
Innlent

Draumalandið í sérútgáfu
Stefnt er að sérútgáfu Draumalandsins eftir Andra Snæ Magnason fyrir jólin. Draumalandið hefur verið prentað í fjórtán þúsund eintökum og stefnir flest í að hún verði ekki bara metsölubók ársins heldur sú bók sem mest hefur selst á einu ári á Íslandi frá upphafi. Meðal ítarefnis í sérútgáfunni verða ýmis skrif um bókina og áhrif hennar. Fjölmargir hafa fengið boð um að skrifa um bókina og áhrif hennar, meðal annars Björk, Björn Bjarnason, Bubbi Morthens, Friðrik Sophusson og Jónsi í Sigur Rós.
Áhorfandi slasaðist í stúkunni
Íslenskur áhorfandi slasaðist á landsleik Íslendinga og Dana í gær, þegar hann féll í tröppum í norðurenda nýju áhorfendastúkunnar á leið út eftir leikinn.

Þriggja vikna gæsluvarðhald
Sextán ára piltur hefur verið úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald. Hann er grunaður um að hafa stungið 25 ára gamlan karlmann í bakið með hnífi í Laugardal aðfaranótt þriðjudags. Honum er einnig gert að sæta geðrannsókn.

Formlegt samstarf hafið
Nemendum við Háskóla Íslands gefst í haust tækifæri til að sækja framhaldsnámskeið í mannerfðafræði í umsjón vísindamanna og sérfræðinga Íslenskrar erfðagreiningar og Háskóla Íslands.
Síbrotamaður hlaut 6 mánuði
Tuttugu og átta ára gamall karlmaður var í gær dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir ýmis lögbrot.

Gamla slippnum og verbúðinni lokað
Gamli slippurinn í Vestmannaeyjum verður lagður niður um næstu mánaðamót og síðasta verbúðin þar í bæ mun heyra sögunni til í nóvember næstkomandi.
Missti stjórn á bifreiðinni
Ökumaður á tvítugsaldri missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún valt við bæinn Grjótgarð í Hörgárbyggð, skammt norðan Akureyrar um tvö leytið í fyrrinótt.
Fékk sextán mánaða dóm
Guðni Steinar Snæbjörnsson, 23 ára gamall Reykvíkingur, var í gær dæmdur í sextán mánaða fangelsi fyrir að eiga í kynferðislegum samskiptum við 14 ára gamla stúlku á hótelherbergi í Burnley. Frá þessu greindi fréttavefur breska ríkisútvarpsins, BBC, í gær.
Hlaut þriggja mánaða dóm
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi 83 ára gamlan mann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skjalafals í gær.

Stóriðjustefna eða ekki?
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra segir vel koma til greina að reisa þrjú ný álver á næstunni og greiða fyrir framkvæmdum í Helguvík. Í sumar sagði hann hins vegar að stjórnvöld hefðu í raun enga stóriðjustefnu.

Bónus ódýrasta lágvöruverslunin samkvæmt könnun ASÍ
Bónus er ódýrasta lágvöruverðsverslunin, samkvæmt verðkönnun ASÍ, en ef lækka ætti matvöruverð enn frekar þyrfti að vinna bug á innflutningshöftum og fákeppni. Þetta segir hagfræðingur Alþýðusambandsins.

Eyða um efni fram sem aldrei fyrr
Íslendingar eyða nú um efni fram - og fjárfesta - sem aldrei fyrr. Viðskiptahallinn tvöfaldaðist á fyrri helmingi ársins miðað við árið í fyrra og var hvorki meira né minna en 124 milljarðar króna.

Danir númeri of stórir
Íslenska landsliðið í knattspyrnu þurfti að sætta sig við 2-0 tap fyrir Dönum á Laugardalsvelli í kvöld í undankeppni EM. Danska liðið hafði sterk tök á leiknum frá upphafi og eftir að þeir Dennis Rommendahl og Jon Dahl Tomasson höfðu komið liðinu í 2-0 eftir rúman hálftíma, var sigur Dana aldrei í hættu.
Danir yfir í hálfleik
Nú er búið að flauta til leikhlés í viðureign Íslendinga og Dana á Laugardalsvelli í undankeppni EM í knattspyrnu. Skemmst er frá því að segja að Danir hafa verið miklu betri í fyrri hálfleiknum og leiða verðskuldað 2-0. Það voru Dennis Rommendahl og Jon Dahl Tomasson sem skoruðu mörk danska liðsins á 5. og 33. mínútu.

Nafnaskipti fyrirtækja
Rótgróin íslensk fyrirtæki sem hasla sér völl á erlendum markaði þurfa í síauknum mæli að leggja gamla nafninu og búa til nýtt. Flest nöfn sem finna má í orðabókum eru frátekin.
Háspennubilun veldur rafmagnsleysi
Háspennubilun varð rétt fyrir klukkan sex í dag og er stór hluti Mosfellsbæjar og Barðastaðir í Grafarvogi rafmagnslaus. Verið er að leita að orsök bilunarinnar og ekki liggur fyrir hvenær rafmagn kemst aftur á.

