Svekkelsi að hafa ekki klárað þennan leik með sigri Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari, var mjög ánægður með leik íslenska landsliðið í 2-2 jafntefli liðsins við Pólland á útivelli í dag. 8.6.2021 22:30
Markaskorari Íslands: „Bolti er bara bolti“ Brynjar Ingi Bjarnason spilaði í dag sinn þriðja leik fyrir íslenska A-landsliðið og skoraði sitt fyrsta mark er Ísland gerði 2-2 jafntefli við Pólland. 8.6.2021 22:01
Giroud nýtti tækifærið er Benzema fór meiddur af velli í síðasta leik Frakka fyrir EM Karim Benzema fór meiddur af velli er heimsmeistarar Frakka unnu 3-0 sigur á Búlgaríu í síðasta leik sínum fyrir EM í knattspyrnu sem hefst 11. júní. Oliver Giroud nýtti tækifærið en hann skoraði tvö af mörkum Frakklands í kvöld. 8.6.2021 21:36
Martin átti góðan leik er Valencia jafnaði metin Martin Hermannsson átti flottan leik í liði Valencia er liðið vann öruggan 18 stiga sigur á Real Madrid í síðari undanúrslitaleik liðanna í úrslitakeppni spænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta, lokatölur 85-67. 8.6.2021 21:21
Ómar Ingi frábær er Magdeburg sá til þess að Kiel komst ekki á toppinn Ómar Ingi Magnússon var að venju allt i öllu er Magdeburg vann Kiel með einu marki í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Lokatölur 34-33 Magdeburg í vil en gestirnir hefðu farið á toppinn með sigri. 8.6.2021 20:30
Ímyndaði mér alltaf að ég myndi fá að standa í svona viðtali eftir landsleik Guðmundur Þórarinsson, vinstri bakvörður Íslands í 2-2 jafnteflinu við Pólland fyrr í dag, hefur beðið í dágóða tíma eftir því að fá tækifæri með A-landsliði Íslands og greip tækifærið með góðri frammistöðu í dag. 8.6.2021 20:21
Tvö tilboð borist í Brynjar Inga Brynjar Ingi Bjarnason hefur skotist upp á stjörnuhimininn undanfarnar vikur. Eftir frábæra byrjun með KA í Pepsi Max deildinni þá hefur hann nú spilað þrjá A-landsleiki í röð og skoraði hann sitt fyrsta mark í 2-2 jafnteflinu við Pólland í dag. 8.6.2021 19:59
Ragnhildur efst á Opna breska áhugamannamótinu | Til mikils að vinna Ragnhildur Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, er sem stendur með tveggja högga forystu á næstu kylfinga eftir tvo hringi á Opna breska áhugamannamótinu sem nú fer fram í Kilmarnock í Skotlandi. 8.6.2021 19:15
Skrifaði undir samning sem gildir næsta áratuginn Það eru fáir – ef einhverjir – knattspyrnumenn þarna úti sem hafa skrifað undir tíu ára samning á lífsleiðinni. Jon Moncayola, leikmaður Osasuna í La Liga, spænski úrvalsdeildinni, varð hins vegar í dag einn af þeim. 8.6.2021 18:31
Umfjöllun og myndir: Pólland - Ísland 2-2 | Svekkjandi niðurstaða í frábærum leik Ísland var hársbreidd frá því að landa sínum fyrsta sigri gegn Póllandi í A-landsliðum karla í knattspyrnu er liðin gerðu 2-2 jafntefli í dag. Tvívegis komst Ísland yfir en í bæði skiptin komu heimamenn til baka. 8.6.2021 18:00