Hjörtur Logi hefur lagt skóna á hilluna Hjörtur Logi Valgarðsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hann lék með FH í efstu deild karla í fótbolta síðasta sumar en samningur hans rann út í kjölfarið. Óvíst var hvað hann myndi gera í sumar en hann tók alla vafa af er hann tilkynnti að skórnir væru farnir upp í hillu. 13.4.2022 14:00
Þjálfari Norður-Írlands segir konur tilfinningaríkari en karla: Hefur beðist afsökunar Kenny Shiels, þjálfari kvennalandsliðs Norður-Írlands í fótbolta, telur að konur séu tilfinningaríkari en karlar. Opinberaði hann skoðun sína á blaðamannafundi eftir 5-0 tap N-Írlands gegn Englandi í undankeppni HM 2023. 13.4.2022 13:31
Rodman komin á blað með landsliðinu: Sjáðu markið Trinity Rodman skoraði sitt fyrsta A-landsliðsmark í nótt er Bandaríkin unnu þægilegan 9-0 sigur á Úsbekistan í vináttulandsleik. Trinity er dóttir körfuboltakappans fyrrverandi Dennis Rodman. 13.4.2022 13:00
„Langþráðar framkvæmdir“ hafnar á svæði KA Framkvæmdir hófust í dag á svæði íþróttafélagsins KA á Akureyri. Um er að ræða langþráðar framkvæmdir sem eiga að endurbæta aðstöðu til knattspyrnuiðkunar hjá félaginu. Heldur Akureyrar bær utan um framkvæmdina. 13.4.2022 12:31
Ástralskur framherji til liðs við Breiðablik Bikarmeistarar Breiðabliks hafa samið við ástralska framherjann Melinu Ayers um að leika með liðinu í Bestu-deild kvenna í fótbolta í sumar. Kemur hún á láni frá Melbourne Victory í heimalandinu. 13.4.2022 11:31
Haukur og Daníel utan hóps í dag Landsliðshópur Íslands fyrir fyrri leikinn gegn Austurríki í umspili um laust sæti á HM 2023 í handbolta sem fram fer í Svíþjóð og Póllandi er klár. Þeir Haukur Þrastarson og Daníel Þór Ingason eru ekki í leikmannahóp íslenska landsliðsins í dag. 13.4.2022 11:01
Besta-spáin 2022: Déjà Vu í Vesturbænum Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir KR 5. sæti Bestu deildar karla í sumar. 13.4.2022 10:00
LeBron gæti neitað að framlengja við Lakers í von um að vinna titla Eftir skelfingar tímabil Los Angeles Lakers í NBA-deildinni eru orðrómar á kreiki að stórstjarna liðsins, LeBron James, gæti neitað að framlengja samning sinn við félagið í von um að vinna titil annarsstaðar. 13.4.2022 09:31
Ten Hag gert munnlegt samkomulagi við Man United Hinn hollenski Erik Ten Hag mun stýra enska knattspyrnuliðinu Manchester United á næstu leiktíð. Það virðist aðeins formsatriði hvenær hann verður kynntur til leiks ef marka má fjölmiðla erlendis. 13.4.2022 09:00
Alyssa Nakken heldur áfram að brjóta blað í sögu hafnaboltans Það er ljóst að hin 31 árs gamla Alyssa Nakken hefur skráð sig í sögubækur MLB-deildarinnar í hafnabolta. Hún er ekki aðeins fyrsta konan til að hafa verið ráðin í fullt starf sem þjálfari heldur er hún einnig fyrsta konan til að stíga inn á völlinn og þjálfa á meðan leik stendur. 13.4.2022 08:31