Að peppa upp dauðþreytt starfsfólk í desember Á mörgum stöðum er desember stærsti sölumánuðurinn. Mesti álagstími ársins fyrir starfsfólk. Sem þó, til viðbótar við að vinna mikið, er líka að undirbúa sín jól. Með tilheyrandi stússi. 9.12.2022 07:00
Mikilvægt að tryggja að í upplýsingagjöf fyrirtækja séu engar hálfsagðar sögur „Grænþvottur á sér stað þegar fyrirtæki setur fram rangar eða villandi upplýsingar um það sem þau eru að gera í umhverfismálum. Þetta er ekkert alltaf gert viljandi. En það sem gerist þegar fyrirtæki eru uppvís að grænþvotti er að það getur skemmt út frá sér og dregið úr tiltrú fólks á umhverfismálin,“ segir Birgitta Steingrímsdóttir sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun. 8.12.2022 08:44
„Við eigum að fara að hegða okkur meira eins og ömmur okkar og afar“ „Íslendingar hafa margt oft sýnt og sannað hversu öflug og fljót við erum að aðlaga okkur breytingum. Ég er bjartsýnn að eðlisfari og tel því að allir eigi eftir að taka vel í þessar breytingar, fólki hér er annt um náttúruna og við viljum flest vera sjálfbær,“ segir Freyr Eyjólfsson, verkefnastjóri Hringrásarhagkerfisins hjá SORPU. 7.12.2022 07:01
„Það er alltaf ástin sem leiðir mig hvert ég fer“ „Það er alltaf ástin sem leiðir mig hvert ég fer. Þannig hefur það alltaf verið,“ segir Brynja Tomer og hlær. Fædd í Danmörku, alin upp á Íslandi, búsett á Spáni, á Ítalíu, á Íslandi en nú Kólumbíu. 5.12.2022 07:01
Alvöru ítalskt: „Ég lofa að vera þér alltaf trúr, í gleði og sársauka…“ „Ég lofa að vera þér alltaf trúr, í gleði og sársauka, í heilsu og veikindum, í auði og fátækt og að elska þig og heiðra alla daga lífs míns. Ég lofa að gæta þín og næra ástarloga mína til þín á hverjum degi, svo sá logi muni vaxa og dafna það sem eftir er ævi minnar,“ segir brúðguminn Riccardo Loss við brúði sína. 4.12.2022 08:16
Fyrsta verk dagsins að þagga niður nöldurvælið í frú Sigríði Jósafínu Brynhildur Ólafsdóttir útiþjálfari og leiðsögumaður segist markvisst vera að temja sér meira kæruleysi. Enda sé það skemmtilegra, afslappaðra og heilbrigðara fyrir taugakerfið. Brynhildur byrjar daginn á að sinna kettinum frú Sigríði Jósefínu sem hefur enga þolinmæði gagnvart eiganda sem fer seint á fætur. 3.12.2022 10:01
Hversu vel eiga þessi atriði við um yfirmanninn þinn? Það er talað um að tilfinningagreind sé eitt af því sem mun gera starfsfólk eftirsóttara til framtíðar, enda ekki nema von því í allri þeirri tæknibyltingu sem nú er, vitum við þó að eitt mun tæknin seint ráða við: Að skilja hvernig tilfinningaflóran okkar er eða líðan. 2.12.2022 07:00
Vinnustaður í kjölfar uppsagna Eins og eðlilegt er, eru fyrstu viðbrögðin okkar þegar uppsagnir eru á vinnustað að hugsa um það samstarfsfólk okkar sem var rétt í þessu að missa vinnuna. Við upplifum samkenndina og umhyggjuna. Vonum það besta fyrir viðkomandi í atvinnuleitinni framundan. Þegar ein dyr lokast opnast aðrar ekki satt? 1.12.2022 07:00
Í gamni og alvöru: „Hvað í andskotanum erum við búin að koma okkur út í?“ „Það er frekar fyndið hversu mikið það er alltaf lagt upp úr góðri hugmynd. Stóra málið er hins vegar að framkvæma. Því hvað er geggjuð hugmynd ef það verður ekki neitt úr neinu?“ spyrja hjónin Júlíus Ingi Jónsson og Ragnhildur Ágústsdóttir stofnendur Lava Show. 29.11.2022 07:01
Gera geggjuð fjölskyldujólakort: „Ekki einu sinni mamma veit neitt“ „Það eru allir alla leið í þessu. Eða „all in“ eins og maður segir. Krakkarnir meira að segja pressa á okkur hvenær við ráðumst í þetta. Tengdabörn eru með. Vinir og vandamenn spyrja hvað megi búast við með næsta jólakorti,“ segja hjónin Lóa Dís Finnsdóttir og Torfi Agnarsson um fjölskyldujólakortin sem send hafa verið út síðustu árin og vægast sagt vekja athygli. 28.11.2022 07:00