Loks vann Leeds og West Ham komið í Meistaradeildarsæti Tveimur af fjórum leikjum í ensku úrvalsdeildinni er lokið í kvöld. Leeds United vann loks leik er liðið lagði Newcastle United 2-1 á útivelli. West Ham United vann 3-2 útisigur á Crystal Palace. 26.1.2021 20:00
„Fullt af merkjum um það að við eigum fína framtíð“ Ásgeir Örn Hallgrímsson, fyrrum landsliðsmaður, atvinnumaður og nú sérfræðingur Seinni bylgjunnar, fór yfir frammistöðu Íslands í leikjunum tveimur gegn Frakklandi og Noregi. 26.1.2021 19:01
Rashford ekki alvarlega meiddur og klár í leik morgundagsins Marcus Rashford er ekki alvarlega meiddur og er klár í leik Manchester United gegn Sheffield United annað kvöld. Rashford var tekinn af velli undir lok leiks í 3-2 sigri Man Utd á Liverpool í FA-bikarnum vegna meiðsla í hné. 26.1.2021 18:30
Mahomes stýrði Chiefs í Ofurskálina annað árið í röð þrátt fyrir meiðsli „Maðurinn sem allt snýst um í Kansas er að sjálfsögðu tengdasonur Mosfellsbæjar, Patrick Mahomes,“ sagði Henry Birgir Gunnarsson í síðasta þætti Lokasóknarinnar er hann ræddi hinn magnaða leikstjórnanda Kansas City Chiefs. 26.1.2021 18:01
Magakveisa að hrjá leikmenn á HM í Egyptalandi Það virðist sem maturinn í Egyptalandi hafi farið illa í ýmsa landsliðsmenn en mjög margir leikmenn á HM í handbolta voru óleikfærir í gær vegna magakveisu. Alls voru fjórir leikmenn Slóveníu fjarverandi í jafnteflinu gegn Egyptalandi. 25.1.2021 07:01
Dagskráin í dag: Dominos-deild karla, FA-bikarinn og spænski boltinn Það er áhugaverður mánudagur framundan á Stöð 2 Sport. Við sýnum beint frá enska FA-bikarnum, tveimur leikjum Dominos-deild karla og frá spænska boltanum. 25.1.2021 06:01
Jóhannes Eðvaldsson látinn Fyrrum landsliðsmaðurinn Jóhannes Eðvaldsson er látinn sjötugur að aldri. Jóhannes lék knattspyrnu með skoska stórveldinu Celtic á áttunda áratug síðustu aldar. Var hann í miklum metum hjá stuðningsmönnum liðsins. 24.1.2021 23:13
Atlético komið með sjö stiga forystu á toppnum Atlético Madrid kom til baka gegn Valencia og vann 3-1 sigur er liðin mættust í spænsku úrvalsdeildinni. Lærisveinar Diego Simeone eru þar af leiðandi komnir með sjö stiga forystu á toppi La Liga. 24.1.2021 23:00
Svíar og Frakkar ósigraðir inn í átta liða úrslit | Heimamenn áfram eftir jafntefli gegn Slóveníu Frakkar fara með fullt hús stiga inn í 8-liða úrslit HM í handbolta eftir stórsigur á Portúgal í kvöld. Svíar jörðuðu Rússa og fara áfram án þess að tapa leik og þá komust heimamenn í Egyptalandi áfram í 8-liða eftir jafntefli gegn Slóveníu. 24.1.2021 21:44
Solskjær ánægður með að Man Utd hafi loks unnið á eigin forsendum Ole Gunnar Solskjær var hæstánægður með 3-2 sigur sinna manna gegn Liverpool í FA-bikarnum í dag. 24.1.2021 21:15