Salah mun ekki yfirgefa Liverpool í sumar Mohamed Salah, stórstjarna Liverpool, hefur staðfest að hann muni ekki yfirgefa félagið í sumar. Samningur hans rennur út sumarið 2023. Sömu sögu er að segja af Sadio Mané. 26.5.2022 13:31
Forsætisráðherra Bretlands studdi yfirtöku Sádanna á Newcastle Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, studdi að ríkisrekinn fjármögnunarsjóð frá Sádi-Arabíu myndi festa kaup á enska fótboltafélaginu Newcastle United. Boris hafði áður sagt að ríkistjórn Bretlands hefði ekki komið að kaupunum á einn eða neinn hátt. 26.5.2022 11:30
Kaepernick æfir með Raiders | Sex ár síðan hann var útskúfaður Leikstjórnandinn Colin Kaepernick mun æfa með NFL-liði Las Vegas Raiders í vikunni. Komin eru sex ár síðan Kaepernick var útskúfaður úr deildinni fyrir að krjúpa þegar þjóðsöngurinn var sunginn. 26.5.2022 11:01
Forseti UEFA ver reglur um fjárhagslega háttvísi í kjölfar ákvörðunar Mbappé Aleksander Ceferin, forseti knattspyrnusambands Evrópu, hefur varið FFP-reglur sambandsins (reglur um fjárhagslega háttvísi) eftir mikla gagnrýni á þær í kjölfars nýs samnings franska sóknarmannsins Kylian Mbappé við París Saint-Germain. 26.5.2022 09:30
Vildi koma ferlinum af stað á Íslandi | Húkkaði far á tónlistarhátið á Ísafirði Alexander Scholz er nafn sem mögulega aðeins stuðningsfólk Stjörnunnar kannast við. Um er að ræða ungan Dana sem kom fótboltaferlinum af stað á nýjan leik á Íslandi áður en hann blómstraði í Belgíu, Danmörku og nú Japan. Hann skaut upp kollinum í einu vinsælasta hlaðvarpi landsins á dögunum. 26.5.2022 09:15
Boston Celtics einum sigri frá úrslitum Boston Celtics lagði Miami Heat með 13 stiga mun, 93-80, í fimmta leik liðanna í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta. Celtics er því aðeins einum sigri frá því að komast í úrslitaeinvígi deildarinnar. 26.5.2022 08:30
Fær rúmlega þrjátíu og tvo milljarða til að eyða í leikmenn Nýir eigendur Chelsea eru tilbúnir að setja rúmlega 200 milljónir punda, eða 32 og hálfan milljarð íslenskra króna, í nýja leikmenn. 26.5.2022 08:00
Leikhús fáránleikans: Sá um leikgreiningu Man United frá Moskvu Það hefur margt undarlegt gengið á hjá enska fótboltafélaginu Manchester United á undanförnum árum. Eftir að Ralf Rangnick tók tímabundið við sem þjálfari áður en hann myndi færa sig um set og verða ráðgjafi fóru hlutirnir einfaldlega úr böndunum. 24.5.2022 07:00
Dagskráin í dag: Stórleikur með stóru S-i í Bestu deild í kvenna Við bjóðum upp á sannkallaðan STÓRLEIK í Bestu deild kvenna í fótbolta í dag þegar Íslandsmeistarar Vals mæta bikarmeisturum Breiðabliks á Kópavogsvelli. Þá er Martin Hermannsson í beinni frá Spáni og Queens á sínum stað. 24.5.2022 06:00
Mest skorað á Kópavogsvelli og í Víkinni | Minnst í Vesturbænum Breiðablik hefur farið frábærlega af stað í Bestu deild karla og unnið alla sjö heimaleiki sína. Íslands- og bikarmeistarar Víkings hafa ekki farið jafn vel af stað en heimavöllur liðsins hefur hins vegar boðið upp á mikla skemmtun, þó ekki endilega fyrir Víkinga. 23.5.2022 23:31