
Skoðanakannanir

Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum
Viðreisn er orðin stærsti flokkurinn í nýrri kosningaspá Metils, en afar mjótt er á munum milli Viðreisnar, Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar, sem skipa annað og þriðja sætið. Gangi spáin eftir næðu Sósíalistar, Vinstri grænir, Píratar og Lýðræðisflokkurinn ekki á þing.

Mikill meirihluti vill ekki sjá sjókvíaeldi í Seyðisfirði
Ný könnun leiðir í ljós að mikill meirihluti spurðra er andvígur fyrirhuguðu 10 þúsund tonna laxeldi í opnum sjókvíum í Seyðisfirði.

Framsókn með þriggja prósenta fylgi í borginni
Framsóknarflokkurinn mælist nú með þriggja prósenta fylgi í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Maskínu, Borgarvitanum. Yrði gengið til kosninga í sveitarstjórn í dag myndi flokkur borgarstjóra því ekki ná inn í borgarstjórn. Flokkurinn fékk 18,9 prósenta fylgi í kosningunum árið 2022.

Meirihluti styður verkfallsaðgerðir kennara
Tæplega 58 prósent svarenda í þjóðarpúlsi Gallup segjast styðja verkfallsaðgerðir Kennarasambands Íslands en tæpur þriðjungur styður þær ekki. Yngra fólk er líklegra til þess að styðja aðgerðirnar en eldra.

Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum
Samfylkingin og Viðreisn gætu myndað ríkisstjórn með einum eða tveimur flokkum í viðbót miðað við nýjustu könnun Maskínu. Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknar gæti verið í hættu á að ná ekki inn og fjölgun flokka á mörkum þess að ná inn þingmanni gæti boðið upp á strategíska kosningu.

Samfylkingin bætir við sig í fyrsta sinn síðan í maí og Píratar úti
Samfylkingin bætir við sig tæpum þremur prósentustigum á einni viku samkvæmt nýrri viðhorfskönnun Maskínu. Viðreisn og Sjálfstæðisflokkur bæta hvor um sig við sig einu prósentustigi. Sósíalistar tapa fylgi en haldast inni á þingi.

Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn jöfn í kosningaspá
Enn dalar fylgi Samfylkingarinnar samkvæmt niðurstöðum nýrrar kosningaspár úr smiðju Metils. Þær benda einnig til þess að hvorki Píratar, Sósíalistar né Vinstri græn nái manni inn á þing í komandi kosningum.

Staðan ólík því sem sést í Bandaríkjunum enda fylgið á fleygiferð
Viðreisn heldur áfram að auka fylgi sitt á meðan Samfylking, Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur lækka flugið. Þetta má lesa úr skoðanakönnunum Maskínu, Gallups og Prósents sem birtar hafa verið síðustu daga. Hafsteinn Birgir Einarsson stjórnmálafræðingur segir erfitt að spá fyrir um hvort þessi þróun haldi áfram.

Sósíalistar mælast inni og Vinstri græn í lífshættu
Ekki mælist marktækur munur á fylgi Samfylkingarinnar og Viðreisnar í nýrri könnun Maskínu. Sósíalistar bæta við sig tveimur prósentustigum og Miðflokkurinn tapar rúmlega tveimur. Prófessor í stjórmálafræði segir Viðreisn bæði njóta fylgis sem komi frá Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki. Þá séu Vinstri græn í raunverulegri lífshættu.

Fimm prósent segja innflytjendamálin mikilvægust
Efnahagsmál eru að flestra mati mikilvægasta mál komandi kosninga, en heilbrigðismál rata oftar á lista fólks yfir þau fimm málefni sem leggja þurfi áherslu á. Þrátt fyrir að hafa farið hátt í umræðunni telja aðeins fimm prósent að innflytjendamál séu mesta forgangsmálið.

Tveir af fimm telja hvalveiðar veikja stöðu Íslands í alþjóðlegum viðskiptum
Rúm fjörutíu prósent Íslendinga segjast telja að hvalveiðar veiki stöðu Íslands í alþjóðlegum viðskiptum. Tæplega fjórtán prósent segja veiðarnar styrkja stöðu Íslands að einhverju leyti. Hátt í helmingur telur veiðarnar ekki hafa nein áhrif.

Ósammála því að skoðanakannanir séu ekki nákvæmar
Framkvæmdastjóri markaðsrannsóknafyrirtækisins Maskínu segist ekki sammála því að skoðanakannanir séu ónákvæmar. Könnunum sé ekki ætlað að vera spá um úrslit kosninga heldur að mæla stöðuna á hverjum tíma.

Nýtt líkan nýjung á Íslandi: VG og Sósíalistar nái ekki á þing og óvissa um Miðflokk
Nýtt kosningalíkan bendir til að hvorki Vinstri græn né Sósíalistaflokkurinn nái manni á þing í komandi alþingiskosningum í lok mánaðar. Samkvæmt líkaninu munu Samfylkingin og Viðreisn enda með töluvert minna fylgi en reiknað er með í skoðanakönnunum á meðan Sjálfstæðisflokkurinn sækir í sig veðrið.

Helmingi þætti óeðlilegt ef Bjarni gæfi út hvalveiðileyfi
Ný könnun sýnir að 51 prósent landsmanna teldi óeðlilegt ef matvælaráðherra gæfi út leyfi til veiða á hvölum á meðan hann situr í starfsstjórn.

Flestir treysta Kristrúnu fyrir efnahagnum
Ný könnun Gallup bendir til þess að flestir landsmenn treysti helst Kristrúnu Frostadóttur, formanni Samfylkingar, af leiðtogum stjórnmálaflokkanna á Alþingi til að leiða stjórn efnahagsmála á Íslandi.

