Lög og regla
61 62 63 64 65 66 67 68 69 … 120 ›
Sagði eiginkonu hafa viljað deyja Magnús Einarsson, sem ákærður er fyrir að hafa banað eiginkonu sinni í Kópavogi í nóvember í fyrra, sagði fyrir dómi í morgun að hún hefði beðið sig að hjálpa sér að deyja. Hann sagði hana ítrekað hafa sagst vilja deyja eftir að hafa verið honum ótrú. Innlent 13.10.2005 19:16
Endurskoðun hafin Björn Bjarnason dómsmálaráðherra lýsti því yfir á fundi með Samtökum um kvennaathvarf, Stígamót og fleiri samtök í gærmorgun að vinna væri hafin við að endurskoða kynferðiskafla almennra hegningarlaga. Innlent 13.10.2005 19:16
Varð bráðkvaddur á báti Maðurinn sem var á bátnum sem hafnaði uppi í fjöru við Stigahlíð í Ísafjarðardjúpi laust fyrir hádegi reyndist látinn þegar björgunarskip komu á vettvang. Samkvæmt lögreglunni í Bolungarvík varð hann bráðkvaddur. Varðskip og tvö björgunarskip fóru á vettvang eftir að það sást í sjálfvirku kerfi tilkynningaskyldunnar að báturinn var kominn upp í fjöru. Báturinn var hann í kjölfarið dreginn til land. Innlent 13.10.2005 19:16
Lögbrjótar í þúsundavís Vel yfir fjögur þúsund ökumenn óku hraðar en á 110 kílómetra hraða um Ártúnsbrekkuna í vikunni samkvæmt mælum Gatnamálastofu Reykjavíkurborgar en það er 40 kílómetrum hraðar en leyfilegur hámarkshraði. Innlent 13.10.2005 19:16
Sektaðir fyrir vopnaburð Þrír menn á tvítugsaldri voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdir til greiðslu sektar vegna brota á vopnalögum. Mennirnir voru ákærðir fyrir að hafa verið með tvo hnífa með 45 sentímetra blaði og höggvoopn í miðborg Reykjavíkur í apríl í fyrra. Mennirnir voru dæmdir til að greiða hver 30 þúsund króna sekt fyrir vopnaburðinn. Innlent 13.10.2005 19:16
Dæmdar bætur vegna uppsagnar Íslenska ríkið var í dag dæmt til að greiða starfsmanni sem sagt var upp á sambýli fyrir fatlaða á Blönduósi árið 1998, 800 þúsund krónur í bætur vegna uppsagnarinnar. Í dóminum segir að manninum hafi verið sagt upp störfum vegna vankunnáttu og trúnaðarbrests á milli starfsmannsins og stjórnenda sambýlisins. Hlaut maðurinn einnig tvær áminningar frá sambýlinu en með dómnum voru þær felldar úr gildi. Innlent 13.10.2005 19:16
Ríkið dæmt til bótagreiðslna Íslenska ríkinu var gert að greiða fyrrverandi starfsmanni á sambýli fatlaðra á Blönduósi 800 þúsund krónur vegna ólöglegrar uppsagnar. Innlent 13.10.2005 19:16
Bíll valt á Hafnarfjarðarvegi Einn maður slasaðist þegar bíll hans valt á Hafnarfjarðarvegi laust fyrir klukkan hálfsjö í morgun. Bílnum var ekið norður Hafnarfjarðarveg og valt hann rétt sunnan við Nesti í Fossvogi. Bíllinn fór tvær veltur. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, var fluttur á slysadeild. Ekki er talið að hann hafi slasast alvarlega. Innlent 13.10.2005 19:16
200 þúsund á málaskrá lögreglu Fjöldi íslenskra ríkisborgara á svokallaðri málaskrá Ríkislögreglustjóra samsvarar öllum Íslendingum á aldrinum 17-80 ára. Á skránni voru um miðjan þennan mánuð skráð nöfn 201.278 einstaklinga en Íslendingar á aldrinum 17-79 ára voru 200.789 um síðustu áramót samkvæmt tölum Hagstofunnar. Innlent 13.10.2005 19:16
