Dagskráin í dag: Barcelona, Real Madrid, Manchester City, Tottenham Hotspur og Dominos deild kvenna Það stútfull dagskrá af fjöri á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. 24.2.2021 06:01
Tiger var með meðvitund en alvarlega slasaður á báðum fótum Tiger Woods var með meðvitund er fólk kom að bíl hans eftir skelfilegt bílslys í kvöld. Hann var illa slasaður á báðum fótleggjum segir í frétt Independent um málið. 23.2.2021 23:44
Óska Tiger skjóts og góðs bata Tiger Woods, einn besti kylfingur allra tíma, lenti í skelfilegu bílslysi fyrr í kvöld. Hann þurfti í kjölfarið að fara í aðgerð vegna meiðsla á fæti eða fótum. Ekki hefur enn komið í ljós hversu alvarleg meiðslin eru en Tiger ku ekki vera í lífshættu. 23.2.2021 23:15
Sagði sigurinn verðskuldaðan og öll einbeitingin hafi farið í að hitta boltann í markinu Oliver Giroud reyndist hetja Chelsea en hann skoraði eina mark liðsins í 1-0 sigri á Atlético Madrid í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Mörkin verða vart glæsilegri en hann skoraði með hjólahestaspyrnu um miðbik síðari hálfleiks. 23.2.2021 22:50
Musiala yngstur Englendinga til að skora í Meistaradeild Evrópu Hinn 17 ára gamli Jamal Musiala skoraði eitt fjögurra marka Evrópumeistara Bayern München er liðið vann Lazio 4-1 í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu en leikurinn fór fram á heimavelli Lazio í Róm. 23.2.2021 22:31
Giroud hetja Chelsea í Búkarest Oliver Giroud skoraði eina mark leiksins er Chelsea vann 1-0 sigur á Atlético Madrid í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Vegna ferðatakmarkana sökum kórónufaraldursins á Spáni fór leikurinn fram í Búkarest í Rúmeníu. 23.2.2021 22:05
Evrópumeistarar Bayern kláruðu einvígið í fyrri hálfleik Leikur Lazio og Bayern München varð aldrei spennandi en Evrópumeistarar Bayern gerðu út um leikinn og einvígið í fyrri hálfleik, staðan þá 3-0 gestunum í vil en leiknum lauk með 4-1 sigir Bæjara. 23.2.2021 21:55
Millwall bjargaði stigi undir lokin | Lærisveinar Rooney á sigurbraut Landsliðsframherjinn Jón Daði Böðvarsson var í byrjunarliði Millwall sem heimsótti Luton Town í ensku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld. Lauk leiknum með 1-1 jafntefli en mark Millwall kom á sjöttu mínútu uppbótartíma. 23.2.2021 21:45
Naum töp hjá Íslendingaliðunum Álaborg og Kristianstad máttu þola naum töp í Meistaradeild Evrópu í handbolta annars vegar og Evrópudeildinni hins vegar. 23.2.2021 21:26
Tiger Woods í aðgerð vegna meiðslanna sem hann hlaut í bílslysinu Mark Steinberg, umboðsmaður Tiger Woods, hefur staðfest að kylfingurinn sé í aðgerð eftir að hafa lent í bílslysi fyrr í kvöld. 23.2.2021 20:39