Ískyggilegar aðstæður á slysaæfingu Mörgum brá ef til vill í brún vegna elds og mikils viðbúnaðar á Reykjavíkurflugvelli í morgun. Þar var verið að halda stórslysaæfingu á vegum Isavia og almannavarna þar sem æfð voru viðbrögð við umfangsmiklu flugslysi. Hér í innslaginu að ofan má virða fyrir sér aðstæður á „slysstað.“ 1.10.2022 19:36
Perlur íslenskrar myndlistar sýndar í miðri vélsmiðju Einstæð listasýning verður í dag opnuð í aðeins fjórar klukkustundir á óhefðbundnum stað á í vélsmiðju í miðju iðnaðarhverfi í Hafnarfirði. 1.10.2022 12:28
„Þessi óánægja hefði ekki komið fram ef aðstæður hefðu verið öðruvísi“ Mennta- og viðskiptaráðherra segir að meta hefði átt betur hvernig skipan þjóðminjavarðar legðist í safnageirann í ljósi þess hve lengi þjóðminjaverðir hafi setið í gegnum tíðina. Nú er til skoðunar að setja hámarkstíma á stöðuna. Auglýsing fyrir stöðuna var tilbúin í ráðuneytinu, en allt kom fyrir ekki. 1.10.2022 12:01
Mjög sérstakt að styrkja rafbílakaup eins mikið þegar margir hefðu keypt sér bílinn án stuðnings Strætó fékk einn milljarð úr ríkissjóði í fyrra á meðan endurgreiðslur vegna rafbíla námu níu milljörðum króna - nokkuð sem sérfræðingur hjá Alþýðusambandi segir rosalegan mun. Mjög sérstakt sé að stjórnvöld dæli peningum í óskilvirkar loftslagsaðgerðir í stað þess að styðja betur við almenningssamgöngur. 30.9.2022 22:32
Sitja sem fastast og mynda eigin hreyfingu í bæjarstjórn Brynjólfur Ingvarsson bæjarfulltrúi á Akureyri mun sitja áfram þrátt fyrir að vera genginn úr Flokki fólksins. Það mun Jón Hjaltason varabæjarfulltrúi líka gera. Þeir hyggjast þétta raðirnar og koma af stað hreyfingu sem berst fyrir kjörum hinna verst settu. 30.9.2022 10:54
Guðlaugur Þór snarstækkaði á plakati á síðustu stundu Í Íslandi í dag var fjallað um auglýsingu fyrir opinn fund Sjálfstæðismanna um framtíð Reykjavíkurflugvallar í vikunni. Ekkert athugavert við fundinn; á honum tóku til máls ráðherra, borgarfulltrúar og vísindamenn. En skömmu fyrir fundinn var send út ný gerð af auglýsingunni í tölvupósti til flokksmanna. 29.9.2022 10:30
„Við erum að tala um ekki bara hundruð milljarða heldur þúsundir milljarða“ Bergi Ebba Benediktssyni rithöfundi og fyrirlesara er margt til lista lagt; hið nýjasta er að vera sérlegur áhugamaður um lífeyrissjóði. Bergur segir í viðtali við Ísland í dag að hann hafi áhyggjur af „ídentítet“-leysi lífeyrissjóða, enda séu þeir á meðal mikilvægari stofnana í okkar samfélagi. 29.9.2022 08:00
Svona tók fólk skjáskot í gamla daga Vakin var athygli á einkar athyglisverðri senu úr hversdagslífi óbreytts Kópavogsbúa í Íslandi í dag á miðvikudag, þar sem Árni Jón Árnason sagði frá ávana sínum að taka myndir af sjónvarpi sínu með hefðbundinni stafrænni myndavél til að halda utan um sjónvarpsminningarnar. Sýnd var sena úr nýrri kvikmynd, Velkominn Árni, sem hefur vakið töluverða athygli að undanförnu. 26.9.2022 09:09
Bæði mest notuðu fíkniefni á Íslandi og gífurlega hjálpleg lyf Haraldur Erlendsson geðlæknir sem hefur fengist við ADHD-greiningar í á þriðja áratug segir að ADHD sé sennilega dýrasti sjúkdómur mannkynsins. Hann telur að hátt í 15% þjóðarinnar séu haldin sjúkdómnum, þótt aðeins 5% séu með greiningu. Lyf geti skipt sköpum þótt það þekkist að þau séu misnotuð. 23.9.2022 09:02
„Getum alveg átt von á svona atburðum eins og nágrannaþjóðir okkar“ Tveir íslenskir karlmenn á þrítugsaldri eru í gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa skipulagt hryðjuverk hér á Íslandi. Að sögn lögreglu má ætla að áformuð hryðjuverk hafi jafnvel beinst gegn Alþingi, stjórnmálamönnum eða lögreglunni. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir atburðinn gríðarlega alvarlegan. 22.9.2022 19:34