Sex mörk skoruð í Laugardalnum en engin greip gæsina Þróttur Reykjavík vann 4-2 sigur á nýliðum Aftureldingar í Bestu deild kvenna fyrr í vikunni. Þó allir markaskorarar leiksins hafi verið að skora sín fyrstu mörk í Bestu deildinni þá má með sanni segja að engin hafi gripið gæsina. 5.5.2022 07:01
Dagskráin í dag: Undanúrslit út um allt Það er nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag og kvöld. Segja má að undanúrslit séu allstaðar en við sýnum undanúrslitaleiki frá Selfossi, Rómarborg og Frankfurt. 5.5.2022 06:02
Fótbolti er óútreiknanlegur „Við vorum nálægt, við vorum mjög nálægt. En á endanum tókst ekki að komast áfram,“ sagði Pep Guardiola eftir súrt tap sinna manna í Madríd í kvöld. Tapið þýðir að Manchester City mistókst að komast í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. 4.5.2022 23:45
Sleit krossband í hné í sínum fyrsta deildarleik fyrir ÍBV Sydney Nicole Carr hóf feril sinn með ÍBV í Bestu deild kvenna í fótbolta á versta mögulega hátt. Hún sleit krossband í hné og var tekin af velli eftir rétt rúmlega tíu mínútna leik. Hún spilar ekki meira á tímabilinu. 4.5.2022 23:31
Segir sögu Real Madrid hafa hjálpað liðinu Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madríd, átti fá orð til að útskýra enn eina endurkomu liðs síns í Meistaradeild Evrópu. Real tókst á einhvern ótrúlegan hátt að skora tvívegis undir lok leiks gegn Manchester City og tryggja sér svo sæti í úrslitum með marki í framlengingu. 4.5.2022 22:45
Real Madríd komið í úrslit eftir ótrúlegan viðsnúning Real Madríd er komið í úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir ótrúlegan 3-1 sigur á Manchester City í framlengdum leik á Spáni í kvöld. 4.5.2022 21:45
Martin stoðsendingahæstur er Valencia féll úr leik í undanúrslitum Íslenski landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson átti fínan leik er Valencia féll úr leik í EuroCup fyrir Virtus Bologna, lokatölur á Spáni 73-83. 4.5.2022 20:46
Arsenal í humátt á eftir Chelsea | Man City felldi Birmingham Tveir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeild kvenna í fótbolta. Arsenal vann öruggan sigur á Tottenham Hotspur. Þá er Birmingham City fallið eftir stórt tap gegn Manchester City. 4.5.2022 20:30
Sveindís Jane hvíld er Wolfsburg setti aðra hönd á titilinn Sveindís Jane Jónsdóttir sat allan tímann á varamannabekk Wolfsburg er liðið vann öruggan 5-1 útisigur á Essen og er því aðeins einum sigri frá því að tryggja sér þýska meistaratitilinn. 4.5.2022 19:30
Enn einn sigurinn hjá lærisveinum Guðjóns Vals Gummersbach, lið Guðjóns Vals Sigurðssonar, vann enn einn leikinn í þýsku B-deildinni í handbolta í kvöld. Það þarf eitthvað mikið að gerast til að liðið vinni sér ekki inn sæti í þýsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. 4.5.2022 19:05