Ellefu vísbendingar um að jafnvægið sé í klúðri Í hinum fullkomna heimi væri jafnvægið á milli heimilis og vinnu ekkert mál. Þótt starfsframinn sé á fullri ferð samhliða því að reka heimili, ala upp börn og stunda jafnvel áhugamálin. 14.10.2022 07:00
Kulnun eftir Covid áberandi hjá 18-24 ára og sölu- og markaðsfólki „Það sem gerir niðurstöðurnar fyrir 18 til 24 ára sláandi er hversu mikil breyting er á milli ára. Kulnun hjá þessum aldurshópi mælist 6 til 7% fyrir og í Covid en eykst hratt og mælist 17% eftir Covid. Sú starfsgrein þar sem kulnun mælist líka mjög há er til dæmis hjá sölu- og markaðsfólki,“ segir Trausti Heiðar Haraldsson framkvæmdastjóri Prósent. 12.10.2022 07:00
Fjarvinna og fyrirtækjarekstur: „Okkur langaði til að lifa lífinu öðruvísi en í hasarnum heima“ „Við vorum að horfa á þáttinn Hvar er best að búa? með Lóu Pind, um hjónin sem fluttu til Danmerkur og fóru að reka hótel í Lálandi þegar Torfi lítur allt í einu á mig og spyr: En hvað með Danmörk?“ segir Lóa Dís Finnsdóttir, grafískur hönnuður búsett í Maribo með eiginmanninum Torfa Agnarsyni auglýsingaljósmyndara. 11.10.2022 07:01
Mafíusögur 2022: „Ég heyri ekki, ég sé ekki, ég tala ekki“ Fyrir rúmu ári síðan gerðist sá harmleikur í góðu hverfi í Palermo á Sikiley að rétt rúmlega fimmtugur fjölskyldufaðir féll, eða fleygði sér, fram af svölum á 9.hæð í fjölbýli og lést. 9.10.2022 08:01
Hlakkar til á kvöldin að drekka kaffið í góðu skapi á morgnana Morgunhaninn Sigríður Dögg Auðunsdóttir fréttamaður á RÚV og formaður Blaðamannafélags Íslands, viðurkennir að hafa forðast ljósvakamiðla í mörg ár af ótta við að mistakast í beinni útsendingu. Öryggið kom þó á endanum en að fara í sjónvarp var áskorun. 8.10.2022 10:01
Að losna undan kjaftaglaða samstarfsfélaganum Við höfum flest lent í þessu: Þekkjum einhvern sem við kunnum mjög vel við en á það til að tala of mikið. Og of oft og of lengi í senn. Sem getur verið mjög truflandi í vinnu. 7.10.2022 07:00
Stjórnvöld verða að fara að hlusta og atvinnulífið að verða háværara „Við þurfum að taka meira pláss og verða háværari. Það er hreinlega orðið aðkallandi fyrir atvinnulífið að menntastefnan og þarfir atvinnulífsins fari að falla betur saman,“ segir Hildur Elín Vignir stjórnarkona í Mannauði, félags mannauðsfólks á Íslandi. 6.10.2022 07:00
Þurfum að breyta stjórnun og skipulagi til að halda í rétta starfsfólkið „Það er ekki langt síðan að hinn dæmigerði starfsmannastjóri var karlmaður á miðjum aldri með lögfræðimenntun. Í dag eru mannauðsstjórar með mun fjölbreyttari bakgrunn og oft með lengri menntun og meiri krafa gerð til mannauðsfólks hvað varðar samskiptafærni, tilfinningagreind og annarra hæfniþátta sem snúa að mannlegri hegðun,“ segir Sigrún Kjartansdóttir framkvæmdastjóri Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi. 5.10.2022 07:02
40 ára plús: Myndir þú fá starfið þitt í dag ef það væri auglýst? „Eftir fertugt getur myndast ákveðin hætta á að fólk festist í ákveðnu fari eða fari að líða of vel í þægindahringnum, án þess að velta því fyrir sér hvort eitthvað þarfnist skoðunar, upp á framtíðar atvinnuhæfni“ segir Herdís Pála Pálsdóttir stjórnendaráðgjafi og margreyndur mannauðstjóri, til skýringar á því hvers vegna örnámskeiðið Ferillinn eftir fertugt miðast við fólk sem er fertugt eða eldri og vill skoða starfsferil sinn. 4.10.2022 07:00
„Það sem kemur mér endalaust á óvart aftur og aftur eru hæfileikar fólks.“ „Þegar talað er um nýsköpun hugsar fólk oftast til sprotafyrirtækja og þessara snillinga sem eru að gera svo frábæra hluti víða. Í stórum og rótgrónum fyrirtækjum fer líka mikil nýsköpun fram og það sem við erum að gera er að virkja þennan kraft,“ segir Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania. 3.10.2022 07:02