Áfall að sjá dæmdan kynferðisbrotamann fyrir utan heimilið Fjölbreyttur hádegisfréttatími er framundan á Bylgjunni. Þar ber hæst að móðir sem lagði fram kæru gegn starfsmanni leikskóla í Múlaborgarmálinu segir það hafa verið enn eitt áfallið að sjá brotamanninn fyrir utan heimili sitt tæpum fimm mánuðum eftir að maðurinn var fundinn sekur um kynferðisbrot gegn barni. Rætt er við móðurina í fréttatímanum. 15.9.2026 11:52
Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Tveimur blysum var skotið frá rússnesku skipi á danska herþyrlu sem var við reglulegt eftirlit í gær. Danska utanríkisráðuneytið hefur kallað rússneska sendiherrann á sinn fund vegna uppákomunnar. 15.9.2026 08:32
Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir útlitið ekki gott með tilliti til yfirvofandi verkfalls flugvirkja. Icelandair hafi lagt til að gerðardómsleið verði farin í deilunni en ekkert hafi verið ákveðið. Verkfall myndi hafa áhrif á þúsundir ferðamanna. 15.9.2026 08:09
Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Fjölbreytttur hádegisfréttatími er framundan á Bylgjunni, en fyrst verður fjallað um hvalveiðar. Stjórnvöld Vestanhafs hafa hótað því að leggja tolla á íslenskan innflutning vegna veiðanna, samkvæmt heimildum fréttastofu. Þá hafa hótanir einnig borist frá Evrópusambandsríkjum. Atvinnuvegaráðherra hyggst leggja til að hvalveiðar verði bannaðar í frumvarpi sem verður lagt fram eftir áramót og segir bæði viðskiptahagsmuni þjóðarinnar og dýravelferð undir í málinu. 14.9.2026 11:45
Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Skordýraleifar hafa fundist í einni framleiðslulotu af River-hrísgrjónum og varar Matvælastofnun neytendur við neyslu þeirra. 11.9.2026 18:57
„Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrverandi fjármálaráðherra, segir boðuð fjárlög ekki senda góð skilaboð inn í kjaraviðræður. Þungt hljóð sé í atvinnurekendum vegna efnahagsástandsins og boðaðar skattahækkanir hjálpi ekki til. 7.9.2026 21:28
Klórar sér í kollinum Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambands Íslands segist klóra sér í kollinum yfir fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár. Hann segir að við fyrstu sýn virðist frumvarpið gera lítið fyrir kjomandi kjaraviðræður, áhrif á persónuafslátt og barnabætur séu sérlega vond. 7.9.2026 15:35
Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs Hádegisfréttir á Bylgjunni eru sagðar á slaginu klukkan tólf, en þar ber hæst að tuttugu prósent þeirra sem eru á kjörskrá hafa þegar greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhald viðræðna við Evrópusambandið. 28.8.2026 11:30
Ætlar ekki að láta kúga sig Baráttukonan Sema Erla Serdaroglu hefur verið ákærð fyrir brot á lögum um opinberar fjársafnanir. Hún neitar sök, segir málið skrípaleik og ætlar ekki að láta kúga sig. 27.8.2026 12:42
Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Í hádegisfréttum á Bylgjunni ber hæst að verðbólga hefur ekki verið meiri í tvö ár og mælist nú 5,6 prósent. Forsendur kjarasamninga eru því brostnar. Rætt verður við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, og Vilhjálm Birgisson, formann Starfsgreinasambands Íslands, um stöðuna. 27.8.2026 11:38