Varar við „dauða og eyðileggingu“ verði hann ákærður Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, varaði í nótt því að „dauði og eyðilegging“ gæti fylgt því ef hann yrði handtekinn. Í sömu færslu kallaði Trump saksóknarann sem talinn er líklegur til að ákæra hann „úrkynjaðan geðsjúkling“ sem hataði Bandaríkin. 24.3.2023 16:29
Hafa skráð tugi aftaka á stríðsföngum Starfsmenn Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (OHCHR) hafa skrásett fjölda aftaka á stríðsföngum, bæði úkraínskum og rússneskum, í átökunum í Úkraínu. Mun erfiðara sé þó að fá upplýsingar frá Rússum og fá aðgang að föngum í haldi þeirra. 24.3.2023 14:35
Paltrow ber vitni í dag Gwyneth Paltrow og Terry Sanderson, sem höfðað hefur mál gegn henni vegna atviks þar sem hann braut fjögur rifbein í skíðabrekku í Utah í Bandaríkjunum árið 2016 munu líklega bæði bera vitni í dag. Réttarhöldin í þessu máli hófust í vikunni en Sanderson sakar Paltrow um að hafa rutt sig niður á skíðum svo hann hafi brotið rifbein og hlotið heilaskaða. 24.3.2023 11:58
Slapp með skrekkinn þegar teygjan slitnaði Ferðamaður frá Hong Kong komst í hann krappan í teygjustökki í Taílandi í janúar. Teygjan slitnaði svo hann skall í vatn á nokkuð miklum hraða. 24.3.2023 10:52
Gerðu loftárásir eftir mannskæða drónaárás Bandarískur verktaki féll í drónaárás í Sýrlandi í nótt þar sem skæruliðahópur studdur af stjórnvöldum í Íran notaðist við dróna frá ríkinu til árásarinnar á herstöð í norðausturhluta landsins. Annar verktaki og fimm bandarískir hermenn særðust í árásinni. 24.3.2023 10:07
Stefnumótakvöld hjá Gameverunni Það er stefnumótakvöld hjá Gameverunni Marín í kvöld. Hún tekur á móti Odinzki og ætla þau að spila leikinn ten dates. 23.3.2023 20:30
Rússar geti farið heim með skriðdrekana sína óttist þeir um þá John Kirby, talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna, segir að ef Rússar óttist um skriðdreka sína í Úkraínu, sé einfalt fyrir þá að keyra skriðdrekana aftur til Rússlands. Ráðamenn í Rússlandi hafa kvartað yfir því að Bretar séu að senda Úkraínumönnum skot úr rýrðu úrani. 23.3.2023 16:03
Þrívíddarprentuð eldflaug á loft í fyrsta sinn Starfsmönnum fyrirtækisins Relativity Space tókst loks í nótt að skjóta fyrstu þrívíddarprentuðu eldflauginni á loft. Tvær fyrri tilraunir höfðu misheppnast en bilun á efra stigi eldflaugarinnar leiddi til þess að hún komst ekki á braut um jörðu. 23.3.2023 14:12
Óvissustigi vegna Covid aflýst Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við sóttvarnalækni ákveðið að aflýsa óvissustigi Almannavarna vegna heimsfaraldurs Covid-19. Frá 27. janúar 2020 hafa ýmis almannavarnastig verið í gildi en er þar um að ræða óvissu-, hættu og neyðarstig. 23.3.2023 13:23
Segir málaferli gegn Paltrow vera „kjaftæði“ Lögmaður Gwyneth Paltrow, lýsti í vikunni dómsmáli sem höfðað hefur verið gegn leik- og athafnakonunni sem „kjaftæði“. Réttarhöldin í máli manns sem sakað hefur Paltrow um að hafa rutt sig niður á skíðum í Utah í Bandaríkjunum árið 2016 hófust á þriðjudaginn. 23.3.2023 11:06