Gishlaine Maxwell áfrýjar fangelsisdómnum Gishlaine Maxwell, sem var nýverið dæmd til tuttugu ára fangelsisvistar fyrir að hafa aðstoðað Jeffrey Epstein, þáverandi kærasta sinn, við að finna og tæla unglingsstúlkur, hefur áfrýjað úrskurðinum. Bobbi Sternheim, lögmaður Maxwells, lagði fram ákæruna í dag. 7.7.2022 18:34
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum förum við ítarlega yfir afsögn Borisar Johnson forsætisráðherra Bretlands og viðbrögð við henni. Hann ætlar að sitja að völdum í nokkra mánuði eða þar til nýr leiðtogi Íhaldsflokksins hefur verið valinn. 7.7.2022 18:01
Stórleikarinn James Caan er látinn Stórleikarinn James Caan er látinn. Fjölskylda hans tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum um klukkan fimm í dag, að íslenskum tíma, en hann var 82 ára gamall og átti fimm börn, þar á meðal leikarann Scott Caan. 7.7.2022 17:26
Íhugaði að gera aðra skotárás í öðrum bæ Robert E. Crimo, sem hefur játað við yfirheyrslur að skjóta sjö manns til bana á skrúðgöngu í Highland Park á mánudaginn, íhugaði alvarlega að gera aðra skotárás í öðru ríki. Hann var vopnaður og með tuga skota en hætti við. 6.7.2022 22:44
Vara við gífurlegri ógn frá Kína Ken McCallum og Christopher Wray, yfirmenn MI5, innanríkisöryggisstofnunar Bretlands og Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI), vöruðu báðir við því í dag að mikil ógn stafaði af Kommúnistaflokki Kína. Ógnin sneri bæði að hagkerfum Bretlands og Bandaríkjanna og þjóðaröryggi ríkjanna. Þeir sögðu Kína einnig ógna bandamönnum ríkjanna í Evrópu og annars staðar í heiminum og að nauðsynlegt væri að grípa til aðgerða. 6.7.2022 22:01
Boris rak ráðherra sem bað hann um að segja af sér Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segist alls ekki ætla að segja af sér. Nú í kvöld rak hann ráðherrann Michael Gove úr ríkisstjórn sinni en Gove er sagður hafa beðið Johnson um að láta gott heita og segja af sér. 6.7.2022 21:23
Óttast að græðgi hægi á lækkun eldsneytisverðs Formaður FÍB óttast að græðgi hægi á lækkun eldsneytisverðs hér á landi. Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði um 9,5 prósent í gær og aftur um rúm þrjú prósent í dag. Innlendar bensínstöðvar hafa flestar lækkað lítraverð sitt um tvær og hálfa krónu í dag. 6.7.2022 20:38
Sóttu slasaðar konur í Hvalfirði og á Snæfellsnesi Útkall barst til björgunarsveita á Vesturlandi á fjórða tímanum í dag vegna konu sem hafði hrasað og slasað sig á fæti í Hvalfirði. Hún hafði verið á göngu í Síldarmannagötum innst í firðinum þegar hún slasaðist og gat hún ekki gengið. 6.7.2022 19:25
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar greinum við frá því hvernig höfuðstóll verðtryggðra lána getur margfaldast í verðbólgubálinu. Þannig getur höfuðstóll á algengri lásfjárhæð hækkað um allt að fjögur hundruð prósent á þrjátíu ára lánstíma. 6.7.2022 18:01
Glúmur og Karl Gauti sækja einnig um í Rangárþingi ytra Tuttugu og fimm sóttu um stöðu sveitarstjóra Rangárþings ytra. Fimm þeirra sem sóttu um drógu umsóknir sínar þó til baka. 6.7.2022 17:50