Segja þingmennina verða að víkja Stjórn Framsóknarfélags Grindavíkur fordæmir harðlega ummæli þingmanna á veitingastaðnum Klaustur og segir þau óafsakanleg. 2.12.2018 23:12
Umfangsmestu óeirðir í áratug Emmanuel Macron, forseti Frakklands, íhugar nú að auka öryggisráðstafanir í París í kjölfar umfangsmikilla mótmæla vegna aukinna skatta og hækkandi kostnaðar. 2.12.2018 22:30
Freyja gefur lítið fyrir afsökunarbeiðni Sigmundar Hún segist ekki vilja fleiri símtöl þar sem ófatlaður karlmaður í valdastöðu talar niður til hennar og reynir að útskýra fyrir henni hvað fötlunarfordómar eru. Vísar hún þar til símtals sem hún fékk frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins í dag. 2.12.2018 21:10
Háttsettur Talibani felldur í loftárás Mullah Abdul Manan Akhund, einn æðsti meðlimur Talibana í Afganistan, var felldur í loftárás Bandaríkjanna í gær. 2.12.2018 20:30
Klár í slaginn þrátt fyrir mistök við síðasta geimskot Geimfarar sem skjóta á til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar á morgun eru klárir í slaginn og hafa litlar áhyggjur af öryggi sínu. 2.12.2018 19:45
Páfinn hefur áhyggjur af samkynhneigð presta Frans páfi segir ekki rétt að samkynhneigt fólk verði prestar eða nunnur. 2.12.2018 17:56
GameTíví spilar Battlefield V Óli Jóels henti sér í seinni heimsstyrjöldina og tók Tryggva með sér til stuðnings. 1.12.2018 14:53
Margmenni á Austurvelli Fjöldi fólks er nú saman kominn á Austurvelli þar sem fram fara mótmæli vegna Klaustursupptökunnar svokölluðu. 1.12.2018 14:42
Karl Gauti segist ekki hafa kallað Eygló „galna kerlingaklessu“ Karl Gauti Hjaltason segir fjölmiðla hafa ranglega eignað sér ummæli af Klaustursupptökunni svokölluðu um Eygló Harðardóttur. 1.12.2018 14:10
Miklar skemmdir eftir jarðskjálfta í Alaska Skjálftarnir mældust 7,0 og 5,7 stig og urðu skemmdir miklar í Anchorage og nærliggjandi sveitum. 1.12.2018 14:00