Viðskipti
36 37 38 39 40 41 42 43 44 … 223 ›
Rauður dagur fyrir Atlantic Petroleum Gengi hlutabréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hefur fallið um rúm 4,6 prósent frá því viðskipti í Kauphöllinni hófust fyrir um hálftíma. Félagið er eitt þeirra sem danskur blaðamaður er sakaður um að hafa skrifað jákvæða greiningu um á sama tíma og hann keypti hluti í félaginu. Gengi hlutabréfa hefur almennt lækkað í dag en það er í samræmi við þróunina á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum. Viðskipti innlent 23.5.2008 10:24
Félag Existu kaupir skókeðju á eitt pund Stjórnendur bresku íþróttavöruverslunarinnar JJB Sports, sem Exista á 14 prósent í, greindu frá því í gærkvöldi að þeir hefðu keypt bresku skóverslunina Qube Footwear. Kaupverð nemur litlu einu bresku pundi, jafnvirði tæpra 144 íslenskra króna. Viðskipti erlent 23.5.2008 09:58
Lækkun á evrópskum hlutabréfamörkuðum Það er langt í frá hefðbundinn föstudagur á evrópskum hlutabréfamörkuðum í dag en gengi hlutabréfa hefur almennt lækkað í álfunni á þessum síðasta degi vikunnar. Viðskipti erlent 23.5.2008 09:40
Flugfélög grípa til neyðarráðstafana Flugfélög um allan heim gera nú margvíslegar neyðarráðstafanir til þess að reyna að mæta gríðarlegum hækkunum á eldsneyti. Erlent 22.5.2008 10:53
Krónan veikist lítillega Gengi krónunnar hefur veikst lítillega frá því viðskipti hófust á gjaldeyrismarkaði í dag. Gengið veiktist um rúm 0,3 prósent í byrjun dags en styrktist lítillega í kjölfarið og nemur veiking hennar nú 0,16 prósentum. Viðskipti innlent 22.5.2008 09:36
Gengi AMR féll um 25 prósent Gengi hlutabréfa í bandarísku flugrekstrarsamstæðunni AMR, móðurfélagi American Airlines, umsvifamesta flugfélagi Bandaríkjanna, féll um 25 prósent á hlutabréfamarkaði í gær eftir snarpa verðhækkun á hráolíu. Viðskipti erlent 22.5.2008 09:12
Hráolíuverðið á fleygiferð Verð á hráolíu rauk í rúma 132 dali á tunnu á bandarískum fjármálamarkaði fyrir stundu eftir að bandaríska orkumálaráðuneytið greindi frá því að dregið hafi óvænt úr olíubirgðum vestanhafs í síðustu viku. Viðskipti erlent 21.5.2008 16:04
FL Group hækkaði mest í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í FL Group hækkaði um 1,23 prósent í Kauphöll Íslands í dag. Þetta er jafnframt síðasti dagurinn sem félagið tilheyriri hópi skráðra fyrirtækja í Úrvalsvísitölunni en það verður tekið af listanum á morgun. Viðskipti innlent 21.5.2008 15:36
Seðlabankinn hefði átt að grípa fyrr til aðgerða „Seðlabankinn er í mjög erfiðri stöðu," segir Gylfi Magnússon, dósent við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands. Gylfi, sem var gestur Björns Inga Hrafnssonar í Hádegisviðtalinu á Stöð 2 í dag, sagði það vítaverða vanrækslu hjá Seðlabankanum að grípa ekki til aðgerða fyrr og auka gjaldeyrisvaraforðann. Viðskipti innlent 21.5.2008 13:55
FL Group tekið úr Úrvalsvísitölunni á morgun Hlutabréf FL Group verða tekin úr Úrvalsvísitölunni á morgun. Ástæðan er ófullnægjandi seljanleiki þeirra. Viðskipti innlent 21.5.2008 12:53
