Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Fimm gamlar herflugvélar úr síðari heimsstyrjöld af gerðinni DC-3, eða C-47 Douglas Dakota, millilenda á Íslandi á næstu dögum á leið sinni frá Norður-Ameríku til Evrópu. Þar munu þær taka þátt í minningarathöfnum í tilefni þess að 80 ár verða liðin frá innrásinni í Normandí, D-deginum 6. júní 1944. 20.5.2024 15:43
Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Lögþing Færeyja hefur fallið frá áformum um að leggja á 4.500 króna aðgangseyri, 225 danskar krónur, á alla erlenda ferðamenn sem heimsækja eyjarnar. Í staðinn verður tekið upp gistináttagjald, 20 krónur danskar, um 400 krónur íslenskar, fyrir hverja nótt, þó að hámarki tíu nætur, eða um 4.000 krónur. 19.5.2024 11:20
Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Ummæli borgarstjóra Þórshafnar, Heðins Mortensen, um að hann vildi bjóða Atlantshafsbandalaginu að byggja nýjan alþjóðaflugvöll í Færeyjum, komu sem sprengja inn í færeysk stjórnmál. Bæði lögmaður Færeyja, Aksel V. Johannesen, og utanríkisráðherrann Høgni Hoydal, hafa brugðist hart við og sagt þessa hugmynd ekki koma til greina. 17.5.2024 11:03
Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Fyrsta áætlunarflugi Icelandair til Pittsburgh í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum var fagnað með borðaklippingu, bæði við brottför frá Keflavíkurflugvelli síðdegis í gær og einnig við komuna til Pittsburgh í gærkvöldi. Félagið hefur aldrei áður flogið til Pittsburgh en borgin er sextándi áfangastaður félagsins í Norður-Ameríku og sá tólfti í Bandaríkjunum. 17.5.2024 06:01
Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Sænska flugvélafyrirtækið Heart Aerospace tilkynnti í dag að það hefði ákveðið að flytja hluta af þróunarstarfi vegna þrjátíu sæta tvinn-rafmagnsflugvélar frá Svíþjóð til Bandaríkjanna. Jafnframt hefur félagið hætt við verksmiðjubyggingu í Halmstad en í staðinn ákveðið að reisa rannsóknar- og þróunarmiðstöð í Los Angeles í Kaliforníu. 15.5.2024 17:44
Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Borgarstjóri Þórshafnar vill bjóða NATO að byggja nýjan alþjóðaflugvöll í Færeyjum. Hann segir núverandi flugvöll of lítinn til að geta þjónað Færeyingum til framtíðar. 14.5.2024 22:22
Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Magnús Scheving, höfundur Latabæjar, hefur eignast sjónvarpsþættina heimsfrægu á ný ásamt vörumerki og hugverkaréttindum. Magnús segir þættina tímalausa og enn eiga erindi. 14.5.2024 20:04
Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Færeyingar stefna að því að hætta raforkuframleiðslu með dísilolíu fyrir árið 2030. Samtímis vinna þeir að því að skipta út olíukyndingu íbúðarhúsa fyrir varmadælur og hyggjast þrefalda fjölda vindmylla, úr þrjátíu í níutíu. 13.5.2024 20:02
Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Færeyskir bændur efndu til mótmælaaksturs á traktorum til Þórshafnar þegar mælt var fyrir frumvarpi landsstjórnarinnar um að leggja háan aðgangseyri á erlenda ferðamenn. Bændur og landeigendur telja frumvarpið ganga gegn stjórnarskrárvörðum rétti þeirra til að stýra sjálfir aðgengi að eigin landi. 9.5.2024 21:51
Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Smíði nýrrar þjóðarhallar Færeyinga skotgengur og er stefnt að því að fyrstu kappleikirnir verði spilaðir í febrúar á næsta ári. Borgarstjóri Þórshafnar býður Íslendingum að nýta færeysku höllina undir landsleiki Íslands. 8.5.2024 22:33