Innköllun

Fréttamynd

Þung­málmar flæða úr steypujárnspönnu

Matvælastofnun varar neytendur við notkun steypujárnspönnu frá kínverska Napoleon, sem seld er í Byko, vegna flæðis þungmálma. „Vinsamlegast hættu að nota hana strax,“ segir í tilkynningu frá Byko.

Neytendur
Fréttamynd

Einungis sjö bílar kallaðir inn

Eigendur Land Rover-bíla sem BL hefur innkallað vegna skipta á háspennurafhlöðu þurfa ekki að hætta að keyra bílana þar til þeir komast í viðgerð. Öruggt er að keyra þá en einungis sjö ökutæki er um að ræða. 

Neytendur
Fréttamynd

Inn­kalla Land Rover-bíla vegna bruna­hættu

Bílaumboðið BL hefur innkallað fjórar undirtegundir nýrra Land Rover-ökutækja þar sem hætta er á ofhitnun háspennurafhlöðu sem gæti orðið til þess að kvikni í ökutækinu. BL mun skipta um rafhlöðu á þeim ökutækjum sem eru innkölluð. Innköllunin nær einungis til tengiltvinnbíla, eða „plug-in hybrid“ (PHEV).

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Nóróveira í ostrum

Matvælastofnun varar við neyslu á einni lotu af Surasang frosnum ostrum sem Dai Phat flytur inn og selur í sinni verslun vegna nóvóveiru. 

Innlent
Fréttamynd

Inn­kalla pipar vegna eiturs

Eftir samráð við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur Dai Phat Asian Grocery innkallað vöruna Villta Sichuan-piparinn. Ástæðan er sú að varan inniheldur skordýraeitur yfir leyfilegu hámarksgildi.

Neytendur
Fréttamynd

Inn­kalla hafra­graut vegna mögu­legs að­skota­hlutar

Karl K Karlsson ehf innkallar í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF) Moma hafragraut. Í tilkynningu segir að ástæða innköllunar sé grunur um að aðskotahlutur geti fundist í vörunni.

Neytendur
Fréttamynd

Inn­kalla brúna rúllu­tertu

Gæðabakstur-Ömmubakstur hefur í samstarfi við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur tekið ákvörðun um að innkalla Kristjánsbakarís brúna rúllutertu vegna aðskotahlutar í afmarkaðri lotu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vara við súkkulaðirúsínum

Matvælastofnun innkallar Forest feast súkkilaðirúsínur sem fást í verslun Costco vegna mögulegs krossmits af jarðhnetum og tréhnetum.

Neytendur
Fréttamynd

Inn­kalla þurrmjólkina eftir allt saman

Danól, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur hafið innköllun á NAN Expert Pro HA 1 og NAN Pro 1 þurrmjólk með lotunúmerunum 51690742F4, 51180346AC og 51250346AC. Áður hafði verið tilkynnt sérstaklega að ekki væri ástæða til þess að innkalla þurrmjólkina hér á landi en þá hafði það verið gert í Noregi.

Neytendur
Fréttamynd

Engin inn­köllun á NAN þurr­mjólk á Ís­landi

Nestlé í Noregi hefur af öryggisástæðum hafið innköllun á ákveðnum framleiðslulotum af NAN þurrmjólk fyrir börn. Í tilkynningu frá Danól kemur fram að loturnar sem um ræðir séu hvorki í dreifingu né sölu hér á landi. Því þurfi ekki að fara í neinar innkallanir á þurrmjólkinni á Íslandi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vara við listeríu í rifnu grísakjöti

Listería fannst í svínakjötsrétti frá Ali og varar Matvælastofnun neytendur við þremur framleiðslulotum fyrirtækisins á vörunni. Um er að ræða rifið grísakjöt með BBQ-sósu frá framleiðandanum Síld og fiski ehf. en fyrirtækið hefur innkallað vöruna af markaði.

Neytendur
Fréttamynd

Kalla inn aspas í bitum frá Ora

ÓJ&K-ÍSAM, innflytjendur Ora, hafa í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað skorinn apas frá Ora vegna aðskotahlutar sem fannst í vörunni.

Neytendur
Fréttamynd

Inn­kalla pastaskeiðar úr plasti

Matvælastofnun varar við notkun á pastaskeiðum úr plasti vegna þess að flæði PAA-efna (e. Primary Aromatic Amines) úr plastinu er yfir mörkum. Ásbjörn Ólafsson ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað pastaskeiðarnar frá neytendum.

Neytendur