Barbára Sól sneri aftur í sigri Barbára Sól Gísladóttir sneri aftur í lið Bröndby eftir nokkurra leikja fjarveru vegna meiðsla er liðið vann 1-0 útisigur á Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 13.11.2021 17:01
Elvar Örn hefði betur gegn Viggó | Bjarki Már markahæstur í sigri Lemgo Elvar Örn Jónsson hafði betur gegn Viggó Kristjánssyni er lið þeirra Melsungen og Stuttgart mættust í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Bjarki Már Elísson var að venju markahæstur er Lemgo lagði Lübbecke. 13.11.2021 16:46
Finnar í lykilstöðu þrátt fyrir að brenna af víti og næla sér í rautt spjald Finnland vann góðan 3-1 útisigur á Bosníu og Hersegóvínu í undankeppni HM 2022 þrátt fyrir að klúðra víti og næla sér í rautt spjald í fyrri hálfleik. Finnar eiga því enn möguleika á að vinna D-riðil og tryggja sér sæti á HM í Katar. 13.11.2021 16:15
Tottenham fyrst liða til að ná stigi af Arsenal Tottenham Hotspur var hársbreidd frá því að verða fyrsta liðið til að næla í sigur gegn Arsenal í ensku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu nú í dag. Lokatölur 1-1 en jöfnunarmark Arsenal kom í uppbótartíma. 13.11.2021 15:41
Ingibjörg spilaði er Vålerenga vann | Glódís Perla sat á bekknum er Bayern tapaði toppslagnum Bayern München tapaði 1-0 gegn Wolfsburg í toppslag þýsku úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu í dag. Í Noregi endaði Vålerenga deildarkeppnina á sigri. 13.11.2021 15:00
Klæmint Olsen gerði það sem engum hafði tekist í undankeppni HM til þessa Þó Danmörk hafi unnið leikinn sannfærandi 3-1 þá urðu Færeyingar í gær fyrsta liðið til að koma knettinum netið hjá Kasper Schmeichel í undankeppni HM 2022. 13.11.2021 14:30
Óbólusettir leikmenn fá ekki að taka þátt á HM Rúmlega tvær vikur eru í að heimsmeistaramót kvenna í handbolta fari af stað á Spáni. Löndin sem hafa unnið sér inn þátttökurétt hafa því örskamma stund til að bregðast við nýjustu reglugerð mótsins: Það er að allir sem koma að liðunum þurfi að vera bólusettir. 13.11.2021 14:01
Birkir um leikjametið „Sjáum til hvað gerist, þarf að spila leikinn fyrst“ Spili Birkir Bjarnason leik Íslands og Norður-Makedóníu á morgun verður hann leikjahæsti leikmaður í sögu íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu. Hann og Rúnar Kristinsson deila metinu nú með 104 leiki hvor. 13.11.2021 13:15
Arnar Þór fyrir leikinn gegn Norður-Makedóníu: Viljum enda þetta á mjög góðum nótum Ísland mætir Norður-Makedóníu ytra í lokaleik undankeppni HM 2022 í knattspyrnu á morgun. Arnar Þór Viðarsson og Birkir Bjarnason sátu fyrir svörum á blaðamannafundi í Skopje í dag. 13.11.2021 12:31
FH fær vinstri bakvörð Fram Nýliðar Fram halda áfram að missa leikmenn úr sínum röðum en vinstri bakvörðurinn Haraldur Einar Ásgrímsson hefur samið við FH um mun leika með félaginu næstu þrjú árin. 13.11.2021 12:00