Olíuverð aldrei hærra Heimsmarksaðsverð á hráolíu fór í rúma 130 dali á tunnu á fjármálamörkuðum í Bandaríkjunum í dag. Væntingar um að ekki verði unnt verði að svara eftirspurn og veiking bandaríkjadals á stærsta þátt í því að verðmúrinn var rofinn. Viðskipti erlent 21.5.2008 12:42
Segir starfskjör Lárusar Welding eðlileg Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Glitnis, segir að þau kjör sem Lárusi Welding, forstjóra Glitnis, voru boðin þegar hann var ráðinn séu í samræmi við það sem tíðkaðist við gerð sambærilegra samninga hjá fjármálafyrirtækjum á þeim tíma. Viðskipti innlent 21.5.2008 11:15
24timer og MetroXpress í eina sæng Ákveðið hefur verið að sameina dönsku fríblöðin 24timer og MetroXpress sem hafa verið keppinautar Nyhedsavisen á danska fríblaðamarkaðinum. Fyrirtækið MetroXpress A/S yfirtekur 24timer sem var áður í eigu danska blaðsins Jyllands Posten. Viðskipti erlent 21.5.2008 10:19
Snarpur viðsnúningur á markaðnum Þróunin á gengi hlutabréfa í Kauphöllinni tók óvænta stefnu til baka eftir hækkun í byrjun dags. Sömu sögu er að segja um gengi krónunnar. Viðskipti innlent 21.5.2008 10:26
Landsbankinn leiðir hækkun í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í Landsbankanum tók sprettinn og leiddi hækkun í Kauphöll Íslands í byrjun dags. Gengið hækkaði um 1,5 prósent. Á eftir fylgdu Alfesca, sem hækkaði um 0,9 prósent, Bakkavör, sem fór upp um 0,8 prósent, Exista, Glitnir, Straumur, færeyska olíuleitarfélagið Atlantic Petroleum og Kaupþing. Viðskipti innlent 21.5.2008 10:07
Ágæt byrjun á evrópskum fjármálamörkuðum Gengi hlutabréfa hefur almennt hækkað á helstu hlutabréfamörkuðum í Evrópu í dag þrátt fyrir skell bæði í Bandaríkjunum í gærkvöldi og í Asíu í morgun. Viðskipti erlent 21.5.2008 09:38
Bakkabræður rjúka upp Gengi hlutabréfa í Existu tók stökkið á grænum degi í Kauphöll Íslands í dag og hækkaði um 5,7 prósent. Þá hækkaði gengi bréfa í Bakkavör um tæp 5,6 prósent. Gengi bréfa í báðum félögum lækkaði mjög hratt í síðustu viku. Þeir Ágúst og Lýður Guðmundssynir, kenndir við Bakkavör, eru stærstu hluthafar í báðum félögunum. Viðskipti innlent 19.5.2008 15:34
Þrengingunum ekki lokið Lausafjárkreppunni er fjarri því að vera lokið og engin teikn á lofti að það versta sé yfirstaðið. Þetta segir Jean-Claude Trichet, bankastjóri evrópska seðlabankans. Viðskipti erlent 19.5.2008 11:12
Enn hækkar Bakkavör Gengi hlutabréfa í Bakkavör hefur hækkað um tæp 3,5 prósent frá því viðskipti hófust í Kauphöll Íslands í dag. Það hefur þessu samkvæmt hækkað um tæp 19 prósent á tæpri viku. Viðskipti innlent 19.5.2008 10:20
Hækkun á evrópskum hlutabréfamörkuðum Vikan hefur byrjað á jákvæðum nótum á þeim fjármálamörkuðum sem hafa opnað úti í hinum stóra heimi í dag. Gengi hlutabréfa hækkaði almennt á mörkuðum í Asíu auk þess sem hlutabréfaverð hefur verið á uppleið í Evrópu. Viðskipti erlent 19.5.2008 09:27
Bakkavör leiddi hækkanalestina Gengi hlutabréfa í Bakkavör leiddi hækkanahrinu í Kauphöllinni í dag þegar það rauk upp um tæp tíu prósent. Gengi annarra félaga hækkaði nokkuð á síðasta viðskiptadegi vikunnar en einungis þrjú féllu. Viðskipti innlent 16.5.2008 15:33
