Ástin á götunni
315 316 317 318 319 320 321 322 323 … 334 ›
Frábær sigur Bayern Bayern München vann frábæran sigur á Bayer Leverkusen 5-2 á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni. Roy Makaay gerði þrennu fyrir Bayern og þeir Michael Ballack og Íraninn Karimi eitt hvor. Búlgarinn Dimitar Berbatov og Babic gerðu mörk Leverkusen. Úrslit annara leikja... Sport 13.10.2005 19:41
Davids missir af fyrsta leik Edgar Davids mun ekki leika með Tottenham í fyrsta leik liðsins gegn Portsmouth sem fram fer á morgun. Hann á við minniháttar hnémeiðsli að stríða og verður ekki leikfær. Davids gekk til liðs við Tottenham í sumar frá Inter Milan á frjálsri sölu. Sport 13.10.2005 19:40
Ólafur Ingi með slitið krossband Ólafur Ingi Skúlason, fyrrverandi leikmaður Arsenal og núverandi leikmaður Brentford á Englandi er með slitið fremra krossband á vinstra hnéi. Ólafur Ingi meiddist í leik gegn Chesterfield fyrr í vikunni en var úrskurðaður krossbandsslitinn fyrr í dag. Áætlað er að leikmaðurinn verði frá keppni í 7-8 mánuði. Sport 13.10.2005 19:40
Sigrar hjá Akureyrarliðunum Akureyrarliðin KA og Þór unnu bæða góða sigra í kvöld í 1.deild karla í knattspyrnu. KA sigraði KS á Siglufirði 5-0 og Þór sigraði Hauka 2-0 á Akureyri. Í þriðja leik kvöldsins gerðu HK og Víkingur markalaust jafntefli í Kópavoginum. Sport 13.10.2005 19:40
A landslið kvenna valið Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari A landsliðs kvenna í knattspyrnu, hefur valið íslenska hópinn fyrir leikina gegn Hvíta-Rússlandi á Laugardalsvelli 21. ágúst og Svíþjóð ytra 28. ágúst í undankeppni HM. Sport 13.10.2005 19:40
Villa hækkar tilboð sitt í Baros Forráðamenn Aston Villa hafa nú í hyggju að hækka kauptilboð sitt í sóknarmanninn Milan Baros hjá Liverpool. Villa gerði á dögunu tilboð upp á sex milljónir punda í tékkneska leikmanninn, en Liverpool vill fá sjö milljónir fyrir hann. Sport 13.10.2005 19:40
Svanasöngur Shearer að hefjast Alan Shearer segist klár í slaginn fyrir síðasta keppnistímabil sitt sem leikmaður í ensku knattspyrnunni og gerir ráð fyrir að vera í byrjunarliði Newcastle gegn Arsenal á sunnudaginn. Sport 13.10.2005 19:40
Selfoss og Stjarnan skildu jöfn Stjarnan og Selfoss gerðu jafntefli, 3-3, í 2. deild karla í knattspyrnu í gærkvöld. Stjarnan er í efsta sæti deildarinnar með 27 stig, jafnmörg og Leiknir sem á leik til góða. Sport 13.10.2005 19:40
Scholes hjá United til 2009 Paul Scholes hefur gert fjögurra ára framlengingu á samningi sínum við Manchester United. Scholes, 31 árs hefur leikið með United allan sinn feril og hefur átta sinnum orðið Englandsmeistari og fjórum sinnum unnið bikarinn og þá vann hann Meistraradeildina árið 1999 með United. Sport 13.10.2005 19:40
Stórstjörnur boða komu í Egilshöll Fjöldi stórstjarna úr ensku knattspyrnunni á árum áður staðfestu í dag komu sína til Íslands til að taka þátt alþjóðlegu knattspyrnumóti í Egilshöll í byrjun nóvember. Það Íslandsvinurinn Ian Rush sem stendur fyrir mótinu í samvinnu við Icelandair. Lið frá Arsenal, Liverpool og Man Utd munu keppa sín á milli og við íslensk lið. Sport 13.10.2005 19:40
Markalaust í hálfleik á Skaganum Markalaust er í hálfleik hjá ÍA og Val í 13. umferð Landsbankadeildar karla í fótbolta en leikurinn fer nú fram uppi á Skaga. Leikurinn er fremur tíðindalítill þó að hann sé ágætlega leikinn en er jafn og spennandi. Sport 13.10.2005 19:40