Meiðyrðamál tekið fyrir í dag Meiðyrðamál Marcos Branacchia, fyrrverandi tengdasonar Jóns Baldvins Hannibalssonar, sendiherra í Finnlandi, var tekið fyrir í lokuðu þinghaldi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Marco höfðaði málið vegna ummæla sem Jón Baldvin lét falla í viðtali við DV þar sem hann hélt því fram að Marco hefði hótað fjölskyldunni lífláti. Marco hefur staðið í harðvítugu forsjármáli síðustu ár gegn dóttur Jóns Baldvins. Innlent 13.10.2005 19:16
Fyrrum starfsmenn sýknaðir Fjórir fyrrverandi starfsmenn Iceland Seafood International í Hafnarfirði voru sýknaðir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag af kröfum félagsins sem vildi að þeim yrði bannað að ráða sig í þjónustu keppinautarins, Seafood Union, til júníloka á þessu ári. Innlent 13.10.2005 19:16
Tveir af þremur sýknaðir Dómur féll í Héraðsdómi Norðurlands eystra yfir þremur mönnum sem gert var að sök að hafa lamið þann fjórða það illa á Húsavík í fyrrasumar að hann hlaut sýnilega áverka á höfði. Innlent 13.10.2005 19:16
Fyrirtækið virti ekki samninga Fjórir menn voru í gær sýknaðir fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur af kröfu fyrrverandi vinnuveitanda þeirra, Iceland Seafood International, sem fór fram á dómurinn staðfesti lögbann á að mennirnir hæfu störf hjá samkeppnisaðila í samræmi við upprunalegan ráðningarsamning mannanna. Innlent 13.10.2005 19:16
Múgæsing í Keflavík Múgæsing hefur, að mati lögreglunnar, gripið um sig í Keflavík vegna tilrauna manns til að lokka börn upp í bíl til sín. Lögreglan mun hugsanlega standa vakt fyrir utan grunnskóla í Reykjanesbæ næstu daga. Innlent 13.10.2005 19:16
Eldur í Ingunnarskóla í morgun Eldur kviknaði í Ingunnarskóla í Grafarholti í morgun. Tilkynnt var um eldinn klukkan hálffimm. Að sögn lögreglu var kveikt í fiskikörum við skólann með þeim afleiðingum að eldur barst í þakskegg skólans og hlaust töluvert tjón af. Innlent 13.10.2005 19:16
Nýr dagur slapp við sekt Héraðsdómur Norðurlands eystra ógilti fjárnám Bílastæðasjóðs Akureyrar í bíl fyrirtækisins Nýr dagur sem gert var vegna þess að fyrirtækið neitaði að borga stöðumælasekt. Innlent 13.10.2005 19:16
Enginn verið handtekinn í Keflavík Enginn hefur enn verið handtekinn vegna gruns um að hafa ætlað að tæla ungan dreng upp í bíl sinn við skóla í Reykjanesbæ. Lögreglan er nú að kanna þær vísbendingar sem borist hafa. Innlent 13.10.2005 19:16
Þrjú ár fyrir tæp þrjú kíló Dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær yfir fjórum sakborningum í einum anga Dettifossmálsins. Sá angi snýr að innflutningi á um 2,7 kílóum af amfetamíni og um 600 grömmum af kókaíni. Dettifossmálið svokallaða er þó mun stærra í heild sinni. Innlent 13.10.2005 19:16
Kynferðisbrotsdómur staðfestur Rúmlega tvítugur maður var í Hæstarétti dæmdur í eins árs fangelsi fyrir að hafa haft kynmök við tólf ára gamla stúlku á heimili sínu á Akureyri árið 2002. Innlent 13.10.2005 19:16
