Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Hagar eru komnir í innkaupasasamstarf við danska smásölufyrirtækið Salling Group, sem er stærsti aðilinn á dagvörumarkaði í Danmörku. Samstarfið með Salling Group býður upp á fjölda tækifæra og gerir Högum kleift að bjóða landsmönnum upp á lægra verð, aukið vöruúrval, og enn betri gæði en fyrr í verslunum félagsins, að því er fullyrt í tilkynningu frá félaginu. 16.4.2026 10:33
Spá aukinni verðbólgu í apríl Greiningardeild Landsbankans spáir því að verðbólga muni hækka úr 5,4 prósentum í 5,5 prósent í apríl. Hærra eldsneytisverð og hækkun flugfargjalda hafi þar mest áhrif á hækkun milli mánaða samkvæmt spánni. 16.4.2026 10:16
Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Ekki verður gengið til kosninga í Ölduselsskóla í Seljahverfi í Breiðholti í ár líkt og verið hefur venjan um árabil. Þess í stað munu íbúar í Seljahverfi greiða atkvæði í Seljaskóla þegar gengið verður til sveitarstjórnarkosninga þann 16. maí næstkomandi. 16.4.2026 07:02
CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Lágflug farþegaþotu Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ síðastliðinn laugardag heldur áfram að vekja heimsathygli en bandarísku sjónvarpsstöðvarnar CNN og ABC hafa nú báðar fjallað um flugið. 15.4.2026 22:41
Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ætlar sér aftur á þing í maí þegar hún lýkur námi sínu í New York. Þetta staðfesti Áslaug á samfélagsmiðlinum Instagram en hún hefur verið í námi í Columbia háskóla síðastliðið ár. 15.4.2026 22:06
Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Fleiri Íslendingar eru andvígir aðild að Evrópusambandinu nú en fyrir ári síðan miðað við árlega könnun sem Maskína gerir fyrir utanríkisráðuneytið. 46 prósent segjast vera andvíg aðild í dag en sá fjöldi var 39,8 prósent þegar könnunin var framkvæmd á svipuðum tíma í fyrra. Þá hefur stuðningur við aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu ekki mælst hærri. 15.4.2026 21:13
Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bæjarstjóraefni D-listans í Hveragerði í komandi sveitarstjórnarkosningar verður Ingimar Guðmundsson. Þetta kemur fram í tilkynningu. 15.4.2026 20:30
Arion banki og Kvika blása af samrunann Ekki verður af sameiningu Arion banka og Kviku. Þetta kemur fram í tilkynningu Arion banka þar sem ástæðan er rakin til afstöðu Samkeppniseftirlitsins. 15.4.2026 18:47
Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Ljóst er að senda þarf mótorinn í Herjólfi utan til viðgerðar og verður skipið af þessum sökum ekki í áætlunarsiglingum milli lands og Eyja á mánudag og þriðjudag heldur mun Breiðafjarðarferjan Baldur leysa af. 15.4.2026 18:07
Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Sjö borgarfulltrúar sátu hjá þegar samþykkt var í borgarstjórn í dag að óháðu borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir myndu fá að verða áheyrnarfulltrúar í borgarráði, umhverfis- og skipulagsráði og forsætisnefnd borgarinnnar. Laun Kjartans hækka því um 868 þúsund og laun Mörtu um 578 þúsund. 15.4.2026 17:27