Stjórnsýsla

Segir ákvörðun ráðherrans ekki hafa áhrif á stöðu sína
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari og Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari eiga eftir að ræða saman eftir að dómsmálaráðherra gerði kunnugt um að verða ekki við ósk Sigríðar um að víkja Helga Magnúsi frá störfum. Hún segir niðurstöðu ráðherrans ekki hafa áhrif á stöðu sína sem ríkissaksóknari.

Niðurstaðan í máli Helga Magnúsar „á brúninni“
Ákvörðun dómsmálaráðherra um að víkja vararíkissaksóknara ekki úr starfi þrátt fyrir hegðun hans var á „brúninni“ að mati sérfræðings í vinnurétti. Ómögulegt sé að draga víðtækar ályktanir af niðurstöðunni fyrir opinbera starfsmenn almennt.

Vistaskipti hjá fangelsismálastjóra
Páll E. Winkel mun taka ársleyfi frá embætti forstjóra Fangelsismálastofnunar frá 1. október næstkomandi og taka að sér störf á vegum háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins. Birgir Jónasson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra, verður settur forstöðumaður Fangelsismálastofnunar í fjarveru hans.

Aðgerðarhópur vegna ofbeldis í garð og meðal barna tekinn til starfa
Nýskipaður aðgerðahópur vegna ofbeldis í garð og meðal barna hóf störf í dag. Hópnum er falið að hrinda í framkvæmd aðgerðum sem mennta- og barnamálaráðuneytið og dómsmálaráðuneytið kynntu á blaðamannafundi 25. júní síðastliðinn og aðgerðum heilbrigðisráðuneytisins sem lúta að heilbrigði og vellíðan barna.

Segir Þórarin Inga hafa niðurlægt þingræðið
Dr. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur hefur sent inn erindi til forsætisnefndar/siðanefndar Alþingis þar sem hann kærir Þórarin Inga Pétursson þingmann Framsóknarflokksins, formann atvinnuvegnefndar vegna afskipta hans af búvörulögum. Þórarinn Ingi megi teljast bullandi vanhæfur til að hafa afskipti af málinu vegna hagsmunatengsla.

Andri nýr alþjóðafulltrúi forsætisráðuneytisins
Andri Lúthersson hefur tekið við starfi alþjóðafulltrúa forsætisráðuneytisins. Hlutverk alþjóðafulltrúa er að vera ráðgjafi forsætisráðherra í utanríkismálum og hafa yfirsýn og halda utan um erlend samskipti forsætisráðherra og forsætisráðuneytisins. Frá þessu er greint í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.

„Það er enginn öryggisventill þarna, það bremsar þetta ekkert af“
Einstaka veiðifélög íhuga alvarlega að leita réttar síns vegna þess tjóns sem þau telja sig hafa orðið fyrir sem rekja megi til umhverfismengunar frá fiskeldi. Þá gagnrýna Landssamtök veiðifélaga stjórnvöld, einkum Matvælastofnun, fyrir að beita ekki þeim heimildum sem stofnunin hafi samkvæmt lögum til að áminna fiskeldisfyrirtæki eða svipta þau starfsleyfi í þeim tilfellum sem við gæti átt. Formaður landssamtakanna segir svör stjórnvalda ekki upp á marga fiska.

Aðstoðarmaður ráðherra í baráttu við settan skrifstofustjóra
Alls sóttu 22 um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála í innviðaráðuneytinu sem auglýst var um miðjan júlí. Umsóknarfrestur rann út þann 12. ágúst.

Fréttamaðurinn hafi vart getað varist hlátri
Skúli Magnússon umboðsmaður Alþingis fer um víðan völl í viðtali á Sprengisandi í dag. Hann ræðir grundvallarréttindi borgaranna og spyr hvort viðhorf stjórnvalda hafi breyst eftir tíma heimsfaraldurs og eldsumbrota. Fréttamaður Ríkisútvarpsins hafi vart getað varist hlátri fyrir tveimur árum við lestur fréttar um að umboðsmaður hefði sett spurningarmerki við samkomutakmarkanir.

Tók hvolpinn til baka vegna andlegra veikinda kaupanda
Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa segir hundaræktanda hafi svipt kaupsamningi með ólögmætum hætti þegar hann fjarlægði hvolp af heimili konu sem hafði keypt af honum hvolp. Ræktandinn fjarlægði hvolpinn vegna andlegra veikinda kaupanda en endurgreiddi kaupin um leið. Kaupandinn kærði það til kærunefndarinnar og krafðist þess að ræktandinn myndi skila hvolpinum.

Fullviss að Guðrún standi með sér
Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari, segist fullviss um að dómsmálaráðherra hafni beiðni Sigríðar Friðjónsdóttur, ríkissaksóknara, um að hann verði tímabundið leystur frá störfum.

Hafnar því að nokkuð saknæmt sé í greininni um MAST
Ester Hilmarsdóttir hafnar því alfarið að nokkuð saknæmt sé að finna í skrifum hennar um „glyðrugang eftirlitsstofnana“ en forstjóri Matvælastofnunar og tveir starfsmenn hennar hafa kært ummælin til Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra. Greint var frá því fyrr í dag.

Kæra meintar aðdróttanir um mútuþægni til lögreglu
Forstjóri Matvælastofnunar og tveir starfsmenn stofnunarinnar hafa sent kæru til lögreglunnar á Norðurlandi eystra á hendur einstaklingi sem stofnunin segir hafa haft uppi aðdróttun um mútuþægni.

Nú má heita Arló og Marló en ekki Salvarr
Mannanafnanefnd birti í vikunni tíu úrskurði þar sem teknar voru fyrir nafnabeiðnir. Allar beiðnir voru samþykktar utan beiðni þess sem vill heita Salvarr.

Bjarni skilar jafnréttis- og mannréttindamálunum
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur ákveðið að gera breytingar á forsetaúrskurði um skiptingu stjórnmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Jafnréttis- og mannréttindamál verða flutt frá forsætisráðuneytinu yfir á málefnasvið félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins.

Geti hamlað aðkomu einkaaðila að upplýsingatækni hjá ríkinu
Ekki er útilokað að heimild í drögum að frumvarpi til laga um skipan upplýsingatækni í ríkisrekstri geti hamlað aðkomu einkaaðila almennt að upplýsingatækni í rekstri ríkisins, segja Samtök iðnaðarins.

„Ég hef látið orð út úr mér sem hefðu átt að vera ósögð“
Helgi Magnús Gunnarsson vararríkissaksóknari segist hafa látið út úr sér orð sem hann hefði betur látið ósögð. Þrátt fyrir það segir hann að ekkert sem hann hafi sagt hafi kastað rýrð á störf hans hjá embættinu.

Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara
Þingmenn og fyrrverandi hæstaréttardómari eru á meðal þeirra sem hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara, um að leggja til við ráðherra að hann taki mál hans til skoðunar, og vísi honum tímabundið frá störfum.

Þrettán vilja stýra ráðuneyti Svandísar
Þrettán umsækjendur eru um embætti ráðuneytisstjóra innviðaráðuneytisins sem auglýst var um miðjan júní sl. en umsóknarfrestur rann út 19. júlí.

Þekkja engin dæmi um að lögheimilisskráning stöðvi fasteignasölu
Hvorki formaður Félags fasteignasala né deildarstjóri hjá Þjóðskrá kannast við dæmi um að sala á fasteignum strandi á því að óviðkomandi einstaklingar séu skráðir með lögheimili í þeim. Eigendum fasteigna hefur verið auðveldað að tilkynna um tilefnislausar skráningar.

Fráleitt að vernda glæpamenn frá eigin nafni
Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Sigríður Á Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, velta fyrir sér nafnabreytingu manns sem áður hét Mohamad Kourani og nú Mohamad Thor Jóhannesson. Mögulega sé mál hans dæmi sem bendi til þess að endurskoða þurfi nafnalögin.

Mikill meirihluti landsmanna mótfallinn sjókvíaeldi
Í nýrri könnun Gallups kemur fram að rúm sextíu og fimm prósent þjóðarinnar er andsnúin sjókvíaeldi meðan tæp fjórtán prósent eru jákvæð.

Kæra MAST vegna rekstrarleyfis til Arnarlax
Fjöldi einstaklinga og samtaka hefur lagt fram kæru á hendur Matvælastofnun – MAST – vegna útgáfu á rekstrarleyfi til fiskeldis í Óshlíð, Drangsvík og Eyjahlíð sem dagsett er 13. júlí til Arnarlax.

Aðventistar svara sýslumanni fullum hálsi
Sýslumaður hefur farið þess á leit við fjársýslu ríkisins að greiðslur til Kirkju sjöunda dags aðventista á sóknargjöldum til félagsins verði felldar niður. Lögmaður KSDA telur engar heimildir fyrir því.

Stjórnsýslufræðingur segir Þórarinn Inga brotlegan við siðareglur
Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur telur blasa við að Þórarinn Ingi Pétursson Framsóknarflokki, hafi brotið siðareglur þingsins, þá er hann mælti fyrir breytingu á búvörulögum.

Ætlar að leggja til málshöfðun á hendur íslenska ríkinu
Íslenska ríkið hefur hafnað miska- og skaðabótagreiðslu til handa ekkju Andemariams Beyene sem lést 30. janúar 2014 í kjölfar plastbarkaígræðslu á Karólínska háskólasjúkrahúsinu í júní árið 2011. Lögmaður ekkjunnar er Sigurður G. Guðjónsson mun að öllum líkindum leggja til við skjólstæðing sinn að hún höfði mál á hendur íslenska ríkinu.

Sýslumaður hótar því að taka aðventista af skrá
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra hefur ritað stjórn Kirkju sjöunda dags aðventista bréf þar sem hann krefst þess að ef stjórnin ljúki ekki aðalfundi sem staðið hefur í tvö ár fyrir 10. ágúst næstkomandi þá muni hann grípa til þess að fella félagið af skrá sem trúfélag.

Rekinn umsvifalaust úr klúbbnum í miðju meistaramóti
Davíð Jónsson var rekinn umsvifalaust úr Golfklúbbi Sandgerðis ásamt sonum hans tveimur í miðju meistaramóti. Von er á yfirlýsingu frá Golfklúbbi Sandgerðis vegna málsins.

Náttúran hafi sterkt umboð í samfélaginu og þurfi ekki umboðsmann
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis- orku og loftslagsráðherra, sér ekki ástæðu til þess að stofna sérstakt embætti umboðsmanns náttúrunnar, náttúran hafi þegar sterkt umboð í samfélaginu. Þetta kemur fram í svari ráðherrans við fyrirspurn Valgerðar Árnadóttur, varaþingmanns Pírata.

Skilur ekki hægagang dómsmálaráðuneytisins
Forstjóri Happdrættis Háskóla Íslands skilur ekki hvers vegna dómsmálaráðuneytið hefur ekki tekið skref í áttina að breytingu á lögum um veðmálastarfsemi. Það verði að bregðast við sem fyrst.