Fréttamaður

Lovísa Arnardóttir

Lovísa er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Tryggja rekstur Hjálparsímans til tveggja ára

Með fimmtíu milljóna styrk þriggja ráðuneyta til reksturs Hjálparsímans 1717 hefur tekist að tryggja fyrirsjáanleika í rekstri Hjálparsímans til næstu tveggja ára. Tilkynnt var í dag um styrkveitinguna og að stórauka eigi fræðslu um stafrænt ofbeldi. Um fjögur símtöl berast á dag í Hjálparsímann frá fólki með sjálfsvígshugsanir.

Beygjur og hring­torg mesta á­skorunin fyrir vindmyllulestina

Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnastjóri vindmyllugarðs Landsvirkjunar við Vaðölduver, segir hafa gengið mjög vel að flytja hluta vindmylla í Vaðölduver í nótt. Lögregla segir beygjur og hringtorg mestu áskorun en flutningarnir hafi gengið vel í nótt. 

Joey Christ, Dóri DNA, og 7Berg í upp­hitun fyrir Yasiin Bey

Joey Christ, Alexander Jarl, Yung Nigo, Drippin, Ruby Francis, Emilía Hugrún, Saint Pete, Daron Karl, Kzoba, 7Berg, Dóri DNA, Class B og Byrkir B koma öll fram í upphitun REW fyrir tónleika Yasiin Bey, áður Mos Def, í Gamla bíó á laugardaginn.

Hafnar því að hafa gengið nakinn um sameignina

Kærunefnd húsamála hafnaði nýlega kröfu leigjanda um að fyrrverandi leigusali hans myndi endurgreiða honum leigu og um að hann myndi greiða honum bætur vegna muna í hans eigu sem leigusalinn fargaði. Leigusalinn fékk ítrekaðar kvartanir vegna leigjandans, meðal annars vegna hegðunar og umgengni í sameiginlegu rými. Þar á hann til dæmis að hafa gengið um nakinn. 

Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést

Alríkisdómari í New York í Bandaríkjunum samþykkti í dag að birta opinberlega bréf sem Jeffrey Epstein á að hafa skrifað í fangelsi. Klefafélagi hans sagðist hafa fundið bréfið í myndasögu. Í frétt New York Times segir að þau hafi ekki staðfest rithönd Epstein í bréfinu.

Fyrsta vindmyllulestin um Suður­land í nótt

Einhverjir viðamestu þungaflutningar í sögu íslenska vegakerfisins hefjast í kvöld þegar risastórir vindmylluhlutar verða fluttir frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga. Kristján Már Unnarsson fréttamaður var í beinni frá Þorlákshöfn í kvöld.

Telur for­sætis­nefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns

Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi telur forsætisnefnd hafa brotið á sér í meðferð nefndarinnar á meintu einelti hans í garð starfsfólks Ríkisendurskoðunar. Í bréfi til þingmanna segir hann stöðuna á milli sín og nefndarinnar fordæmalausa og segist ætla að leita réttar síns.

Vinstrið á fleygi­ferð og Við­reisn í lykil­hlut­verki

Gunnar Sigurðsson, stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur, ræddi nýjustu tölur í Reykjavík í kvöldfréttum Sýnar. Hann segir Viðreisn í lykilhlutverki fyrir meirihlutaviðræður miðað við nýjustu könnun Maskínu og Vinstrið á fleygiferð.

Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta árs­fjórðungi

Heildartekjur Alvotech voru 105,9 milljónir dollara, samanborið við 132,8 milljónir dollara á fyrsta fjórðungi liðins árs. Það samsvarar um þrettán milljörðum íslenskra króna. Félagið gerir ráð fyrir að heildartekjur ársins 2026 verði á bilinu 650 til 700 milljónir dollara.

Sjá meira