Ástin á götunni
328 329 330 331 332 333 334 … 334 ›
Fylkir - ÍA Hjörtur Hjartarson tryggði Akurnesingum öll stigin gegn Fylki með marki úr vítaspyrnu sem Skagamenn fengu gefins sex mínútum fyrir leikslok í 3 - 2 sigri Skagamanna í Árbænum. Sport 13.10.2005 19:38
Myhre til Charlton Norski landsliðsmarkvörðurinn, Thomas Myhre er genginn til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Charlton frá Fredrikstad í Noregi. Aðalmarkvörður Charlton Dean Kiely er meiddur. Myhre hefur leikið áður með Everton og Sunderland. Sport 13.10.2005 19:39
Ísland U17 náði 7. sæti U17 ára landslið Íslands vann Finna 4-2, á ÍR-velli í leik um 7. sætið á Opna Norðurlandamótinu í knattspyrnu í dag. Guðmundur Reynir Gunnarsson skoraði 2 mörk fyrir Ísland en Hilmir Ægisson og Rafn Andri Halldórsson eitt hvor. Írar urðu sigurvegarar mótsins en þeir lögðu Englendinga 2-0 í úrslitaleiknum. Sport 13.10.2005 19:38
Chelsea vann Arsenal Chelsea lagði Arsenal 2-1 í hinum árlega úrslitaleik Englandsmeistara og bikarmeistara í knattspyrnu en leiknum var að ljúka í Cardiff. Didier Drogba skoraði bæði mörk Chelsea en Francesc Fabregas minnkaði muninn fyrir Arsenal. Sport 13.10.2005 19:38
PSG lagði Sochaux í Frakklandi Önnur umferðin í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu fer fram um helgina. Paris St. Germain sigraði Sochaux á útivelli 1-0 og hefur því sigrað í báðum leikjum sínum líkt og Bordeaux sem vann nýliðana í Nancy 1-0. Auxerre sigraði Monaco 2-0 á útivelli. Sport 13.10.2005 19:38
Leikið við Suður-Afríkumenn Suður-Afríkumenn verða mótherjar íslenska landsliðsins í knattspyrnu á Laugardalsvellinum í næstu viku. Illa hefur gengið að fá mótherja fyrir landsliðið, fyrst gengu Venesúelar úr skaftinu og síðan Kólumbíumenn. Sport 13.10.2005 19:38
Lokeren og Genk skildu jöfn Keppni í belgísku 1. deildinni í knattspyrnu hófst í gær. Lokeren og Genk gerðu 1-1 jafntefli. Indriði Sigurðsson kom inná á 38. mínútu fyrir Gert Claessens í vörn Genk. Arnar Viðarsson lék allan leikinn með Lokeren, Rúnar Kristinsson byrjaði inn á en Arnar Grétarsson leysti hann af hólmi á 80. mínútu. Sport 13.10.2005 19:38
Blikar nær sæti í Landsbankadeild Breiðablik færðist nær sæti í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í gær þegar liðið sigraði Þór með einu marki gegn engu. Kristján Óli Sigurðsson skoraði markið en tveimur leikmönnum Þórs var vísað útaf 10 mínútum fyrir leikslok. Sport 13.10.2005 19:38
Gylfi sat á bakknum hjá Leeds Gylfi Einarsson sat á varamannabekk Leeds Utd sem vann Millwall 2-1 í ensku 1. deildinni í knattspyrnu í dag. Gylfi kom hins vegar ekkert við sögu í leiknum. Þetta var eini leikurinn á dagskrá í deildinni í dag. Sport 13.10.2005 19:38
Arsenal minnkar muninn Francesc Fabregas hefur minnkað muninn fyrir Arsenal, 2-1 gegn Chelsea á Millennium Stadium í Cardiff. Markið kom á 65. mínútu eftir mistök hjá Tiago sem er nýkominn inn á í stað Eiðs Smára. Sport 13.10.2005 19:38