Þriggja vikna gæsluvarðhald vegna hnífsstungu
Sextán ára piltur hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 26. september vegna gruns um að hann hafi stungið 25 ára gamla karlmann í bakið með hnífi í Laugardal aðfararnótt þriðjudags.
Vilja athugun á jarðgöngum um Tröllaskaga
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa skorað á þingmenn og ríkisvaldið að gera ítarlega hagkvæmnathugun á því að grafa jarðgöng í gegnum Tröllaskaga milli Hjaltadals og Eyjafjarðar.

Erlendir miðlar sýna afmæli leiðtogafundar áhuga
Von er á stórum hópi erlendra fjölmiðlamanna til landsins í næsta mánuði vegna 20 ára afmælis leiðtogafundar Ronalds Reagans og Míkhaíls Gorbatstjovs hér á landi.

16 mánaða dómur fyrir kynferðisbrot gegn stúlku
Tuttugu og þriggja ára Íslendingur var í dag dæmdur í 16 mánaða fangelsi í Burnley fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára gamalli enskri stúlku fyrr á árinu. Líklegt er að hann afpláni aðeins átta mánuði af dómnum en hann hefur þegar setið í gæsluvarðhaldi í sjö mánuði sem dregst frá dómi.

Tónlistarhús kynnt á Feneyja-tvíæringnum
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið sem reisa á við hafnarbakkann í Reykjavík verður kynnt á Feneyja-tvíæringnum um byggingarlist og borgarskipulag sem Ísland tekur þátt í fyrsta sinn í ár. Sýningin verður haldin dagana 10. september til 19. nóvember og fjallar hún um lykilþætti sem snúa að þróun stórra borga um allan heim

Farþegum um FLE fjölgar um 10 prósent í ágúst
Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæp 10 prósent í ágúst miðað við sama tíma í fyrra, úr tæpum 245 þúsund farþegum árið 2005 í rúmlega 269 þúsund farþega nú.

Dregið verði verulega úr rjúpnaveiðum
Náttúrufræðistofnun leggur til að dregið verði verulega úr rjúpnaveiðum í ár vegna óvæntra atburða sem orðið hafa í rjúpnastofninum. Í tilkynningu frá stofnuninni segir að talningar sýni að stofninn sé á niðurleið um allt land eftir aðeins tvö ár í uppsveiflu og viðkoman er lélega annað árið í röð.

Íbúum fækkar um 2% á Vestfjörðum
Íbúum á Vestfjörðum fækkaði um 150 eða um 2% á tímabilinu 1. júlí 2005 til 1. júlí 2006, samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Fréttavefur Bæjarins besta greinir frá því að íbúar Vestfjarða séu nú rúmlega 7.500 talsins. Fólksfækkun var eilítið minni í hitteðfyrra eða um 1,8%. Íbúum á Vestfjörðum hefur fækkað um tæplega 1.300 síðan árið 1997, eða um 14,5%.

Hátt á 20 strætisvagnar ekki í notkun
Hátt á tuttugu strætisvagnar Strætó bs. standa óhreyfðir þessa dagana vegna niðurfellingu strætóferða á tíu mínútna fresti. Aðstoðarframkvæmdarstjóri Strætó bs. segir að vagnarnir muni með tíð og tíma leysa þá eldri af.
ISPCAN verðlaunar Barnahús
Alþjóðlegu barnaverndarsamtökin ISPCAN veittu í dag Barnahúsi verðlaun fyrir starf í þágu barna á heimsráðstefnu samtakanna í New York. Samkvæmt tilkynningu frá Barnahúsi er stofnuni verðlaunuð fyrir þáttaskil á meðferð kynferðisbrotamála á Íslandi, einkum með tilliti til þarfa og réttinda barna.

Sex fíkniefnamál hjá lögreglu í gær
Lögreglan í Reykjavík hafði afskipti af sjö aðilum í sex óskyldum fíkniefnamálum í gær. Þrjú málanna komu upp á tónleikum í Laugardalshöll en þar voru einnig höfð afskipti af örfáum tónleikagestum vegna ölvunar.

Menntamálanefnd fundi vegna stöðu erlendra barna
Fulltrúar Samfylkingarinnar í menntamálanefnd Alþingis hafa óskað eftir því við formann nefndarinnar að fundað verði eins fljótt auðið er vegna frétta af því að mörg erlend börn á grunnskólaaldri fái ekki að stunda nám í grunnskóla.

Íbúar í Árbænum ósáttir við niðurfellingu s5
Íbúar í Árbæjarhverfi, Selási, Ártúnsholti og Norðlingaholti hafa stofnað undirbúningshóp sem mótmælir því harðlega að hraðleið strætó S5 hafi verið felld niður sem og ferðir á tíu mínútna fresti. Aðstoðarframkvæmdarstjóri Strætó bs. segir að þar tapi Strætó bs tæplega milljón á dag, þá hafi eitthvað orðið undan að láta.

Kemur til greina að greiða fyrir álveri í Helguvík
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra segir vel koma til greina að greiða fyrir framkvæmdum við álver í Helguvík. Þá segir hann ekkert því til fyrirstöðu að þrjú álver verði reist á Íslandi á næstu árum.