir Celje Pivovarna Laško á heimavelli. Handbolti 9.2.2023 22:31
Halldór Stefán tekur við KA í sumar Handknattleiksdeild KA hefur staðfest að Halldór Stefán Haraldsson muni taka við þjálfun liðs KA í Olís deild karla í sumar. Hann skrifar undir þriggja ára samning. Handbolti 9.2.2023 21:31
Ánægður að við gefum ekkert eftir Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, var nokkuð sáttur með leik sinna manna í kvöld gegn Haukum að Ásvöllum. Leikurinn endaði með jafntefli 33-33, eftir að heimamenn höfðu leitt leikinn megnið af leiktímanum. Handbolti 9.2.2023 21:00
Svekkjandi tap Gummersbach | Ýmir Örn hafði betur gegn Sveini Íslendingalið Gummersbach mátti þola tap með minnsta mun gegn Lemgo í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Ýmir Örn Gíslason og félagar í Rhein Neckar Löwen unnu stórsigur á Minden. Sveinn Jóhannsson leikur með Minden. Handbolti 9.2.2023 20:30
Fínn leikur Ágústs Elís dugði ekki Ágúst Elí Björgvinsson átti fínan leik í marki Ribe-Esbjerg þegar liðið tapaði með minnsta mun gegn Bjerringbro-Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Hvorki Elvar Ásgeirsson né Arnar Birkir Hálfdánsson léku með Ribe-Esbjerg. Handbolti 9.2.2023 19:30
„Munurinn á atvinnumennsku og ekki-atvinnumennsku kom svolítið í ljós“ Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, gat verið stoltur af sínu liði þrátt fyrir þriggja marka tap gegn Flensburg í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Handbolti 7.2.2023 23:15
„Erum marki yfir þegar tuttugu mínútur eru eftir og þá er þetta bara leikur“ Alexander Örn Júlíusson, leikmaður Vals, var eðlilega svekktur eftir tap sinna manna gegn Flensburg í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Hann segir að liðið hafi átt nóg inni og því sé enn meira svekkelsi yfir tapinu. Handbolti 7.2.2023 22:26
Óðinn markahæstur í tapi Kadetten Óðinn Þór Ríkharðsson var markahæsti maður Kadetten Schaffhausen með átta mörk er liðið heimsótti Montpellier í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Það dugði þó ekki til því liðið mátti þola fjögrra marka tap, 40-36. Handbolti 7.2.2023 22:06
Þriðja Evróputapið í röð hjá Kristjáni og félögum Kristján Örn Kristjánsson og félagar hans í franska liðinu PAUC máttu þola þriggja marka tap er liðið sótti Frencváros heim til Ungverjalands í B-riðli Evrópudeildarinnar í handbolta í kvöld. Lokatölur 28-25, en þetta var þriðja tap liðsins í keppninni í röð. Handbolti 7.2.2023 19:20
Ótrúleg mæting á langþráðar handboltaæfingar á Akranesi Akranes hefur hingað til ekki verið þekkt fyrir að vera mikill handboltabær. En það gæti breyst. Í gær hófust nefnilega handboltaæfingar í bænum og á fyrstu æfingunum voru 140 krakkar. Handbolti 6.2.2023 14:01
Vann alla leikina en fær ekki að þjálfa suður-kóresku stelpurnar áfram Danski handboltaþjálfarinn Kim Rasmussen fær ekki nýjan samning sem þjálfari suður-kóreska kvennalandsliðsins í handbolta þrátt fyrir gott gengi. Handbolti 2.2.2023 16:00
Góður leikur Aldísar Ástu dugði ekki Aldís Ásta Heimisdóttir átti góðan leik í liði Skara í efstu deild sænska handboltans í kvöld. Það dugði þó ekki til þar sem lið hennar Skara mátti þola tveggja marka tap á útivelli gegn Skuru. Handbolti 1.2.2023 22:31
Samningi Lovísu í Noregi rift Lovísa Thompson, landsliðskona í handbolta, mun ekki klára tímabilið með Tertnes í Noregi en samningi hennar þar var rift þar sem hún er að glíma við meiðsli og er frá keppni. Handbolti 1.2.2023 20:30