Diljá Ýr spilaði í grátlegu tapi gegn Benfica | Barcelona skoraði fimm Tveimur leikjum í Meistaradeild Evrópu kvenna er nú lokið. Häcken mátti þola grátlegt tap gegn Benfica á heimavelli þar sem sigurmarkið kom í uppbótartíma. Þá vann Barcelona þægilegan 5-0 sigur á Hoffenheim. 17.11.2021 19:55
Lakers mun spila heimaleiki sína í Rafmyntar-höllinni Hin goðsagnarkennda Staples Center, þar sem Los Angeles Lakers og Clippers, hafa leikið heimaleiki sína í NBA-deildinni fær nýtt nafn um jólin. Mun höllin bera heitið Crypto.com Arena. 17.11.2021 19:16
ÍR fær liðsstyrk frá Króatíu Króatinn Igor Marić hefur samið við ÍR og mun leika með liðinu í Subway-deild karla í körfubolta út þetta tímabil. Þetta kemur fram í tilkynningu frá körfuknattleiksdeild ÍR. 17.11.2021 18:31
Leggur skóna á hilluna rétt rúmlega þrítugur að aldri Arnþór Ingi Kristinsson hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna. Skagamaðurinn hefur leikið með KR undanfarin ár og var til að mynda stór ástæða þess að liðið varð Íslandsmeistari sumarið 2019. 17.11.2021 17:46
Var kominn fram fyrir De Gea í goggunarröðinni þegar allt fór fjandans til Danski markvörðurinn Anders Lindegaard opnaði sig nýverið varðandi meiðsli sem hann varð fyrir er hann var leikmaður Manchester United. Meiðsli sem leiddu til endaloka hans hjá félaginu og skyldu hann eftir á dimmum og drungalegum stað. 16.11.2021 07:00
Margrét Lea og Jónas Ingi á verðlaunapall í Wales Um helgina fór fram Norður-Evrópumótið í áhaldafimleikum. Landsliðin okkar höfnuðu í 5. sæti mótsins en Margrét Lea Kristinsdóttir gerði sér lítið fyrir og nældi í silfur á meðan Jónas Ingi Þórisson nældi í brons. 15.11.2021 23:01
Hrósaði leikmönnum og sagði liðið hafa unnið fyrir þessu í Búdapest, Varsjá og Albaníu Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, ræddi við fjölmiðla að loknum 10-0 sigri sinna manna á San Marínó í kvöld. Sigurinn tryggði farseðilinn til Katar þar sem HM 2022 fer fram. 15.11.2021 22:30
Sviss sendi Evrópumeistara Ítalíu í umspil | Skotar fyrstir til að leggja Dani Ríkjandi Evrópumeistarar Ítalíu fara í umspil um sæti á HM í Katar á næsta ári. Skotland varð einnig fyrsta liðið til að sækja þrjú stig gegn Danmörku en fyrir leik kvöldsins höfðu Danir unnið alla níu leiki sína í undankeppninni. 15.11.2021 22:01
England skoraði tíu og tryggði sæti sitt á HM San Marínó er lélegasta landslið heims samkvæmt FIFA-listanum. Það sannaðist í kvöld er England vann 10-0 sigur á Ólympíuleikvanginum í San Marínó og tryggði sér sæti á HM í Katar árið 2022. 15.11.2021 21:35
Óttar Bjarni spilar með uppeldisfélaginu á næstu leiktíð Það virðist klappað og klárt að Óttar Bjarni Guðmundsson muni leika með uppeldisfélagi sínu Leikni Reykjavík í efstu deild karla í knattspyrnu sumarið 2022. 15.11.2021 20:00