Missti konu sína og son í skotárás óðs nágranna Wilson Garcia og fjölskylda hans hringdu fimm sinnum eftir aðstoð lögreglu þegar nágranni þeirra í Cleveland í Texas í Bandaríkjunum, neitaði að hætta að skjóta úr byssu í garði sínum. Þeim var tjáð að hjálp væri á leiðinni en stuttu síðar skaut umræddur nágranni fimm manns til bana, þar af konu og son Garcia. 2.5.2023 21:00
Kastaði haglaskotum í höllina Lögreglan í Lundúnum hefur handtekið mann sem sagður er hafa kastað haglaskotum og öðrum munum að Buckingham höll. Grunsamlegur poki sem maðurinn var með í fórum sínum var sprengdur í loft upp. 2.5.2023 20:40
Biden sendir hermenn að landamærum Mexíkó Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur skipað varnarmálaráðuneytinu að senda 1.500 hermenn til landamæra Bandaríkjanna og Mexíkó. Það gerði hann vegna mikils fjölda fólks sem er að reyna að komast inn í landið um landamærin. 2.5.2023 18:54
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Tæknideild lögreglu hefur í allan dag rannsakað vettvang stórbruna sem kom upp í húsnæði við höfnina í Hafnarfirði í gærkvöldi. Lögregla óskar eftir að ná tali af fjórum ungmennum vegna málsins. 2.5.2023 18:01
Flugu tugum herþota við Taívan Minnst 38 kínverskum orrustuþotum og öðrum herflugvélum var flogið nærri Taívan í morgun. Æfingar Kínverja við eyríkið hafa ekki verið umfangsmeiri frá því í byrjun mánaðarins þegar æft var hvernig umkringja ætti Taívan. Þá var Tsai Ing-wen, forseti Taívans, að snúa heim eftir heimsókn til Bandaríkjanna. 28.4.2023 16:54
Ummæli DeSantis um Disney líkleg til að koma niður á honum Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, sagði í gær að lögsókn Disney gegn sér og Flórída væri pólitísks eðlis. Forsvarsmenn fyrirtækisins væru reiðir yfir því að hann væri að binda enda á sérkjör Disney í Flórída. Hann segir Disney hafa verið á sérkjörum í Flórída og nú væri sá tími liðinn. 28.4.2023 15:21
Vinna að framhaldi Dodgeball Vinna er hafin að framhaldi Dodgeball: A true underdog story, grínmyndarinnar vinsælu frá 2004. Vince Vaughn mun snúa aftur í aðalhlutverki myndarinnar og mun hann mögulega einnig framleiða hana. 28.4.2023 12:41
Mynduðu rússneskt rannsóknarskip við Nord Stream Nokkrum dögum áður en Nord Stream gasleiðslurnar sprungu á botni Eystrasalts, mynduðu danskir sjóliðar rússneskt rannsóknarskip á svæðinu. Skipið, sem kallast SS-750 ber lítinn kafbát og er smíðað til rannsóknarstarfa neðansjávar. 28.4.2023 11:13
Stjórnarformaður BBC segir af sér vegna láns til Boris Johnson Richard Sharp, stjórnarformaður Breska ríkisútvarpsins, hefur sagt af sér eftir rannsókn þar sem skipun hans í embætti var skoðuð. Sú rannsókn snerist að miklu leyti um að Sharp hafi hjálpað Boris Johnson, þáverandi forsætisráðherra, að fá lán árið 2021, nokkrum vikum áður en Johnson skipaði hann í starfið. 28.4.2023 10:04
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Beðið eftir Úkraínumönnum Eins og undanfarnar vikur hefur lítið gerst á víglínunum í Úkraínu. Rússar hafa sótt fram í Bakhmut, í austurhluta landsins og náð þar hægum árangri. Hersveitir Rússa hafa reynt að ná bænum frá síðasta sumri og eru nú sagðir stjórna meirihluta hans. 28.4.2023 08:00