Missir ökuréttindi í níu mánuði og sektaður um tæpar fjórtán milljónir Jack Grealish, fyrirliði Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni, var í dag dæmdur fyrir tvö umferðalagabrot á árinu. Missir hann ökuréttindi í níu mánuði og þarf að greiða tæplega fjórtán milljónir íslenskra króna í sekt. 15.12.2020 14:02
KSÍ styrkir félögin í landinu um 70 milljónir: ÍBV og Þróttur R. fá mest samanlagt Knattspyrnusamband Íslands gaf það út í dag að sambandið myndi styrkja aðildarfélög landsins um 70 milljónir króna. Var þetta samþykkt á stjórnarfundi KSÍ þann 10. desember síðastliðinn. 15.12.2020 12:31
Ísland vígir endurbættan þjóðarleikvang Færeyja Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mun mæta Færeyjum ytra í æfingaleik næsta sumar. Verður leikurinn fyrsti opinberi leikur á endurbættum Þórsvelli, þjóðarleikvangi Færeyja. 15.12.2020 11:01
Ingibjörg hógvær þrátt fyrir að hafa unnið allt sem hægt var að vinna Á sínu fyrstu tímabili í Noregi varð Ingibjörg Sigurðardóttir Noregs- og bikarmeistari ásamt því að vera kosin leikmaður ársins. Hún segist hafa vitað liðið væri gott en árangurinn hafi vissulega komið á óvart. 15.12.2020 10:30
Geggjað að draumafélagið sé að fylgjast með Ísak Bergmann Jóhannesson segist lítið vera að velta sér upp úr framtíð sinni. Hann segir þó að það sé ánægjulegt að vita að draumafélag hans, Manchester United, sé að fylgjast með gangi mála. 14.12.2020 17:30
Meiðsli Neymar ekki jafn alvarleg og fyrst var talið Brasilíumaðurinn Neymar meiddist í leik með Paris Saint-Germain um helgina og var óttast að hann yrði lengi frá. Eftir frekari rannsóknir er talið að hann muni snúa aftur í næsta mánuði. 14.12.2020 17:01
Júlían tognaður aftan í læri og gæti misst af RIG Júlían J.K. Jóhannson, íþróttamaður ársins 2019 og heimsmethafi í réttstöðulyftu í sínum flokki, gæti misst af Reykjavík International Games sem hefjast eftir sjö vikur þar sem hann tognaði aftan í læri nýverið. 14.12.2020 16:31
Nets-tvíeykið er farið af stað, Giannis á eftir að skrifa undir og óvænt stjarna hjá Lakers Eftir vægast sagt stutt „sumarfrí“ eru lið NBA-deildarinnar í körfubolta farin að undirbúa komandi tímabil. Þann 12. des hófu liðin að leika æfingaleiki og eru nokkrir hlutir sem vekja strax athygli. 14.12.2020 16:00
Skiptir Magni um starf hjá AIK? Magni Fannberg gæti orðið næsti aðstoðarþjálfari sænska úrvalsdeildarliðsins AIK. Hann starfar nú sem þróunarstjóri hjá félaginu. 14.12.2020 15:00
Guðný fær nýjan þjálfara eftir aðeins einn leik Napoli, lið Guðnýjar Árnadóttur í ítölsku úrvalsdeildinni, hefur ákveðið að skipta um þjálfara. Ákvörðunin kemur í kjölfar fyrsta leiks Guðnýjar með liðinu. 14.12.2020 14:01