Ekkert fordæmi fyrir því að fólk kjósi taktískt í alþingiskosningum
Prófessor í stjórnmálafræði segir fylgi flokkanna enn á mikilli hreyfinu. Það sé ekki fordæmi fyrir því að fólk kjósi taktískt í alþingiskosningum en það gæti gerst núna. Hann segir að möguleiki sé á að sett verði nýtt Íslandsmet í dauðum atkvæðum.

Taka einn dag í einu og ætla að halda sínum kúrs
Formaður Viðreisnar segir nýjustu fylgismælingu ekki endilega koma sér á óvart, en þar mælist flokkur hennar með 19,4 prósenta fylgi. Hún á von á því að flokkur hennar verði skotspónn annarra flokka og jafnvel fleiri afla, þegar vel árar í könnunum.

Viðreisn á flugi í nýrri Maskínukönnun
Viðreisn er á mikilli siglingu samkvæmt nýrri könnun Maskínu og ekki er marktækur munur á fylgi hennar og Samfylkingarinnar. Prófessor í stjórnmálafræði segir hættu á að metfjöldi atkvæða falli niður dauður.

Spegill eða stjórntæki? Hlutverk skoðanakannana og almenningsálits í stefnumótun og stjórnmálum
Skoðanakannanir gegna lykilhlutverki í íslenskum stjórnmálum. Þær virka sem spegill sem endurspeglar vilja og viðhorf kjósenda en eru einnig notaðar sem áhrifaríkt stjórntæki fyrir stjórnmálaflokka sem vilja aðlaga stefnu sína að síbreytilegum aðstæðum og væntingum almennings.

Fjörutíu prósent kjósenda Miðflokks vilja Trump
Afgerandi meirihluti Íslendinga vill að Kamala Harris vinni kosningarnar vestanhafs í dag. 41 prósent þeirra sem segjast munu kjósa Miðflokkinn í komandi alþingiskosningum vilja aftur á móti sjá Trump vinna.

Repúblikanar önugir yfir óvæntu atriði Harris í SNL
Kamala Harris mælist með óvænt forskot á Donald Trump í ríki sem hann hefur hingað til unnið örugglega í forsetakosningum. Sagnfræðingur og fyrrverandi diplómati í Bandaríkjunum telur að úrslit kosninganna gætu sveiflast afgerandi í aðra hvora áttina. Óvænt atriði með Harris í skemmtiþætti hefur reitt repúblikana til reiði.

Flestir treysta Miðflokknum best fyrir málefnum hælisleitenda
Samfylkingin nýtur mest trausts í flestum málaflokkum, nema í málefnum hælisleitenda þar sem flestir treysta Miðflokknum. Fleiri treysta Sjálftstæðisflokknum fyrir nokkrum málaflokkum en myndu kjósa hann.

Virðist sem D hafi náð að hægja á blæðingunni til M
Glæný könnun Maskínu um fylgi stjórnmálaflokka sýnir að Viðreisn rís umtalsvert. Á milli kannanna fer hún úr 13,8 prósentum upp í 16,2% og þar með er flokkurinn kominn upp fyrir Miðflokkinn og mælist næststærsti flokkur landsins. Könnunin er splunkuný og var tekin dagana 22. - 28 október.

Inga Sæland ætlar með Flokk fólksins upp í fimmtán prósent
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, er að vonum afar ánægð með niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Maskínu. Hún má vera það.

Ný könnun: Viðreisn og Flokkur fólksins í hæstu hæðum
Viðreisn og Flokkur fólksins eru í sókn samkvæmt nýjustu könnun Maskínu og Píratar virðast á fallanda fæti. Fylgi Viðreisnar hefur aldrei mælst hærra í Maskínukönnun og Flokkur fólksins hefur reist við fylgi sitt umfram það sem flokkurinn fékk í kosningunum 2021. Píratar tapa rúmum tveimur prósentum og mælast út af þingi.

Fleiri vilja sjá Þórdísi eða Guðlaug leiða í stað Bjarna
Töluvert fleiri vilja sjá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra eða Guðlaug Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra, leiða Sjálfstæðisflokkinn í komandi kosningum í stað Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, ef marka má nýja skoðanakönnun.

Hvaða stjórnmálaleiðtogi væri besti drykkjufélaginn?
Flestir myndu vilja fá sér drykk með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, af formönnum stjórnmálaflokkanna. Næst flestir myndu vilja drekka með Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins. Þó myndu enn fleiri ekki vilja drekka með neinum af stjórnmálaleiðtogunum.

Meirihluti Frakka telur lýðræðið ekki virka
Flestir svarendur skoðanakönnunar í Frakklandi sögðust telja að lýðræðið virkaði ekki og fjórðungur sagði að það væri ekki besta stjórnskipulagið sem völ væri á. Meira en helmingur svarenda sagði að það þyrfti „sterkt vald“ til að halda uppi lögum og rétti í landinu.

Tæpur þriðjungur vill Kristrúnu í forsætisráðuneytið
Meirihluti þjóðarinnar, eða um 66 prósent, eru ánægð með stjórnarslitin samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Þá vilja flestir, eða um þriðjungur, að Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingar, leiði næstu ríkisstjórn og verði forsætisráðherra.

Sér ekki á svörtu hjá „hinum útvalda“
„Skekkjumörkin eru yfirleitt í kringum tvö og hálft til þrjú og hálft prósent, þannig að þetta er allt innan skekkjumarka,“ sagði Friðjón R. Friðjónsson, sérlegur áhugamaður um bandarísk stjórnmál, í Baráttunni um Bandaríkin í vikunni.