Chelsea 2-0 yfir gegn Arsenal Chelsea er 2-0 yfir gegn Arsenal í úrslitaleiknum um Samfélagsskjöldinn á Englandi en leikurinn hófst kl. 14:00. Didier Drogba hefur skorað bæði mörk Chelsea, það fyrra á 8. mínútu en seinna markið á 58. mínútu eftir sendingu frá Eiði Smára Guðjohnsen. Eiður var í byrjunarliði Chelsea í hlutverki miðjumanns en var skipt úr af fyrir Tiago strax eftir seinna markið. Sport 13.10.2005 19:38
Ajax meistari meistaranna Ajax sigraði PSV Eindhoven 2-1 í meistaraleiknum í hollenska fótboltanum. Wilfred Bouma kom PSV yfir í byrjun síðari hálfleiks en Nourdin Boukhari og Ryan Babel skoruðu fyrir Ajax. Sport 13.10.2005 19:38
Flo hættir með norska landsliðinu Tore Andre Flo hefur spilað sinn síðasta landsleik fyrir Norðmenn. Flo lék 76 leiki með norska landsliðinu og skoraði 23 mörk. Sport 13.10.2005 19:38
Bayern byrjar titilvörnina vel Keppni í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hófst í gærkvöldi þegar Þýskalandsmeistarar Bayern München burstuðu Borussia Mönchengladbach 3-0. Leikurinn var háður á hinum nýja og glæislega Allianz-velli sem tekur 66 þúsund áhorfendur. Sport 13.10.2005 19:38
Haukar lögðu Fjölni Haukar sigruðu Fjölni með tveimur mörkum gegn einu í 1. deild karla í fótboltanum í gærkvöldi. Í 2. deild sigraði Afturelding, Njarðvík 2-1 og Selfoss sigraði Leikni 1-0. Þrátt fyrir ósigurinn hefur Leiknir enn tveggja stiga forystu á Stjörnuna sem á leik til góða gegn Tindastóli í dag. Sport 13.10.2005 19:38
Figo orðinn leikmaður Inter Portúgalski miðjumaðurinn Luis Figo hefur skrifað undir tveggja ára samning við ítalska félagið Inter Milan en hann kemur frá spænska risaliðinu Real Madrid. Figo segist eiga nóg eftir í boltanum og hlakkar til að takast á við komandi verkefni hjá Inter. Sport 13.10.2005 19:38
U17 tapaði fyrir Noregi í dag U17 landslið Íslands í knattspyrnu karla lenti í neðsta sæti síns riðils á Norðurlandamótinu. Það tapaði 1-0 fyrir Noregi á Kaplakrikavelli í dag. Íslensku strákarnir töpuðu þar með öllum þremur leikjum sínum í riðlinum, skoruðu ekkert mark en fengu sjö á sig. Sport 13.10.2005 19:38
Saha verður frá næstu vikurnar Louis Saha, framherji Man. Utd, verður frá næstu vikurnar og gæti farið svo að hann yrði ekki leikfær fyrr en í nóvember. Sport 13.10.2005 19:38
Pandiani til Birmingham Birmingham hefur loksins gengið formlega frá kaupum á sóknarmanni Uruguay, Walter Pandiani, sem eyddi stórum hluta síðasta tímabils á láni hjá félaginu og stóð sig mjög vel. Hinn 29 ára gamli Pandiani skrifaði undir þriggja ára samning við Birmingham og er kaupverðið talið vera um þrjár milljónir punda, en Pandiani kemur frá Deportivo á Spáni. Sport 13.10.2005 19:38
Pearce vill fá Malbranque Forráðamenn Fulham hafa hafnað fimm milljón punda tilboði Man.City í franska miðjumanninn Steed Malbranque. Þetta er í annað sinn á tæpri viku sem Fulham hafnar tilboði frá Stuart Pearce og félögum. Sport 13.10.2005 19:38
Essien neitar að spila fyrir Lyon Farsinn í kringum Mickael Essien og deilu hans við lið sitt Lyon heldur áfram og nú hefur hann tilkynnt forráðamönnum félagsins að hann muni ekki spila fyrir liðið á meðan þeir neiti honum um sölu til Chelsea. Sport 13.10.2005 19:38
Leikið við Norðmenn á NM Riðlakeppni opna Norðurlandamótsins í knattspyrnu hjá leikmönnum 17 ára og yngri lýkur í dag. Íslendingar mæta Norðmönnum á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði klukkan 14.30. Bæði lið eru án stiga en Írar og Danir leika til úrslita um sigur í riðlinum. Leikurinn verður á Kópavogsvelli. Í hinum riðlinum keppa Englendingar og Svíar á Akranesi og Finnar og Færeyingar í Borgarnesi. Sport 13.10.2005 19:38
Coco í viðræðum við Newcastle Francesco Coco, fyrrverandi leikmaður AC Milan og Barcelona, á nú í viðræðum við Newcastle United. Sport 13.10.2005 19:37
Valsmenn leiða í hálfleik Valur leiðir 1-0 gegn Fylki þegar flautað hefur verið til hálfleiks í undanúrslitaleik liðanna í VISA bikar karla í knattspyrnu. Garðar Gunnlaugsson skoraði markið á 3. mínútu en leikurinn sem fer fram á Laugardalsvelli hófst kl. 19:40. Valsmenn hafa verið ögn sterkari í fyrri hálfleik og verið skynsamari. Sport 13.10.2005 19:37
Phil Neville til Everton Phil Neville er genginn til lið við Everton frá Manchester United fyrir 3 milljónir punda. Phil Neville hefur leikið með United allan sinn ferilen. Phil, sem er 28 ára, hefur leikið 52 landsleiki fyrir Englands hönd og lék 392 leiki fyrir Manchester United Sport 13.10.2005 19:37
Garðar búinn að skora fyrir Val Garðar Gunnlaugsson hefur komið Val 1-0 yfir gegn Fylki strax á 3. mínútu í undanúrslitaleik liðanna í VISA bikarnum. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og hófst kl. 19:40. Mark Garðars kom eftir sendingu frá Bjarna Ólafi Eiríkssyni af vinstri kanti. Þetta er sjöunda mark Garðars fyrir Val í 4 leikjum í bikarkeppninni. Sport 13.10.2005 19:37
Garðar skorar aftur fyrir Val Garðar Gunnlaugsson hefur skorað aftur fyrir Val sem er við það að tryggja sig í úrslitaleik VISA bikarkeppni karla og er nú 2-0 yfir gegn Fylkir á Laugardalsvelli. Markið kom á 82. mínútu og hefur Garðar gert bæði mörk Vals. Daninn Christian Christiansen sem kom inn sem varamaður gerði stutt stopp á vellinum og hefur fengið rautt spjald. Sport 13.10.2005 19:37
Wenger: Á ég að fara í spilavítið? Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal segir að Chelsea sé að borga tvöfalt markaðsverð á þeim leikmönnum sem þeir kaupa. Wenger hefur verið undir pressu undanfarna daga frá stuðningsmönnum sem vilja að hann kaupi nýja leikmenn á meðan ríku félögin Real Madrid og Chelsea eru að hrifsa hvern leikmanninn á fætur öðrum sem Wenger ætlaði að kaupa. Sport 13.10.2005 19:37
Kólombíumenn voru líka sviknir Það var ekki aðeins íslenska knattspyrnusambandsið sem var svikið í landsleikjamálum nýlega. Í ljós hefur komið að ástæðan fyrir því að Kólombíumenn geta komið og leikið á Íslandi með svo skömmum fyrirvara er sú að þeir urðu fyrir sömu reynslu með Ástrala. Sport 13.10.2005 19:37
"Borgvardt var munurinn" Ólafur Kristjánsson þjálfari Fram var í skýjunum með baráttu sinna manna í sigurleiknum gegn FH í gærkvöldi en þá tryggði Fram sér farseðilinn í úrslitaleik VISA bikarsins. Fram var síst lakari aðilinn í fyrri hálfleik þó þeir væru tveimur mörkum undir í hálfleik. "<em>Munurinn á liðunum í fyrri hálfleik var bara Allan Borgvardt</em>." sagði Ólafur. Sport 13.10.2005 19:37