Annar veruleiki við upphaf viðskipta Gengi hlutabréfa í DeCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, féll um 2,5 prósent þegar viðskipti hófust á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag. Gengið hafði rokið upp um 25 prósent í utanþingsviðskiptum. Gengi bréfa í fyrirtækinu stendur nú í 1,56 dölum á hlut. Fyrir opnun viðskipta fór gengið í tvo dali á hlut. Viðskipti innlent 16.5.2008 13:57
Gengi DeCode hækkar um 25 prósent Gengi bréfa í DeCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, rauk upp um 25 prósent í utanþingsviðskiptum fyrir opnun hlutabréfamarkaðar í Bandaríkjunum í dag. Gengið stendur í sléttum tveimur dölum á hlut og hefur hækkað um 78,5 prósent síðan 17. apríl síðastliðinn en þá fór það í lægsta gengi frá upphafi, 1,12 dali á hlut. Viðskipti innlent 16.5.2008 13:08
Hráolíuverð slær öll met Heimsmarkaðsverð á hráolíu fór í rúma 127,4 dali á tunnu á fjármálamarkaði í Bandaríkjunum í dag. Verðið hefur hækkað um 25 prósent frá áramótum og hefur aldrei verið hærra. Viðskipti erlent 16.5.2008 12:38
Kippur í Kauphöllinni í byrjun dags Gengi hlutabréfa í SPRON rauk upp um 5,9 prósent í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöll Íslands. Svipaða sögu var að segja um meirihluta skráðra félaga eftir að Seðlabanki Íslands tilkynninti um gjaldeyrisskiptasamninga við norræna seðlabanka sem veitir aðgang að 1,5 milljörðum evra. Viðskipti innlent 16.5.2008 10:05
Góður hagvöxtur í Japan í byrjun árs Hagvöxtur jókst um 3,3 prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins í Japan, samkvæmt nýjustu hagtölum landsins. Breska ríkisútvarpið hefur eftir fjármálasérfræðingum að mikil eftirspurn sé eftir japönskum vörum í öðrum Asíulöndum, svo sem í Kína, og því hafi samdráttur í einkaneyslu í Bandaríkjunum ekki sett skarð í japanskar hagtölur. Viðskipti erlent 16.5.2008 09:56
Gengi krónu tekur stökkið Gengi krónunnar tók stökkið snemma í morgun og styrktist um rúm 4 prósent eftir að Seðlabanki Íslands tilkynnti um að hann hefði gert tvíhliða gjaldeyrisskipasamning við seðlabanka Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur. Gengið sveiflaðist talsvert í kjölfarið. Viðskipti innlent 16.5.2008 09:16
Bakkavör tók flugið Gengi bréfa í Bakkavör hækkaði um 3,63 prósent í Kauphöllinni í dag og er það mesta hækkun dagsins. Gengi bréfa í fyrirtækinu hafði fallið um rúmar 10 krónur á hlut frá mánaðamótum. Úrvalsvísitalan hefur hins vegar ekki verið lægri síðan um síðustu páska. Viðskipti innlent 15.5.2008 15:30
Fjárfestingarrisi í mínus Blackstone Group, umsvifamesta fjárfestingarfélag heims, tapaði 66,5 milljónum bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 5,2 milljarða íslenskra króna, á fyrsta fjórðungi ársins. Félagið hagnaðist um 838,5 milljónir dala eftir skatt á sama tíma í fyrra. Viðskipti erlent 15.5.2008 14:41
Gjaldeyrisforðinn er til að sýna styrk „Kjörin hafa verið að batna. Ríkið gæti fengið ágætis kjör núna, kannski 50 til 70 punkta ofan á Libor, en óvíst er að þau muni batna mikið á næstunni,“ segir Sigurjón Árnason, bankastjóri Landsbankans, um lántökur ríkisins vegna gjaldeyrisforðans. Álagið sé nú í kringum 150 punkta. Viðskipti innlent 15.5.2008 09:37
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent