SA segir sóttvarnafrumvarp ótímabært og gallað Samtök atvinnulífsins telja ótímabært að setja ný heildarlög á sviði sóttvarna sökum þess að ekki hefur farið fram ýtarleg rannsókn á afleiðingum Covid-faraldursins og sóttvarnaaðgerða. Auk þess séu ýmsir vankantar á sóttvarnafrumvarpinu sem liggur fyrir Alþingi. Þetta kemur fram í umsögn samtakanna um frumvarpið. 10.6.2022 13:08
Skjálftavirkni hafði veruleg áhrif á afkomu Matorku Matorka, sem framleiðir laxfiska í landeldi, tapaði 8,4 milljónum evra, jafnvirði 1.160 milljóna króna á síðasta ári en til samanburðar nam tap félagsins 1,1 milljón evra á árinu 2020. 10.6.2022 10:21
Gildi og LIVE vísa því á bug að verðmæti hafi verið flutt milli kynslóða Framkvæmdastjórar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna (LIVE) og Gildis lífeyrissjóðs, ásamt tryggingastærðfræðingi hjá Talnakönnun, vísa því á bug að breytingar sem voru gerðar á áunnum lífeyrisréttindum feli í sér að brot á eignarrétti yngri sjóðfélaga. Þvert á móti stuðluðu breytingarnar að „jafnræði milli sjóðfélaga“ og komu í veg fyrir „stórfelldan og óréttlátan tilflutning verðmæta“ frá eldri sjóðfélögum og lífeyrisþegum til þeirra sem yngri eru. 9.6.2022 16:41
Íslenska lífeyriskerfið með hæsta hlutfall sjóðsöfnunar innan OECD Lífeyrissparnaður landsmanna í formi samtryggingar og séreignar lífeyrissjóða og annarra vörsluaðila nam 7.083 milljörðum króna í árslok 2021 og jókst um 17,3 prósent á árinu. 9.6.2022 14:28
Ölgerðin tæpum 12 prósentum yfir útboðsgengi í fyrstu viðskiptum Hlutabréfaverð Ölgerðarinnar stendur í rétt tæplega 10 krónum eftir að bréf drykkjarvörufyrirtækisins voru tekin til viðskipta í Kauphöllinni í morgun og er því 11,6 prósentum yfir því útboðsgengi sem bauðst almennum fjárfestum. Viðskipti með bréfin hafa numið rúmum 50 milljónum það sem af er degi. 9.6.2022 10:13
Lítið fór fyrir tugmilljarða tilfærslu milli kynslóða Nokkrir af stærstu lífeyrissjóðum landsins hafa gripið til þess ráðs að breyta áunnum lífeyrisréttindum mismikið eftir aldurshópum þannig að aukning þessara réttinda sé minni hjá yngri kynslóðinni heldur en þeirri eldri. 9.6.2022 06:02
Tekjur Coripharma jukust um rúm 60 prósent milli ára Íslenska lyfjafyrirtækið Coripharma tapaði 12,5 milljónum evra, jafnvirði 1.700 milljóna króna, á síðasta ári samanborið við 11 milljóna evra tap á árinu 2020. Rekstrartekjur, samkvæmt nýbirtum ársreikningi félagsins, námu 9 milljónum evra, eða um 1.250 milljónum króna, og jukust um ríflega 60 prósent milli ára. 8.6.2022 08:31
Nova kallar eftir skýrum reglum um inngrip vegna Huawei Fjarskiptafélagið Nova hefur kallað eftir því að stjórnvöld setji skýrar leikreglur um heimild hins opinbera, sem má finna í frumvarpi að fjarskiptalögum, til að hafa afskipti af því hvaða birgjar megi útvega búnað í fjarskiptainnviði á Íslandi. Jafnframt leggur Nova til að stjórnvöldum verði skylt að bæta fjarskiptafélögum tjón af íþyngjandi inngripum en það gæti í versta falli hlaupið á mörgum milljörðum króna. 7.6.2022 12:05
Hreggviður og Höskuldur komu að kaupunum á Promens Fjárfestarnir Hreggviður Jónsson og Höskuldur Tryggvason voru í samfloti við framtakssjóðina SÍA IV og Freyju í kaupunum á Promens og fara nú með tæplega fimm prósenta óbeinan eignarhlut í plastsamstæðunni. 3.6.2022 16:00
Heiðar veltir Gildi úr sessi sem stærsti hluthafi Sýnar Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar, er orðinn stærsti hluthafi fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækisins eftir að hafa keypt bréf fyrir 115 milljónir í dag. 3.6.2022 13:53