Man Utd að fá brasilískan bakvörð? Manchester United hefur áhuga á brasilíska varnarmanninum Cicinho. Sir Alex Ferguson sá þennan leikmann spila með Brasilíu í Álfukeppninni og var það ánægður með frammistöðu hans að hann ákvað að leggja fram tilboð. Sport 13.10.2005 19:40
2-0 tap Keflavíkur gegn Mainz Keflvíkingar töpuðu fyrir þýska Bundesliguliðinu Mainz, 2-0 í fyrri leik liðanna í 2. umferð Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu í kvöld. Fyrra markið kom á 10. mínútu eftir sendingu af vinstri kanti inn í teig þaðan sem Benjamin Auer skallaði boltann yfir Ómar Jóhansson markvörð og í hægra hornið. Keflvíkingar lentu svo 2-0 undir á 71. mínútu. Sport 13.10.2005 19:40
Ólýsanleg stemming í Frankfurt Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflvíkinga sagðist þokkalega sáttur við leik sinna manna í Frankfurt í gær, þrátt fyrir tapið. "Auðvitað er alltaf leiðinlegt að tapa og maður fer auðvitað ekki í leiki með annað fyrir augum en að sigra, en ég held að maður meigi nú alveg una því að tapa 2-0 á útivelli fyrir liði í Bundesligunni," sagði Kristján, sem var ekkert sérlega kátur með dómara leiksins. Sport 13.10.2005 19:40
Leikum aftarlega gegn Mainz Kristján Guðmundsson þjálfari knattspyrnuliðs Keflavíkur segir að hann ætli að láta lið sitt spila varnarbolta gegn þýska liðinu Mainz í 2. umferð Evrópukeppni félagsliða en liðin mætast í Þýskalandi í kvöld. Þýska liðið lenti í 11. sæti í þýsku Bundesligunni á síðasta tímabili en fékk Evrópusæti út á háttvísismat UEFA. Sport 13.10.2005 19:40
Fabregas hjá Arsenal til 2011 Spænski miðjumaðurinn Cesc Fabregas skrifaði í dag undir nýjan samning við enska úrvalsdeildarliðið Arsenal sem gildir til ársins 2011. Cesc sem er aðeins 18 ára á að leysa af hólmi stöðu Patrick Vieira sem á dögunum var seldur til Juventus. Sport 13.10.2005 19:40
Cisse varð fyrir kynþáttafordómum Knattspyrnusamband Evrópu hefur gefið til kynna að það hyggist grípa til aðgerða vegna kynþáttafordóma í garð sóknarmannsins Djibril Cisse í leiknum gegn CSKA Sofia í gær. Leikurinn fór fram í Sofiu en þetta var fyrri viðureign liðanna í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Sport 13.10.2005 19:40
Keflavík mætir Mainz í kvöld Lið Keflavíkur er nú í Frankfurt í Þýskalandi að búa sig undir leik gegn FSV Mainz í UEFA-keppninni sem verður í kvöld kl.18:30 að íslenskum tíma. Ferðin út gekk vel samkvæmt heimasíðu liðsins og vel fer um hópinn þar ytra. Í gær var æft á Commerzbank Arena-leikvanginum sem er stórglæsilegt mannvirki. Sport 13.10.2005 19:40
Breiðablik á góðri leið upp Breiðablik svo gott sem tryggði sér sæti í Landsbankadeild karla í fótbolta að ári þegar Kópvagsliðið sirgaði Víking á Ólafsvík í kvöld, 1-2 í fyrsta leik 14. umferðar í 1. deildar. Magnús Gunnarsson og Kristján Óli Sigurðsson skoruðu mörk Blika en Helgi R. Sigurðsson fyrir heimamenn í Ólafsvík. Sport 13.10.2005 19:40
Keflavík 1-0 undir í hálfleik Keflvíkingar eru 1-0 undir gegn Mainz í hálfleik í fyrri leik liðanna í 2. umferð Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu. Markið kom á 10. mínútu eftir sendingu af vinstri kanti inn í teig þaðan sem Benjamin Auer skallaði boltann yfir Ómar Jóhansson markvörð og í hægra hornið. Leikurinn hófst kl. 18:30. Sport 13.10.2005 19:40