Leikfélagið sýknað Leikfélag Akureyrar hefur verið sýknað af kröfum fyrrverandi leikara félagsins um vangoldin laun vegna ólögmætrar uppsagnar. Innlent 13.10.2005 19:16
Ætlaði að selja efnin Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir manni sem tekinn var með 300 grömm af amfetamíni á heimili sínu í ársbyrjun 2004. Innlent 13.10.2005 19:16
Reynir að lokka börn í bíl sinn Karlmaður í Reykjanesbæ hefur sést utan við grunnskóla í bænum þar sem hann hefur reynt að lokka börn í bílinn til sín með sælgæti. Lögreglan í Keflavík beinir því til foreldra að þau brýni fyrir börnum sínum að þau fari ekki upp í bifreið hjá ókunnugu fólki. Innlent 13.10.2005 19:15
Löglega staðið að uppsögn Leikfélag Akureyrar var í gær sýknað af kröfum Aðalsteins Bergdal, leikara, sem gert hafði kröfur um skaðabætur vegna uppsagnar sinnar en honum var sagt upp störfum eftir að hafa neitað samvisku sinnar vegna að taka þátt í uppsetningu leikrits. Innlent 13.10.2005 19:15
Skattsvikamál fyrir héraðsdómi Ríkislögreglustjóri hefur krafist refsingar til handa fyrrum eigendum og forsvarsmönnum Allrahanda - Ísferða vegna brota á lögum um virðisaukaskatt og staðgreiðslu opinberra gjalda. Innlent 13.10.2005 19:15
Kröfurnar kynntar Frestur sem gefinn var til að setja fram kröfur um eignarréttindi vegna meðferðar þjóðlendumála á Norðausturlandi er runninn út. Kynning á kröfum fjármálaráðherra sem og annarra sem gert hafa kröfur eða gagnkröfur um eignarréttindi er hafin á vegum óbyggðanefndar hjá sýslumanninum á Seyðisfirði og Húsavík. Innlent 13.10.2005 19:15
Tvö innbrot í nótt Brotist var inn í tölvuverslun HP við Brautarholt í Reykjavík í nótt og þaðan stolið tveimur fartölvum, samtals að verðmæti um hálf milljón króna. Þá rannsakar lögreglan innbrot í íbúð við Eyjabakka í Breiðholti í nótt. Innlent 13.10.2005 19:15
Mæðgin á flæðiskeri stödd Björgunarfélag Akraness fékk tilkynningu seinni part þriðjudags um að mæðgin væru í sjálfheldu rétt utan við Langasand á Akranesi. Innlent 13.10.2005 19:15
156 milljónir í girðingar Langt er nú liðið á sauðburð í sveitum landsins og ökumenn hafa nokkuð orðið varir við sauðfé á vegum landsins síðustu daga. Á síðustu fimm árum hefur að meðaltali verið tilkynnt um 225 slys vegna sauðfjár til lögreglu og þau eru 17% af öllum slysum verða í dreifbýli. Búast má við að óhöppin séu fleiri en ekki sé tilkynnt um þau öll. Innlent 13.10.2005 19:15
Fjórir eða fimm kærðir vegna slyss Fjórir eða fimm menn hafa verið ákærðir af ríkissaksóknara vegna banaslyss sem varð við Kárahnjúkastíflu í mars á síðasta ári. Mennirnir eru starfsmenn Impregilo, Arnarfells og VIJV sem sér um eftirlit með svæðinu sem slysið varð á. Innlent 13.10.2005 19:15
Vildi borga vínflösku með kveri Rúmlega þrítugur maður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa í janúar pantað sér vínflösku sem kostaði 5.300 krónur á veitingastaðnum Kaffi Reykjavík án þess að geta greitt fyrir hana. Maðurinn taldi sig hafa samið við þjóninn um að greiða fyrir vínið með ljóðakveri en við það vildi þjónninn ekki kannast. Innlent 13.10.2005 19:15