Sóknarvandræði Newcastle Graeme Souness knattspyrnustjóri Newcastle á í stökustu vandræðum varðandi sóknarleikinn á St James' Park eftir að Michael Chopra meiddist illa í gær. Þessi U21 landsliðsmaður Englands skaðaði liðbönd á hægra hné eftir aðeins 15 mínútur í leik með varaliðinu í gær. Sport 13.10.2005 19:40
Valsstúlkur komnar í milliriðil Íslandsmeistarar Vals eru að gera frábæra hluti í UEFA-bikar kvenna í fótbolta en þær unnu finnsku meistarana FC United, 2-1 nú síðdegis og eru komnar í milliriðil. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði bæði mörk Vals og kom þeim í 2-0, það fyrra úr vítaspyrnu á 16. mínútu en seinna á 41. mínútu. Sport 13.10.2005 19:40
Byrjunarlið Keflavíkur tilkynnt Byrjunarlið Keflavíkur sem mætir Mainz í Evrópukeppni félagsliða í Þýskalandi á eftir hefur verið tilkynnt. Kristján Guðmundsson þjálfari gerir nokkrar breytingar á liði sínu frá síðasta leik. Hann setur Færeyinginn Simon Samuelsen í byrjunarliðið eftir fráæra frammistöðu gegn Þrótti í sínum fyrsta leik um sl. helgi. Leikurinn hefst kl. 18:30. Sport 13.10.2005 19:40
Keflavík 2-0 undir Keflvíkingar hafa lent 2-0 undir gegn Mainz þegar 71 mínúta er liðin af leiknum. Michael Johansen leikmaður Keflavíkur braut á leikmanni Mainz inni í vítateig og fengu heimamenn vítaspyrnu sem Christof Babatz skoraði úr. Einni mínútu áður átti Guðmundur Steinarsson besta færi Keflavíkur. Sport 13.10.2005 19:40
Veigar skoraði fyrir Stabæk Veigar Páll Gunnarsson skoraði fyrir Stabæk sem gerði 1-1 jafntefli við Follo í norsku 1. deildinni. Ólafur Ingi Skúlason meiddist á hné í gærkvöldi þegar lið hans Brentford sigraði Chesterfield 3-1 á útivelli. Sport 13.10.2005 19:40
Færast Blikar enn nær úrvalsdeild? Breiðablik svo gott sem tryggir sæti sitt í Landsbankadeildinni á næstu leiktíð takist liðinu að sigra Víking Ólafsvík í 1. deildinni í kvöld. Breiðablik hefur 7 stiga forystu á Víking og 11 stiga forystu á KA sem er í þriðja sæti. Sport 13.10.2005 19:40
Arsenal fær Song lánaðan Arsenal ætlar að fá Alexandre Billong Song á lánssamningi þessa leiktíð. Þessi 18 ára landsliðsmaður frá Kamerún stóð sig vel með félaginu í æfingaferð í Austurríki. Arsene Wenger mun eiga möguleika á að kaupa Song endanlega til félagsins næsta sumar fyrir tæplega þrjár milljónir punda. Sport 13.10.2005 19:40
Valsstúlkur mæta FC United í dag Íslandsmeistarar Vals keppa í dag við finnska liðið FC United í Evrópukeppni kvenna og verður leikurinn í Finnlandi. Valur hefur forystu í riðlinum eftir stórsigur á norsku meisturunum í Röa í fyrradag. Sport 13.10.2005 19:40
Normaður dæmir í 1.deild Norskur dómari, Ken Henry Johnsen, dæmir leik HK og Víkings R. í 1. deild karla sem fram fer á Kópavogsvellinum á föstudagskvöldið kemur, 12. ágúst. Samkvæmt tilkynningu sem KSÍ sendi frá sér í morgun er þetta liður í norrænum dómaraskiptum sem knattspyrnusamböndin á Norðurlöndum eru að hrinda í framkvæmd. Sport 13.10.2005 19:39
Hermann og Brynjar ekki með Þeir Hermann Hreiðarsson og Brynjar Björn Gunnarsson verða ekki með íslenska landsliðinu í vináttuleiknum gegn Suður-Afríku á Laugardalsvelli næstkomandi miðvikudag. Brynjar Björn er meiddur og Hermann fær hvíld í landsleiknum, þar sem hann hefur verið að vinna sig út úr erfiðum meiðslum. Sport 13.10.2005 19:39
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent